Fréttablaðið - 14.01.2017, Síða 40
Spennandi störf hjá ION Hotels
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
ION Adventure Hotel opnaði þann 1. febrúar 2013. Hótelið er í einni mestu náttúruperlu landsins og aðeins í um
hálftíma fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Umhverfisvænar lausnir og hugvitssamleg nýting á náttúrulegum efnum eru
grundvallarþættir í hönnun og byggingu hótelsins. Gestir upplifa sterka tengingu við náttúruna, orkuna á svæðinu og
tærleikann í umhverfinu.
ION Hotel ehf er vaxandi fyrirtæki sem starfar í áhugaverðu alþjóðlegu umhverfi. ION hótelin eru meðlimir í Design Hotel
keðjunni ásamt því að vera fyrstu hótelin á Íslandi sem bjóða gestum upp á Starwood vildarkerfi.
Við erum að stækka! Í febrúar 2017 fögnum við 4 ára afmæli ION Adventure Hotels á Nesjavöllum en um leið
ætlum við að opna nýtt hótel, ION City, 18 herbergja boutique hótel á Laugavegi 28 í Reykjavík. Hótelin eru bæði
meðlimir í Design Hotels keðjunni en þau státa af glæsilegri hönnun, vandaðri þjónustu og faglegu starfsfólki.
Hótelstjóri
– ION Adventure Hotel á
Nesjavöllum
ION Adventure Hotel á Nesjavöllum óskar eftir að
ráða öflugan hótelstjóra. Við leitum að framúrskarandi,
faglegum og metnaðarfullum hótelstjóra sem fær tækifæri
til að taka þátt í stækkun og sókn eins glæsilegasta hótels
landsins. ION Adventure Hotel er hluti af SPG sem er
vildarklúbbur Starwood gesta og starfar eftir alþjóðlegum
stöðlum þar sem aðeins það besta er nógu gott.
Tekju- og kerfisstjóri
– ION Hotels
ION Hotels sem reka annars vegar ION Adventure
Hotel á Nesjavöllum og ION City í Reykjavík óska
eftir að ráða til sín tekju- og kerfisstjóra. Viðkomandi
þarf að hafa mjög góða tölvukunnáttu, sjálfstæð
vinnubrögð og skipulagða yfirsýn yfir verkefni.
Starfsstöðin er í Reykjavík og æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Starfsmenn í ferðasölu
– ION Adventure Hotel á
Nesjavöllum
Starfsmenn í ferðasölu taka þátt í að auðga
upplifun gesta okkar á hótelinu á Nesjavöllum með
því að skipuleggja fyrir þá ferðir innanlands meðan
á dvölinni stendur. Unnið er á vöktum.
Umsjónarmaður fasteigna
– ION Hotels
Ábyrgðarsvið:
• Fyrirmynd og ímynd hótelsins fyrir gesti jafnt
og starfsmenn
• Ábyrgð á allri daglegri starfsemi og stjórnun
• Ábyrgð á mannauðsmálum
• Umsjón með þjálfun starfsmanna
• Umsjón með birgðahaldi
• Eftirlit með þjónustu og gæðamálum
• Samskipti við viðskiptavini
• Vinnur að þróun og stefnu hótelsins í samráði
við aðra stjórnendur
Ábyrgðarsvið:
• Umsjón með bókunarkerfum hótelanna
• Ábyrgð og eftirlit með sölustýringu og nýtingarhlutfalli
• Ábyrgð á verðstýringu og uppfærslu sölukerfa
• Áætlanagerð tengd bókunum og nýtingarhlutfalli
• Mótun stefnu og markmiða söludeildar
• Samskipti við Design Hotels, Starwood og aðra
tengiliði bókunarferla
• Hönnun á ferlum
• Greiningar og skýrslugerð
• Ábyrgð á uppfærslu og stýringu samskiptamiðla
Ábyrgðarsvið:
• Uppsetning og sala á ferðum og upplifun fyrir
gesti hótelsins
• Aðstoða gesti við að velja og skipuleggja ferðir
• Veita gestum aðstoð við ferðaáætlun og
upplýsingar um vegaopnanir
• Sjá um endurskipulagningu ferða fyrir gesti þegar
upp koma breytingar vegna veðurfars eða annarra
ófyrirsjáanlegra uppákoma
• Gera ánægjukannanir og eftirfylgni á upplifun gesta
• Vinna náið með móttökustjóra og viðburðarstjóra
varðandi ferðir og upplifun fyrir gesti og hópa
Ábyrgðarsvið:
• Sjá um viðhald og eftirlit fasteigna
• Umsjón og eftirlit með bílaflota félagsins
• Gera viðhaldsáætlun
• Hafa yfirumsjón með viðhaldsaðgerðum fasteigna
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo
sem á sviði viðskiptafræði, rekstrar eða
mannauðsstjórnunar
• Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar
• Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
• Reynsla af stjórnun og rekstri nauðsynleg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður
• Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, í ræðu
jafnt sem riti
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo
sem viðskiptafræði eða sambærilegt
• Reynsla af sambærilegu starfi kostur
• Mjög góð tölvuþekking
• Sterk greiningarhæfni
Hæfniskröfur:
• Brennandi áhugi á ferðamennsku
innanlands
• Góð þekking á helstu áfangastöðum
ferðamanna á Íslandi
• Reynsla af sölu ferða eða sambærilegu
starfi er kostur
Hæfniskröfur:
• Iðnmenntun, trésmíði, rafvirkjun
eða annað sambærilegt
• Meirapróf er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Upplýsingar veitir: Elísabet Sverrisdóttir - elisabet@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar nk.
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
2
-6
4
E
4
1
B
F
2
-6
3
A
8
1
B
F
2
-6
2
6
C
1
B
F
2
-6
1
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K