Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Qupperneq 13
það gott á Íslandi. Það er dýrmætt að eiga
gott bakland. Maður finnur hvað maður er
náinn vinum og fjölskyldu. Ég reyni að kíkja
heim öðru hverju, það er lykillinn.“
Talið berst að kvennamálum og grúppíum.
Þið hljótið að finna fyrir aukinni kvenhylli
hérna úti. Hvernig er staðan á ykkur?
„Jú, vissulega, ef maður hefur einhvern
tíma til þess. Annars held ég að við séum all-
ir einhleypir nema Danni, hann er búinn að
vera með stelpu hér úti í næstum því ár. Ég
sjálfur er einhleypur.“
En eruð þið orðnir ríkir?
„Við höfum það mjög gott. Þetta er mikið
batterí sem er hérna í kringum okkur. Við
erum ekkert að eyða peningum að óþörfu og
eins og er höfum við það gott.“
Í eftirpartíi með Justin Timberlake
og Chris Martin
Fyrir tveimur vikum kom hljómsveitin fram í
þætti Conans O’Briens en hann er einn vin-
sælasti spjallþáttastjórnandi Bandaríkjanna.
„Það var mjög skemmtilegt og allt mjög fag-
legt í kringum þann þátt. Conan var mjög
áhugasamur um Ísland og mikill áhugamað-
ur um gítara. Við verðum eitthvað meira í
svona þáttum á næstunni. Þetta hefur allt
sitt að segja.“
Og svo var farið í eftirpartí með fræga
fólkinu?
„Já, það má segja það. Við spiluðum í
einkasamkvæmi í Hollywood hjá félaga okk-
ar Aaron Paul en hann er mikill aðdáandi.
Hann er hvað þekktastur fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum Breaking Bad. Við spil-
uðum heima hjá honum inni í stofu í mjög
aflsappaðri stemningu fyrir líklega 30
manns. David Blaine var þarna líka með ým-
is töfrabrögð. Þetta var mjög fínt en á sama
tíma súrrealískt þegar Chris Martin kemur
upp að þér og segist elska það sem þú ert að
gera. Við fengum mjög góð viðbrögð og auð-
vitað var djammað eitthvað fram eftir nóttu,“
segir Jökull en í samkvæminu voru mörg
fræg andlit á borð við Justin Timberlake,
Charlize Theron og fleiri.
Væntanlegir til Íslands í sumar
Hvenær mega Íslendingar svo eiga von á
tónleikum á klakanum?
„Við erum að vonast til að geta komið heim
í nokkrar vikur og haldið tónleika um mitt
sumar. Við ætlum líka að nota tímann til að
skjóta einhver tónlistarmyndbönd.
Það eru algjör forréttindi að geta notast
við íslenska náttúru við gerð þeirra.“
Hljómsveitin tók upp myndband ofan í Þrí-
hnúkagíg síðastliðið sumar sem vakið hefur
mikla athygli erlendis og verið góð landkynn-
ing. Tónlistarmyndbandið var við lagið Way
Down We Go sem einmitt var valið besta
rokklag síðasta árs á Íslensku tónlistar-
verðlaununum. „Það var mikill heiður að fá
þessi verðlaun og ég var mjög upp með mér.
Sérstaklega í ljósi þess hversu öflugt íslenskt
tónlistarlíf er um þessar mundir.
Við fáum líka sterk viðbrögð hér úti við ís-
lenskri tónlist. Maður er stoltur af því. Það
sem kemur okkur kannski mest á óvart er
hvað Sykurmolarnir eru þekktir hér ytra.
Fólk hér þekkir að sjálfsögðu líka Sigur Rós,
Björk og Of Monsters and Men.
Auðvitað er gott þegar búið er að ryðja
veginn og fókusinn er mikill á Ísland um
þessar mundir.“
Hljómsveitarmeðlimirnir Davíð Antonsson, Jökull Júlíusson, Daníel Ægir Kristjánsson og Rubin Pollock. Blaðamaður færði hljómsveitinni páskaegg frá Íslandi sem voru þó við það að bráðna í hitanum.
Morgunblaðið/Hilmar
27.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Móðir Jökuls, Þórlaug Sveinsdóttir,
var stödd í Texas að heimsækja son
sinn þegar viðtalið var tekið. Hún
segist afar stolt af framgangi strák-
anna. Hún sá snemma að mikil
tónlist leyndist í Jöklinum sínum.
„Hann fékk fyrsta hljómborðið sitt
í afmælisgjöf þegar hann var 6 ára.
Þá bjuggum við á Hornafirði og
keyrðum oft löngum stundum til
Reykjavíkur. Hann gat setið í bíln-
um samfleytt í sex klukkutíma og
samið og leikið lög á hljómborðið.
Hann var með heyrnartól í eyr-
unum og þurfti ekki einu sinni að
pissa á leiðinni,“ segir Þórlaug.
Velgengnin hefur því ekki komið
á óvart? „Nei, hann er mjög ein-
beittur í því sem hann tekur sér
fyrir hendur. Hann uppsker eins og
hann sáir og hefur alla tíð verið
mjög skapandi.“
En ertu ekkert smeyk um litla
strákinn þinn í stóru Ameríku?
„Nei, hann er svo skynsamur strák-
ur. Hann höndlar þetta vel,“ segir
Þórlaug sem naut sólarinnar í
Austin og var staðráðin í að taka
alla fjölskylduna með í næstu heim-
sókn.
ÞÓRLAUG SVEINSDÓTTIR ER STOLT MÓÐIR JÖKULS
Frábært að sjá drenginn
lifa drauminn sinn
Þórlaug móðir Jökuls er stolt af stráknum sínum.
Hún segir velgengnina ekki koma sér á óvart.