Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Page 14
A
llt hefur leikið á reiðiskjálfi í
þýskum stjórnmálum frá því að
flóttamannavandinn blossaði
upp í fyrra og Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, ákvað að
opna landamærin. Úrslit kosninga í þremur
sambandslöndum fyrir tveimur vikum bera
ólgunni vitni og hefur þeim verið líkt við póli-
tískan landskjálfta.
Jaðarflokkar hafa verið í sókn víða í Evrópu,
en þýsk stjórnmál hafa hingað til virst ónæm
fyrir slíkum fyrirbærum. Nú er hins vegar
kominn fram á sjónarsviðið flokkur, sem sópar
til sín atkvæðum. Annar kostur fyrir Þýska-
land eða Alternativ für Deutschland (AfD)
fékk 24% fylgi í sambandslandinu Sachsen-
Anhalt í austurhluta landins og munaði aðeins
fimm prósentustigum á honum og kristilegum
demókrötum. Í þriðja sæti var vinstri flokk-
urinn Linke, sem alltaf hefur notið töluverðs
fylgis í Austur-Þýskalandi, með 16,3%.
AfD hlaut minna fylgi í hinum sam-
bandslöndunum tveimur, en árangur hans þar
ætti þó að koma meira á óvart vegna þess að
þau eru í Vestur-Þýskalandi þar sem borg-
araleg gildi eru rótgrónari og jaðarflokkar
hafa vart átt möguleika. Flokkurinn fékk
12,6% í Rheinland-Pfalz og 15,1% í Baden-
Württemberg.
Samherjar reiðir Merkel
Merkel og hennar nánustu samstarfsmenn
þykja hafa tekið úrslitunum af nokkurri léttúð.
Hún benti á að þeir flokkar, sem væru fylgj-
andi stefnu sinni í málefnum flóttamanna,
hefðu fengið allt að 80% fylgi í kosningunum.
Þetta viðhorf hefur ekki síst vakið reiði ýmissa
samherja hennar í flokki kristilegra demó-
krata (CDU) og sérstaklega í systurflokknum í
Bæjaralandi, CSU. Þar á bæ þykir Merkel
hafa seilst of langt inn á miðjuna og við það
hafi myndast tómarúm á hægri vængnum.
Horst Seehofer, formaður CSU og forsætis-
ráðherra Bæjaralands, hefur ekki farið dult
með það og gagnrýnt Merkel harkalega.
CSU hefur ráðið lögum og lofum í Bæjara-
landi óslitið síðan 1957 og hefur frá því hann var
stofnaður 1945 yfirleitt verið með hreinan meiri-
hluta atkvæða í kosningum hvort sem er til sam-
bandsþingsins í Berlín eða um völdin heima í
héraði. Óttast liðsmenn flokksins að hann gæti
misst þessa sérstöðu sína og vilja skipta um
kúrs áður en svo fer. Hafði vikuritið Der Spiegel
eftir einum liðsmanni CSU að færi svo yrði
flokkurinn eins og CDU „í leðurstuttbuxum“.
Samkvæmt könnun ríkissjónvarpsstöðv-
arinnar ARD fyrr í þessum mánuði voru 59%
Þjóðverja óánægð með stefnu Merkel í mál-
efnum flóttamanna. Í febrúar náði óánægjan
81%. 54% kváðust hins vegar í mars ánægð
með störf kanslarans, en sú tala fór undir 50%
í febrúar og stóð hún þá nánast jafnfætis
Seehofer. Nú hefur dregið sundur með þeim á
ný og ef til vill má rekja það til þess að ein-
hverjum hafi þótt Merkel föst fyrir þegar hún
samdi við Tyrki um að fá þá til að taka aftur
við ákveðnum flóttamönnum.
Opnun landamæra vendipunktur
Í málflutningi AfD er hamrað á því að valda-
stéttin hafi brugðist og skilið almenning eftir
úti í kuldanum. Merkel er kölluð einræð-
isherra og höfuð valdastéttarinnar í landinu.
Þegar rætt er við stuðningsmenn flokksins
segja þeir iðulega að hún hafi snúið baki við
þeirra gildum – nefna ákvarðanir á borð við að
leyfa hjónabönd samkynhneigðra og hætta að
nota kjarnorku þannig að enginn munur sé
orðinn á CDU og flokkum sósíaldemókrata og
græningja – og steininn hafi tekið úr þegar
hún ákvað að opna landamærin fyrir flótta-
mönnum.
Sú ákvörðun var reyndar mjög ólík henni.
Merkel hefur yfirleitt forðast að taka afger-
andi afstöðu. Hún hefur stjórnað eins og
tæknikrati, leyft málum að þróast og brugðist
við þegar hún átti ekki annars kost, fremur en
að taka frumkvæðið. Ekki er þar með sagt að
hún hagi seglum eftir vindi. Hún hefur til
dæmis staðið fast á því að aðhaldi yrði beitt í
evruríkjum í vanda hvað sem tautaði. Í flótta-
mannamálinu lét hún hins vegar tilfinningar
sínar í ljós. Hún var ekki aðeins að hjálpa fólki
í neyð heldur bregðast við skylduboði í nafni
mannúðar.
Viðbrögð hennar voru rakin til þess að henni
væri í fersku minni hvernig hefði verið að búa
undir stjórn kommúnista í Austur-Þýskalandi.
„Ef við ætlum nú að taka upp á því að afsaka
okkur fyrir að sýna vinalega ásjónu í neyð þá
er þetta ekki mitt land,“ svaraði hún gagnrýn-
endum.
Skýr afstaða Merkel í flóttamannamálinu
vakti víða aðdáun, en var einnig kveikjan að
gagnrýni og reiði, ekki síst vegna þess að ekki
þótti ljóst hvernig hún ætlaði að taka á móti
öllum þeim flóttamönnum, sem vilja komast til
Þýskalands. Ekki hjálpaði Merkel að stuðn-
ingur við stefnu hennar hjá stjórnvöldum í öðr-
um ríkjum Evrópusambandsins er hverfandi.
Gjöf Merkel til AfD
Reiðin vegna flóttamannastefnu Merkel hefur
verið vatn á myllu AfD og leiðtogar flokksins
áttuðu sig snemma á því. Alexander Gauland,
varaformaður AfD, sagði í fyrra að stefna
Merkel hefði verið „gjöf“ til flokksins.
Í öllum sambandslöndunum þremur, þar
sem kosið var fyrir tveimur vikum, var kos-
ingaþátttaka meiri en þegar þar var síðast
gengið til kosninga. Drjúgur hluti fylgis AfD
kom frá kjósendum, sem voru að kjósa í fyrsta
skipti eða kjósa sjaldan. Um tveir þriðju
þeirra, sem sögðust hafa kosið flokkinn sögðu
að þeir væru reiðir út í hefðbundnu flokkana.
Í AfD má greina margvíslega strauma. Þar
koma saman kristilegir hugmyndafræðingar,
gamlir herforingjar, prófessorar í þjóð-
hagfræði og svekktir fulltrúar millistétt-
arinnar.
Annar kostur fyrir Þýskaland á sér ekki
langa sögu. Bernd Lucke stofnaði flokkinn í
febrúar 2013. Lucke er prófessor í hagfræði og
hafði flokkurinn í frammi harða gagnrýni á
evruna og björgunarpakka fyrir lönd í kreppu
á evrusvæðinu. Flokkurinn talaði um að Þjóð-
verjar ættu að ganga úr evrusamstarfinu, vísa
ætti Grikkjum úr því, eða stofna ætti einhvers
konar norðurevru evruríkjanna með öflugustu
hagkerfin. Í kosningunum í september munaði
aðeins 0,3 prósentustigum að hann næði fimm
prósenta þröskuldinum, sem þarf til að komast
á þing. Í kosningum til Evrópuþingsins í maí
2014 komst flokkurinn að með 7,1% fylgi. Um
haustið kom flokkurinn einnig mönnum að í
kosningum í sambandslöndunum Saxlandi,
Brandenburg og Thüringen. Meðal þeirra,
sem komust á þingið í Brandenburg, var
Frauke Petry, sem brátt var komin í harða
valdabaráttu við Lucke.
Frá evruefa til útlendingaótta
Sama haust var stofnuð hreyfing í Dresden
sem þekkt er undir skammstöfuninni Pegida.
Skammstöfunin stendur fyrir Patriotische Eu-
ropäer gegen die Islamisierung des Abend-
landes og mætti útleggja: föðurlandssinnaðir
Evrópumenn í andstöðu við íslamsvæðingu
Vesturlanda. Höfuðáhersla hreyfingarinnar
hefur verið á að herða reglur um innflytjendur
og kröfur um aðlögun þeirra, sérstaklega
múslima.
Í lok árs 2014 voru flokksfélög AfD í Austur-
Þýskalandi farin að bera víurnar í Pegida, en
Lucke hafnaði slíkum tilraunum. Stutt var
hins vegar í að Lucke missti tök á flokknum og
á þingi hans í júlí í fyrra var Petry kjörin til
forustu. Lucke gekk úr flokknum og sagði að
ástæðan væri vaxandi ótti við útlendinga og
íslam innan hans. Nokkrum dögum síðar hafði
hann stofnað nýja hreyfingu um baráttu sína
gegn evrunni og björgunarpökkunum.
Þegar Lucke hvarf á braut fór málflutn-
ingur AfD að breytast og er í raun enn í mót-
un. „Í stefnuskrá sinni og ummælum fulltrúa
hans býður AfD upp á litróf sem nær frá þjóð-
legri íhaldssemi til öfga á hægri jaðri,“ sagði
Oskar Niedermayer, stjórnmálagreinandi við
Freie Universität í Berlín, við dagblaðið Die
Welt.
Alexander Häusler, stjórnmálafræðingur
við fagháskólann í Düsseldorf og sérfræðingur
um öfga- og nýnasistahreyfingar, sagði við
fréttaveituna AFP að Björn Höcke, leiðtogi
AfD í Thüringen, og Andre Poggenburg, leið-
togi flokksins í Sachsen-Anhalt, væru meðal
málsvara öfgastefnu í flokknum.
Höcke olli uppnámi í desember þegar hann
sagði að Þýskalandi gæti staðið ógn af „tímg-
unarhegðun Afríkubúa“. Poggenburg segir í
kosningaræðum að setja eigi „efri mörkin við
núll“ þegar kemur að hælisleitendum.
Franska Þjóðfylkingin fyrirmynd
Þessir menn hafa stofnað eigin arm innan
flokksins, sem þeir kalla Der Flügel (vænginn)
og markmiðið er að AfD verði þýska útgáfan af
Þjóðfylkingunni í Frakklandi, sem hefur átt
vaxandi fylgi að fagna undir forustu Marine Le
Pen.
Sagði Häusler að þeir væru „greinilega
stuðningsmenn nýrrar róttækrar og þjóðern-
issinnaðrar hægri stefnu“ og leituðust við að
nota kjördæmi sín sem tilraunastofu fyrir hug-
myndir sínar.
Petry er hófsamari en Höcke og Poggen-
burg og í Der Spiegel segir að nú myndi hún
gjarnan vilja losna við hann úr flokknum. Það
mun reyndar vera gagnkvæmt.
Jörg Meuthen kemur næstur Petry að völd-
um í flokknum og leiddi kosningabaráttuna í
Baden-Württemberg. Hann var bandamaður
Luckes og hefur verið kallaður síðasti hag-
fræðiprófessorinn í flokknum og um leið síð-
asti málsvari þeirra hugmynda, sem bjuggu að
baki stofnun hans.
Hann segist eiga marga múslima að vinum
og nái við þá mjög góðu sambandi. Flokkurinn
AfD sé alls ekki fjandsamlegur útlendingum,
heldur vilji „taka á innflytjendamálum af skyn-
semi“.
Hann gengur þó ekki svo langt að gagnrýna
Petry og æ oftar má heyra að hreyfingin Pe-
gida sé einfaldlega framlenging af AfD. Jakob
Pólitískur
landskjálfti
Nýr flokkur, sem leggur áherslu á flóttamenn og inn-
flytjendur, sópaði til sín fylgi í kosningum í þremur
sambandslöndum fyrir tveimur vikum. Fylgi flokksins
byggist á óánægju og beina talsmenn hans með Frauke
Petry í broddi fylkingar reiði sinni að Angelu Merkel. Á
torgum er hún kallaður einræðisherra sem eigi að víkja.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.3. 2016