Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Síða 24
Allir þekkja söguna af því hverniggamla hafnarsvæðið í Reykjavík hef-ur gengið í endurnýjun lífdaga síð-
ustu árin, frá því að vera niðurnítt og mann-
laust yfir í kraumandi hverfi fullt af
matsölustöðum og hönnunarbúðum. Svipuð
þróun virðist vera hafin í Hafnarfirði og þar
er hin fornfræga Strandgata í brennidepli
því eftir henni endilangri hafa nýjar og
áhugaverðar rekstrareiningar sprottið upp,
allt frá litlum og huggulegum hönnunar-
búðum og kaffihúsum upp í Íshús Hafnar-
fjarðar, þar sem tugir hönnuða og skapandi
einstaklinga hafa aðstöðu til sköpunar. Einn
hinna nýju viðkomustaða á Strandgötunni er
Von Mathús, en það er til húsa í Drafnar-
húsinu svokallaða sem forðum hýsti vél-
smiðju er þjónustaði báta og skip sem lögð-
ust við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.
Hamingja í Hafnarfirði
Eigendurnir, þau Einar Hjaltason og Krist-
jana Þura Bergþórsdóttir, kynntust fyrst er
þau störfuðu saman á öðrum veitingastað í
höfuðborginni. Nokkrum árum síðar hafa
þau sett á stofn sinn eigin veitingastað í
hjarta Hafnarfjarðar og eru alsæl með stað-
setninguna.
„Kristjana er borinn og barnfæddur Hafn-
firðingur og vildi helst hvergi annars staðar
búa,“ segir Einar þegar talið berst að hinni
skemmtilegu staðsetningu mathússins. „Ein-
ar er aftur á móti uppalinn í Kópavoginum.
Til að byrja með sá hann ekkert annað en
heimahagana en í dag er hann kolfallinn fyr-
ir firðinum og hampar honum við hvert
tækifæri,“ bætir Kristjana við og lítur bros-
andi á eiginmanninn.
Þau skötuhjúin höfðu verið á höttunum
eftir hentugu húsnæði til veitingareksturs
um nokkurra mánaða skeið þegar þau römb-
uðu á rýmið í Drafnarhúsinu. Rétt eins og
gerst hefur á hafnarsvæðinu í Reykjavík er
helst eitthvað að finna fyrir bragðlaukana og
skapandi hugsun í Drafnarhúsinu í dag því
nágrannar Vonar eru meðal annars Pallett
Kaffikompaní og Föndurlist. Áðurnefnt Ís-
hús Hafnarfjarðar er svo handan við götuna.
Tenging við sögu hússins
„Við erum svo heppin að hafa dásamlegt fólk
í kringum okkur sem hjálpaði mikið til við
undirbúninginn og innréttingarnar,“ segir
Kristjana. „Tengdamóðir mín er til dæmis
alger snillingur og hún var ómissandi hjálp
við að hugsa upp útlit og skipulag stað-
arins.“ Einar bætir því við að hann hafi
ásamt föður sínum smíðað borðin, og gegn-
heila eikin í borðplötunum sé skipatimbur
sem þeir hafi fundið í geymslu við Hafnar-
fjarðarhöfn og keypt í kjölfarið. „Okkur var
frá upphafi umhugað um að innréttingarnar
og útlit staðarins endurspegluðu sögu húss-
ins,“ útskýrir Einar ennfremur en Drafnar-
húsið var um áratugaskeið snar þáttur í at-
vinnusögu bæjarins. Hann bendir máli sínu
220 er hið
nýja 101
Stemning er að stigmagnast við hafnarsvæðið í Hafnarfirð-
inum, nánast vikulega er opnuð einhver ný og spennandi
rekstrareining við sjóinn í firðinum fagra. Þar á meðal er Von
Mathús, veitingastaður þar sem einfaldur, árstíðabundinn mat-
ur, hlýlegt andrúmsloft og kætandi kokteilar ráða ferðinni.
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.3. 2016
MATUR
„Okkur var frá upphafi umhugað um að innréttingarnar og útlit staðarins endurspegluðu sögu hússins,“ útskýrir Einar ennfremur en Drafnarhúsið var um áratugaskeið snar þáttur í atvinnusögu bæjarins.
Takið eftir appelsínugulu ljósunum til vinstri á myndinni. „Þessi netakúluljós smíðaði Ólafur Gunnar Sverrisson, Óli í Íshúsinu, og þegar ég sá þau vissi ég undireins að við bara yrðum að fá þau hingað.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Kjúklingaskinnið er einstaklega
skemmtilegur réttur sem kemur öllum á
óvart sem smakka hann.
Við héldum að við myndum örugglega
ekki selja mikið af honum en hann er vin-
sæll og ánægjan leynir sér ekki.“
KJÚKLINGASKINN
2 kg kjúklingaskinn
Salt og pipar
300 g möndlur
Ólívuolía
15 stk rauð vinber steinlaus
Aðferð: Kjúklingaskinnið er skolað í
köldu vatni, svo raðað í bakka með plast-
filmu undir,
Best er að raða skinnunum flötum
þannig að þú ert að búa til mörg lög af
skinni og alltaf sett smávegis salt og pipar
milli laga þar til skinnið er búið. Við eldum
skinnið yfir nótt í gufu á 80 gráðum á Cel-
síus en hægt væri einnig að elda yfir dag-
inn á bakstri við 120 gráður heima við, en
þá væri gott að nota smjörpappír í staðinn
fyrir plastfilmu. Því næst er skinnið press-
að með fargi og kælt í nokkra tíma og svo
skorið út í hæfilega bita og steikt í sárið.
Það á að vera gullið, stökkt en mjúkt og
djúsi hið innra.
Meðlæti:
Möndlur eru bakaðar þar til gylltar og
stökkar, því næst unnar í matvinnsluvél
með smá ólívu-olíu og kryddaðar til með
salti einnig er gott að setja smá eldpipar
eða þurrkaðan pipar.
Vínberjum er velt upp úr skvettu af hvít-
vínsediki, salti og sykri, og svo bökuð í ofni
við vægan hita þar til meyr.
Gott er að borða skinnið með ferskum
jurtum eða sýrðum lauk einnig.
Kjúklingaskinn