Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
LESBÓK
Vinkonur heitir ný skáldsagaRögnu Sigurðardóttur semkom út á dögunum. Þetta er
sjötta skáldsaga Rögnu, en hún
hefur einnig gefið út ljóðabók og
bókverk.
Aðspurð hvernig hugmyndin að
bókinni hafi borist henni segir
Ragna að bækur verði stundum til
á einkennilegan hátt og að kveikjan
að þessari bók hafi eiginlega horfið
úr sögunni áður en bókinni var lok-
ið.
Vinkonur verða til
„Ég var í ræktinni að reyna að
stytta mér stundir á hlaupabretti
við að horfa á sjónvarpið. Ég fór að
hugsa um konu sem þyrfti að fara í
ræktina heilsu sinnar vegna en
leiddist það óskaplega. Til þess að
halda henni hlaupandi á brettinu
myndi einkaþjálfarinn segja henni
sögur. Ég fór að hugsa um þetta og
út frá þessari aumu litlu kveikju,
sem var ekki neitt neitt, fór af stað
einhver saga og þá urðu til þessar
þrjár persónur,“ segir Ragna og
vísar þá í vinkonurnar Hafdísi,
Láru og Júlíu sem bókin segir frá.
„Mig langaði að skrifa um
bernskuvináttu eða unglingavináttu
vegna þess að þá erum við svo við-
kvæm, það er stutt í kvikuna og
vináttan ristir svo djúpt. Við kynn-
umst persónum sögunnar þegar
þær eru orðnar fullorðnar, en mig
langaði að ná því fram að þegar les-
andinn læsi um persónurnar full-
orðnar vissi hann hverjar þær voru
þegar þær voru unglingar. Ég vildi
að þessi kvika væri sýnileg og út-
skýrði að einhverju leyti gerðir
þeirra.
Þessi vinátta er svo mikilvæg,
hún fylgir okkur alla ævi, bernsku-
vinir eða vinir frá unglingsárum
fylgja okkur stundum ævilangt,
sama hvað maður gengur í gegnum.
Bernskuvinir eru svolítið öðruvísi
en aðrir vinir, það fylgir þeim fjöl-
skylda og foreldrar og systkini,
maður kemur inn á heimili, er
kannski heimagangur einhverstaðar
í mörg ár, og þetta verður allt
öðruvísi vinátta en þegar maður
kynnist fólki síðar á ævinni,“ segir
Ragna og bætir við að sig hafi líka
langað að fjalla um varnarleysi
stúlkna og kvenna. „Vináttan er
mjög sterk og djúp en það er líka
samkeppni og afbrýðisemi sem
kemur í ljós löngu síðar að er enn
til staðar. Minningarnar hafa áhrif
á nútíðina og tilfinningarnar. Þetta
er eins og þegar maður kemur aft-
ur til staðar þar sem maður dvaldi
þegar maður var ungur og finnur
fyrir þeirri persónu sem var.“
Myndlistin meðvitað þema
Ein af aðalpersónum Vinkvenna er
Hrafnhildur Lára sem er orðin einn
af þekktustu listmálurum þjóð-
arinnar og einn þráður fléttunnar í
sögunni er portrett sem hún tekur
að sér að mála af Hafdísi æsku-
vinkonu sinni, sem er dóms-
málaráðherra. Myndlist kemur ein-
mitt oft við sögu í bókum Rögnu,
en hún er myndlistarmaður og
starfaði sem myndlistargagnrýn-
andi í mörg ár. „Það er meðvitað
þema hjá mér að fjalla um listir og
hvernig listirnar koma inn í líf okk-
ar á ólíkan hátt.
Í Hinu fullkomna landslagi
fjallaði ég um málverkafalsanir og
það hvernig listin getur verið hluti
af lífi okkar á svo marga vegu og í
Bónusstelpunni kemur gjörningalist
og samtímalist við sögu. Í Vinkon-
um er það portrettmálverk af vin-
konu. Ég hef myndlistarbakgrunn
og hef skrifað mikið um myndlist
og myndlistin á sér fastan stað í
minni heimssýn og hugsun. Mér
finnst skemmtilegt að nota skáld-
söguna sem miðil til að fjalla um
það að einhverju leyti þótt það sé
ekki í forgrunni sögunnar.“
Vináttan getur verið góð
og líka erfið
„Í forgrunninum eru vinkonurnar
og vináttan og allt í kringum hana,
ekki bara hvað vináttan getur verið
góð heldur líka hvað hún getur ver-
ið erfið. Svo er það spurningin um
valdið sem þær hafa hver yfir ann-
arri á unglingsárunum og hvernig
þær sem fullorðnar manneskjur,
eins og Hafdís lendir í, þurfa að
taka ákvarðanir sem skipta máli
upp á líf og dauða. Þá fer vinátta
fortíðarinnar aftur að leika stórt
hlutverk.“
Vinátta sem fylgir
okkur alla ævi
Í nýrri skáldsögu, Vinkonum, segir Ragna Sigurðardóttir frá því hvernig
vinátta sem myndast á barns- og unglingsárum mótar okkur alla ævi.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Þriðja bókin í Boonsboro-þríleik Noru Roberts,
Vonarstjarna, kom út í vikunni. Líkt og fyrri bæk-
urnar gerist hún í smábænum Boonsboro og segir
frá ástum og örlögum Montgomery-bræðranna og
gistihúsinu sem fjölskylda þeirra á. Í þriðju bók-
inni er það hótelstýran sem laðast að yngsta bróð-
urnum, en áður gengu út eldri bræður hans. Við
sögu kemur líka húsdraugurinn Lizzy sem enn
þráir löngu horfinn elskhuga. Halla Sverrisdóttir
þýddi.
Taktu til í lífi þínu! heitir bók eftir Marie
Kondo og segir frá því hvernig beita megi að-
ferð sem hún nefnir KonMari til að ná tökum á
óreiðunni á heimilinu, fækka óþarfa hlutum og
skipuleggja heimilið svo að óreiðan skjóti ekki
upp kollinum að nýju. Marie Kondo er höf-
undur aðferðarinnar sem um ræðir og hefur
notið hylli víða um heim, bækur hennar hafa
selst metsölu og hún er eftirsóttur nám-
skeiðahaldari.
Taktu til í lífi þínu
Tvær nýjar bækur í bókaflokknum um
Freyju og Fróða komu út á dögunum. Bæk-
urnar eru eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur
og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og þriðja og
fjórða bókin í flokknum. Í fyrri bókinni,
Freyja og Fróði geta ekki sofnað, segir frá
því er illa gengur að koma systkinunum í
rúmið enda eru þau glaðvakandi og afar hug-
myndarík. Í Freyja og Fróði í klippingu er aftur á móti sagt frá því
þegar þau eru drifin í klippingu, en þeim líst ekki á blikuna.
Nýjar Freyju og Fróða bækur
Smámyndasmiðurinn segir frá því er hin 18 ára
Nella heldur til Amsterdam til að hefja nýtt líf
sem eiginkona vellauðugs kaupmanns. Morgun-
gjöf hans til Nellu er skáphús sem er líkan af
heimili þeirra og hún fær smámyndasmið til að
útbúa eftirmyndir heimilisfólks en húsbúnaðar-
munir smiðsins taka að spegla veruleikann á
geigvænlegan hátt. Þetta er fyrsta bók Jessie
Burton og hefur verið þýdd á 35 tungumál. Magn-
ea J. Matthíasdóttir þýddi á íslensku.
Dularfullar smámyndir
Það vakti athygli í byrjun
mars að huldukonan
Elena Ferrante var til-
nefnd til Alþjóðlegu
Booker bókmenntaverð-
launanna fyrir síðustu
bókina í Napolífjór-
leiknum, enda veit enginn
hver Ferrante er. Þegar
stuttlisti verðlaunanna
var svo kynntur í síðustu
viku var nafn hennar enn
á listanum.
Auk bókar Ferrante,
sem heitir The Story of
the Lost Child í enskri út-
gáfu, er bókin A Strange-
ness in My Mind eftir nób-
elsverðlaunahafann
Orhan Pamuk, sem hlotið
hefur þessi verðlaun áð-
ur, A General Theory of
Oblivion eftir angólska
rithöfundinn José Edu-
ardo Agualusa, sem hefur
einnig hlotið verðlaunin
áður, The Vegetarian eft-
ir suður-kóreska rithöfundinn Han Kang, A Whole Life eftir Austurríkis-
manninn Robert Seethaler og svo The Four Books eftir kínverska andófs-
manninn Yan Lianke, en hann komst líka á stuttlistann fyrir þremur árum.
Þess má geta að skáldsaga hans, sem var tuttugu ár í smíðum, var bönnuð í
Kína.
Kínverski rithöfundurinn Yan Lianke.
Ljósmynd/Georges Seguin (Okki)
Alþjóðlegur Booker
BÓKMENNTAVERÐLAUN
Lokaþáttur þríleiks
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**