Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.03.2016, Síða 48
SUNNUDAGUR 27. MARS 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
GM 3200
GM 7700
GM 9900
Borðstofuborð
Íshellatímabilinu er við það að ljúka hérlendis um þessar
mundir vegna hlýnandi veðurs en heimsóknir í íshella
njóta vaxandi vinsælda, ekki síst meðal erlendra ferða-
manna. Þær hefjast svo aftur með kólnandi veðri í haust.
Hellirinn á myndinni, sem Ragnar Axelsson ljósmynd-
ari Morgunblaðsins heimsótti, nefnist Kristalshellir og
er í Svínafellsjökli í Vatnajökli. Það er tilkomumikill
heimur og ef vel er að gáð leynast allskyns kynjamyndir
í veggjunum. Alltént ef gestir eru ekki þeim mun fer-
kantaðri í hugsun.
Morgunblaðið/RAX
Heillandi heimur
Íshellar njóta vaxandi vinsælda hér á landi, ekki síst meðal ferðamanna.
„Blaðinu barst í gær einkaskeyti
frá AP-fréttastofunni þar sem
segir, að ung íslenzk stúlka,
Guðný Grendal Magnúsdóttir,
hafi verið kvödd í herþjónustu af
norskum hernaðaryfirvöldum.
Reyndist herkvaðningin á mis-
skilningi byggð og hefir stúlkan
verið beðin afsökunar á mistök-
unum af lögreglu- og hernaðar-
yfirvöldum. Guðný stundar nám
í mjólkurfræði við mjólkurstöð-
ina í Álasundi og skóla í Þránd-
heimi.“
Með þessum orðum hófst
frétt í Morgunblaðinu laug-
ardaginn 26. mars 1966.
Guðný, sem var átján ára,
staðfesti fregnina um herkvaðn-
ingu hennar í norska herinn í
samtali við AP-fréttastofuna og
viðurkenndi að hún hefði orðið
dálítið smeyk þegar hún las
bréfið fyrst. Síðan hafi hún strax
séð að um mistök væri að ræða.
Ræddi hún við vinnuveitanda
sinn sem hafði samband við þar
til bær yfirvöld í Noregi og
greitt var úr málinu.
Guðný tjáði AP að engin her-
skylda væri á Íslandi. „En ég fæ
ekki séð, að það skuldbindi mig
til að gegna herskyldu í Nor-
egi!“
Morgunblaðið sló á þráðinn til
móður Guðnýjar, Bjarneyjar
Finnbogadóttur, og sagði hún
dóttur sína hafa skrifað heim og
gert foreldrum sínum grein fyrir
málavöxtum. Væri ekki annað á
bréfinu að sjá, en henni þætti
málið spaugilegt, og væri það
sama afstaða og þau hjónin
hefðu gagnvart því.
Í niðurlagi fréttar Morgun-
blaðsins var tekið fram að frétt
þessi hefði skömmu áður komið
í norska útvarpinu.
GAMLA FRÉTTIN
Íslensk stúlka kvödd í norska herinn
Guðný Grendal Magnúsdóttir
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Forrest Gump
lífskúnstner
Louis van Gaal
knattspyrnustjóri Man. Utd
Butt-Head
lífskúnstner