Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 32
HEILSA Frjóofnæmi hrjáir marga. Í sumum tilvikum getur verið gott að byrjasnemma (í apríl/maí) að taka ofnæmislyf og safna þannig upp forða
fyrir sumarið, en best er auðvitað að ráðfæra sig við lækni.
Forvarnir gegn frjóofnæmi
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
Skólahreysti hefur fest sig í sessi svo um munar, enkeppnin fór fyrst fram árið 2005. Síðan þá hafa þús-undir unglinga tekið þátt og enn fleiri mætt á áhorf-
endapallana að hvetja sitt fólk. Mikil spenna ríkir fyrir úr-
slitakvöldið.
Íþróttahúsin fyllast á hverju ári
Sýn keppnninar hefur verið frá upphafi að hvetja börn til að
taka þátt í alhliða íþróttaupplifun sem byggð væri á grunn-
forsendum almennrar íþróttakennslu og þar sem keppendur
ynnu að mestu leyti með eigin líkama í þrautunum. Andrés
Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skólahreysti, segir að
keppnin hafi gengið ótrúlega vel í ár. „Það kemur manni alltaf
jafn mikið á óvart og gaman að sjá þegar að íþróttahúsin fyll-
ast á hverju einasta ári af áhorfendum. Yfir 90% af skólum
mæta til leiks,“ segir Andrés, sem segir að mikill metnaður
ríki hjá skólunum. Hann segir að skólarnir séu sífellt að verða
virkari í samvinnu við Skólahreysti.
Keppt í fimm erfiðum greinum
Fjórir eru í hverju liði og er keppt í fimm greinum. Keppt er í
upphífingum, dýfum, armbeygjum, hreystigreip og í hraða-
braut. Andrés segir allar þrautirnar vera erfiðar. „Það eru
alltaf sömu þrautirnar. Þá vita krakkarnir að hverju þau
ganga,“ segir hann. „Ég vil hrósa krökkunum, en ég er fullur
aðdáunar á því hvað þau eru dugleg og að enginn skuli hætta í
keppni. Allir eru að gera sitt besta,“ segir Andrés.
Tólf skólar eru í úrslitum. Það eru Holtaskóli, Grundakóli,
Grunnskólinn á Ísafirði, Lindaskóli, Laugalækjarskóli, Hvols-
skóli, Kelduskóli, Árskóli, Síðuskóli, Egilsstaðaskóli, Stóru-
Vogaskóli og Hagaskóli. Áhorfið á þáttunum hefur aukist mik-
ið og hefur verið það mesta í ár frá upphafi. Úrslitaþátturinn
verður í beinni útsendingu á RÚV klukkan 20 þann 20. apríl.
Úrslita-
stundin
nálgast
Skólahreysti er nú haldin í tólfta
sinn með þátttöku 108 skóla á land-
inu. Sjö hundruð nemendur í 9. og
10. bekk tóku þátt í ár, en keppnin
nýtur vaxandi vinsælda. Keppt
verður til úrslita í Laugardalshöll
næstkomandi miðvikudag.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Keppt er í upphíf-
ingum, dýfum, arm-
beygjum, hreystigreip
og í hraðabraut.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Spennan magnast nú
þegar úrslitakeppnin
nálgast. Nemendurnir
eru metnaðarfullir og
standa sig vel.
Latabæjarhlaupið, sem síðastliðinn
áratug hefur verið haldið samhliða
Reykjavíkurmaraþoninu, verður ekki
haldið í ár.
Engu að síður verður sérstakt
krakkahlaup skipulagt á svæðinu í
kringum Hljómskálagarðinn líkt og
verið hefur en það hlaup verður ekki
lengur undir merkjum Latabæjar.
Leiksýning með helstu íbúum Lata-
bæjar heyrir því einnig sögunni til.
Ástæðan fyrir breytingunni mun
vera sú að samningur Latabæjar og Ís-
landsbanka, styrktaraðila
Reykjavíkurmaraþonsins, rann út eftir
síðasta hlaup og verður ekki endur-
nýjaður.
Samkvæmt upplýsingum frá Íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur, sem heldur utan
um Reykjavíkurmaraþonið, verður eftir
sem áður boðið upp á einhvers konar
skemmtun í Hljómskálagarðinum í
tengslum við nýja krakkahlaupið þótt
það verði með breyttu sniði. Til stend-
ur að segja nánar frá fyrirkomulagi nýja
hlaupsins og skemmtiatriða tengdra því
innan fárra vikna.
Latabæjarhlaupið var fyrst haldið ár-
ið 2006 og tóku þá hátt í 4.500 börn
þátt. Árið á eftir voru þátttakendur
álíka margir, en síðustu tvö þrjú ár
hefur þeim börnum sem taka þátt
fækkað töluvert og voru þau í kringum
2.700 í fyrra og tvö ár þar á undan.
Íþróttaálfurinn fær frí þann 20.ágúst
næstkomandi því ekkert Latabæjar-
hlaup verður haldið samhliða
Reykjavíkurmaraþoni í ár.
Morgunblaðið/Eggert
KRAKKAHLAUP
Latabæjarhlaupið
ekki haldið í ár