Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Síða 27
Nostrað er við hvern krók og kima á heimilinu. Hráar, steyptar hillur með skemmtilegum smáhlutum koma vel út í forstofunni.
Bekkinn við snyrtiborðið smíðaði faðir Vingu. Myndirnar
á veggjunum eru hengdar upp með svörtu límbandi sem
gefur örlítið rokkað og hrátt yfirbragð.
’ Þægindi set ég ofarlega þegar kem-ur að innréttingu heimilisins, ekkisanka að sér of mörgum hlutum ogfylgja sinni eigin sannfæringu.“
Vigdís Ingibjörg, sem kölluð er Vinga, segir stílinn áheimilinu hráan en hlýlegan á sama tíma.„Þægindi set ég ofarlega þegar kemur að innrétt-
ingu heimilisins, ekki sanka að sér of mörgum hlutum og
fylgja sinni eigin sannfæringu,“ útskýrir Vinga sem sækir
mikinn innblástur í náttúruna. „Svo elska ég Instagram og
kaupi mér einstaka sinnum eitthvert freistandi tímarit.“
Vinga er sjálf með skemmtilegt Instagram undir nafninu
@vingap þar sem hún birtir fallegar myndir.
Aðspurð hvar parið kaupi helst inn á heimilið segist Vinga
hafa mjög gaman af því að kíkja í allskyns búðir hérna heima
og fá hugmyndir og innblástur
„Góði hirðirinn klikkar aldrei. Ég vinn nánast við hliðina á
Blómavali svo ég er líka fastagestur þar. Svo versla ég líka
aðeins á netinu, til dæmis á eBay og Etsy. Ég á ömmu sem
býr rétt hjá mér og stundum þegar mig langar í eitthvað nýtt
á heimilið labba ég yfir til hennar og ,,versla“ hjá henni. Hún
á svo svakalega mikið af skemmtilegum og fallegum hlutum
bæði sem hún hefur keypt og gert sjálf og er alltaf til í að
leyfa mér að taka eitthvað með mér heim sem mér líst vel á.“
Eldhúsið er í miklu uppáhaldi hjá Vingu. Sjálf valdi hún
innréttingar, gólfefni og flísar á heimilið. „Ég er svo ótrúlega
ánægð með eldhúsið og auk þess finnst mér afskaplega gam-
an að elda og baka.“
Aðspurð hvort eitthvað sé á óskalistanum inn á heimilið
svarar Vinga;„ Það er nóg á óskalistanum. Ljósmynd eftir
RAX-a á vegginn, nýtt sófaborð, grill og hangandi stóll í
garðinn. Já og svört hnífapör – mér finnst þau svo svöl.“
Svefnherbergið er hlýlegt og notalegt. Vegglampana fékk
parið í Bauhaus en ljósmyndin er frá Etsy.
Vinga er sérstaklega hrifin af ljósakrónunni með skrautperu sem hangir yfir
borðstofuborðinu. Það er keypt í versluninni Rökkurrós.
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og
jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt
af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað
Húsgagnahallarinnar og gildir til 29. apríl 2016
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri tunga. Dökk- eða ljós-
grátt slitsterkt áklæði. Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
153.218 kr.
189.990 kr.
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 231 × 140 × 81 cm
96.766 kr.
119.990 kr.