Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Síða 53
Smáskífan sem var í efsta
sæti Billboard í þrjár vik-
ur. Moss er annar f.v.
Ronn Moss er mikið fyrir háls-
klúta og rúllukragaboli. Hann
tekur sig vel út í sólinni í LA
með rauðglerjuð sólgleraugu.
Frá árinu 1987 og allt til ársins 2012
hafði leikarinn Ronn Moss þann að-
alstarfa að túlka Ridge Forrester í
langlífu sápuóperunni The Bold
and the Beautiful. Árið 2012 hætti
hann leik í sápunni þótt persónan
Ridge Forrester sé alls ekki öll. Eft-
ir að Moss hætti var enginn Ridge í
þáttunum í tæpt ár en í desember
2013 kom nýr Ridge til skjalanna,
leikinn af Thorsten Kaye sem nú
túlkar hinn marggifta hönnuð og
yfirmann hjá Forrester tískuhús-
inu.
Sló Bee Gees við
Moss er fleira til lista lagt en að
leika í sápuóperum. Hann er fædd-
ur árið 1952 og hefur alið manninn
í Los Angeles alla tíð. Ellefu ára
gamall hóf hann að læra á tromm-
ur, gítar og rafmagnsbassa og upp-
úr tvítugu stofnaði hann ásamt
fleirum hljómsveitina Player.
Frægðarsól þeirrar sveitar reis
hæst á seinni hluta níunda áratug-
arins. Árið 1978 náði lag þeirra
„Baby Come Back“ í efsta sæti
Billboard listans og skaust uppfyrir
„How Deep Is Your Love“ með
Bee Gees. Sveitin átti nokkur önn-
ur lög sem náðu þokkalegum vin-
sældum.
Þegar Moss ákvað að snúa sér að
því að leika Ridge Forrester seint á
níunda áratug síðustu aldar hafði
hann minni tíma fyrir tónlistina og
yfirgaf sveitina Player. Bandið hafði
þó ekki sungið sitt síðasta og hafa
sumir upphaflegu meðlima hennar
komið saman í einhverri mynd síð-
astaliðna áratugi, þótt sveitin hafi
aldrei náð því flugi sem hún náði á
níunda áratugnum.
Moss hefur haft margt á prjón-
unum frá því að hann tók þá
ákvörðun að kveðja sápuóperuna
B&B árið 2012 eftir 25 ár í sama
hlutverki. Hann sagði raunar ekki
alveg skilið við heim sápunnar því
hann hefur leikið í belgísku sápu-
óperunni Familie frá því í fyrra.
Það gleðilega í brotthvarfi þessa
máttarstólpa Forrester-fjölskyld-
unnar úr heimi hinna Glæstu vona
(sem er íslenskt heiti sápunnar víð-
frægu) er auðvitað það að Moss
hefur nú meiri tíma fyrir tónlistina.
Hljómsveitin Player með Moss
innanborðs kom fram í sérstökum
hátíðarþætti af sápuóperunni
General Hospital í fyrra og flutti
þar sitt þekktasta lag, Baby Come
Back. Þar með voru Ronn Moss og
félagar úr Player komnir aftur.
Telja verður líklegt að tengsl
Moss við sápuheiminn hafi landað
þeim þessari endurkomu, en í kjöl-
farið fóru Moss og félagar í sitt
fyrsta tónleikaferðalag í áratugi.
Ronn Moss er þó með fleiri járn í
eldinum. Á vefnum www.ronnsga-
rage.com er hægt að horfa á þætti
sem hann, eins og nafnið gefur til
kynna, tekur upp í sínum eigin bíl-
skúr. Í þáttum Moss kennir ýmissa
grasa, samstarfskona hans Kelly
Lang kemur í heimsókn í skúrinn
og Moss tekur einlægt viðtal við
bleikhærðu söngkonuna Dilönu í
skúrnum líka! Fyrir þá sem syrgja
brotthvarf Moss af skjánum eru
þessir vefþættir kærkomnir. Þá er
vefsíða kappans, www.ronnmoss-
.com, mikil uppspretta upplýsinga
um það nýjasta hjá þessum fjöl-
hæfa leikara og tónlistarmanni.
eyrun@mbl.is
Ronn Moss með Katherine Kelly Lang sem hefur leikið Brooke
Logan frá 1987. Myndin er tekin árið 2010 þegar heimsmeta-
skrá Guinness útnefndi B&B vinsælustu sápuóperu heims.
HVAÐ VARÐ UM RONN MOSS?
Úr sápunni
í tónlistina
Susan Flannery lék Stephanie Forrester, móður Ridge, frá
1987 til 2012, jafnlengi og Moss. Enginn tók við hlutverki
hennar heldur var Stephanie látin deyja í þáttunum.
Ridge hefur ekki yfirgefið B&B
þótt Moss sé hættur. Thorsten
Kaye leikur hinn nýja Ridge.
Tónlistarferill Moss
gengur nú í endurnýj-
un lífdaga eftir farsæl-
an sápuóperuferil.
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2016
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánud. 25. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
29. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
Íslandsmótið í Pepsí-deild karla í knattspyrnu sumarið 2016.
ÚTVARP Tónlistarþátturinn Skúrinn á Rás 2 og Gamla
bíó heiðra bílskúrsbandamenningu þjóðarinnar með
tónleikaröð sem hefst fimmtudaginn 5. maí.
Tónleikarnir verða þrennir og hljómsveitirnar, sem
stíga á svið, eiga það sameiginlegt að hafa flutt tónlist
sína í Skúrnum. Skúrinn er grasrótartónlistarþáttur þar
sem leikin er tónlist ungra og efnilegra íslenskra hljóm-
sveita. Margar af hljómsveitunum sem hafa leikið í
Skúrnum hafa síðar slegið í gegn. Á fyrstu tónleikunum
leikur Sykur ásamt Kviku og Par-Ðar. Kiriyama Family
leikur á öðrum tónleikunum, 15. september, og Ylja á
þeim þriðju, 16. febrúar 2017. Allir tónleikarnir verða
fluttir í beinni útsendingu á Rás 2 og hefjast kl. 22. Miða-
sala á tónleikana verður á midi.is.
Bílskúrsböndin heiðruð
Sykur spilar dansvæna,
rafræna popptónlist.
Ljósmynd/RÚV
TÓNLIST Plötuútgáfan Falk og Plútó
kynnir Opal Tapes Showcase á Paloma
bar á laugardaginn 16. apríl. Þar munu
koma fram tónlistarmenn sem eru á mála
hjá Opal Tapes, en það er vel þekkt
snælduútgáfufyrirtæki í Evrópu í dag.
Báðar hæðir Paloma bar verða lagðar
undir þennan einstaka viðburð. Lista-
mennirnir fjórir sem koma þar fram eru
þau J.Albert og Patricia frá Bandaríkj-
unum og Basic house og Manse frá Bret-
landi. Auk þeirra munu íslensku plötu-
snúðarnir Gunnar Ewok, Frank Honest,
Tandri og Nærvera þeyta skífum.
Tónlistarmenn Opal Tapes á Paloma
Tónlistin mun óma
um Paloma á
laugardagskvöld.