Fréttablaðið - 14.01.2017, Page 32

Fréttablaðið - 14.01.2017, Page 32
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Ástralía er stórkostlegt land sem býður upp á flest það sem ævin- týraþyrstir ferðalangar sækjast eftir. Náttúrufegurð landsins er mjög fjölbreytt þar sem finna má m.a. stærstu kóralrif heims, eld- rauðar eyðimerkur, fagurgræna regnskóga og fjölbreytt dýralíf. Landið býður einnig upp á falleg- ar heimsborgir á borð við Syd- ney, Melbourne og Brisbane og fjölbreytta matargerð þar sem bresk áhrif blandast matarhefð- um stærri innflytjendahópa frá Austur-Asíu og löndunum kring- um Miðjarðarhaf. Ein af vinsælustu náttúruperl- um Ástralíu er Blue Mountains- þjóðgarðurinn sem er í um 80 km fjarlægð frá Sydney, í suðaust- ur hluta landsins. Þjóðgarðurinn nær yfir um 11.400 ferkílómetra landsvæði og er helst þekktastur fyrir falleg fjöll og klettabelti í bland við skógivaxna dali og hlíð- ar. Vegna nálægðar við Sydney er garðurinn mjög vinsæll allt árið um kring meðal ferðamanna, en líka meðal göngufólks, kletta- klifrara og þeirra sem stunda fjallahjólreiðar og kanósiglingar. Nánast fullkominn Jósef Halldór Þorgeirsson frá Akranesi býr í bænum Leura sem er í þjóðgarðinum, skammt frá helsta aðdráttarafli og kennileiti hans, klettunum Three sisters. Þar nemur hann alþjóðlega hótel- rekstrarfræði við Blue Mountains International Hotel Management School, sem er mjög virtur á sínu sviði að sögn Jósefs. Heimabær hans, Leura, ein- kennist af rólegu og virkilega þægilegu umhverfi að hans sögn en þar búa rúmlega fjögur þúsund manns. Helsta aðdráttarafl Blue Mountains-þjóðgarðsins, klett- arnir Three sisters, eru í nokk- urra kílómetra fjarlægð ásamt fjölda gönguleiða. „Klettarnir hafa þrjá tinda og þaðan kemur nafnið Three sisters. Þetta er mikill ferðamannastaður og nán- ast fullkominn viðkomustað- ur fyrir fjölskyldur og náttúru- unnendur. Hér eru fossar, fjöll, skógar og dýralíf allt í kring. Fjölmargar heillandi gönguleið- ir eru auk þess í kringum fjöllin og skógana og útsýnið er magn- að. Veitingastaðir og kaffihús eru í miklum blóma í garðinum þar sem auðvelt er að finna frábæra staði til þess að klára daginn og slaka á.“ Stefnir á frekari ferðalög Námið hjá Jósefi er krefjandi og hefur hann lítið getað ferðast sökum anna í náminu. „Þegar næsta önn klárast í lok apríl fer ég út á vinnumarkaðinn í Ástral- íu, en nemendur fá sex mánaða starfssamning á fimm stjörnu hótelum víðs vegar um Ástralía. Ég er mjög spenntur fyrir því að kynnast vinnumarkaðnum hér og þá verður mun auðveldara fyrir mig að ferðast um Ástralíu og stefni ég á að gera sem mest af því. Það sem heillar mig mest eru eyjarnar í kringum Ástralíu, t.d. Tasmanía og Hamilton Island, en það væri algjör draumur að fá að starfa á hótelum þar. Námið opnar dyr og gerir mér kleift að fá vinnu úti um allan heim en hugurinn er alltaf á Íslandi. Við sjáum til hvernig staðan verður í þessum bransa á Íslandi eftir nokkur ár en einungis framtíðin getur sagt til um það.“ Þetta er mikill ferða­ mannastaður og nánast fullkominn viðkomu­ staður fyrir fjölskyldur og náttúru­ unnendur. Jósef Halldór Þorgeirsson blue mountains­þjóðgarðurinn býður upp á ótal útivistarmöguleika, m.a. göngur og fjallaklifur. nordicphotoS/getty tindarnir þrír three sisters eru helsta kennileiti blue mountains­þjóðgarðsins í Ástralíu. garðurinn er ein vinsælasta náttúruperla landsins. nordicphotoS/getty býr og nemur í paradísinni jósef halldór Þorgeirsson frá Akranesi stundar nám við háskóla sem er í einni vinsælustu náttúruperlu Ástralíu, Blue Mountains-þjóðgarðinum. Þjóðgarður- inn er sannkölluð paradís og vel sóttur af ferðamönn- um og þeim sem stunda alls kyns útivist. SUNNUDAGA KL. 20:00 ferðir Kynningarblað 14. janúar 20172 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B F 1 -F 8 4 4 1 B F 1 -F 7 0 8 1 B F 1 -F 5 C C 1 B F 1 -F 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.