Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Page 30
TRUMP Víða um Bandaríkin eru byggingar merktar repúblikananum litríka
Donald Trump. Byggingin í Chicago er 360 m há og hýsir hótel og íbúðir.
FRAMKVÆMDIR Enn bætast við skýjakljúfar á bökkum Chicago-
árinnar, en samkvæmt Wikipedia eru nú 1.264 slíkir í borginni.
GENGIÐ YFIR BRÚ Chicago-áin rennur um borgina, umkringd
skýjakljúfum. Sá hæsti er Willis-turninn, sem er 442 metrar á hæð.
GLER OG STÁL Tignarlegir skýjakljúfar. Í grænleitu byggingunni eru höfuðstöðvar fjárfestingarfélagsins Nuveen. Áhugafólk um kvik-
myndir 9. áratugarins kannast kannski við hana, en í myndinni Ferris Bueller’s Day Off var þar vinnustaður föður aðalpersónunnar.
1
Skýjum ofar í
Chicago
Eitt af því sem Chicago er þekkt fyrir eru skýjakljúfar enda var
fyrsta slík bygging í heiminum reist þar árið 1885. Tíu af stærstu
byggingum Bandaríkjanna eru í borginni og með því að sigla
um Chicago-ána fæst gott sjónarhorn á þessi gríðarstóru mann-
virki sem eru frá ýmsum tímabilum byggingasögunnar.
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.isHÁIR Skýjakljúfana í Chicago ber við himin. Þeir eru fjölbreyttir að stærð og gerð.
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
FERÐALÖG Rómverjar voru meðal þeirra sem sýndu Belgumsamstöðu í vikunni eftir hryðjuverkin hræðilegu.
Trevi-gosbrunnurinn frægi var til dæmis í fánalitunum.
Sýna samstöðu
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.3. 2016