Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Qupperneq 56
SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Natuzzi Ítalía Capriccio Model 2896
Lengd 195 cm. Áklæði ct.70. Verð 275.000,-
▲
Natuzzi Italia Borghese Model 2826
Lengd 220 cm. Leður ct.15. Verð 515.000,-
▲
Natuzzi Italia Quadro Model 2849
Lengd 200 cm. Leður Ct.10. Verð 475.000,-
Lengd 167 cm. Leður Ct.10. Verð 435.000,-
▲
▲ Natuzzi Italia Duse Model 2829
Lengd 206 cm. Áklæði ct.83. Verð 399.000,-
Flottir sófar í
Þar sem hönnun og gæði fara saman
Natuzzi
Það hefur varla farið fram hjá neinum að það virðist sem meðalaldur-
inn á Facebook hafi lækkað um nokkra áratugi en fólk hefur tekið
upp á því að setja inn barnamynd af sér í tilefni af barnamenning-
arhátíð sem verður í næstu viku. Harpa Rut Hilmarsdóttir, verk-
efnastjóri Barnamenningarhátíðarinnar segir að hugmyndin hafi
kviknað á fundi. „Nú verða allir börn næstu daga. Að finna barnið í
sér. Þannig að ég tók af skarið og setti inn barnamynd af mér,“ segir
Harpa og áður en hún vissi af voru allir farnir að „yngja“ sig upp.
Hátíðin verður sett þriðjudaginn 19. apríl í Hörpu þegar þúsundir
nemenda fjórða bekkjar munu stíga á stokk og frumflytja nýtt lag
ásamt Polla Pönk. Hátíðin stendur yfir í sex daga og verður ýmislegt
í boði. „Það er líka lögð mikil áhersla á þátttöku barna og unglinga.
Það verða smiðjur og vinnustofur út um alla borg,“ segir Harpa Rut
en dagskrána má finna á barnamenningarhatid.is. asdis@mbl.is
Að finna barnið í sér
Barnamyndir fylla nú Facebook. Ástæðan
er barnamenningarhátíð sem stendur yfir
dagana 19.-24. apríl í Reykjavík.
Margir þekktir Íslendingar hafa „yngt sig“ upp á Facebook í tilefni af barnamenningarhátíðinni. Leikararnir Ilmur
Kristjánsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Brynhildur Guðjónsdóttir eru meðal þeirra.
Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri
Barnamenningarhátíðar.
„Gysisnefnd ávað á fundi að
láta hverinn gjósa einu sinni í
viku og hefur verið talað um
sunnudag í því sambandi.
Geysir er frægt náttúrufyrir-
brigði og það er kynslóð íslend-
inga, sem hefur aldrei séð
Geysi gjósa,“ sagði Guðmundur
Pálmason
jarðeðlisfræðingur í Morgun-
blaðinu 23. júní 1982. Guð-
mundur átti sæti í Geysisnefnd
og var þarna var inntur eftir því
hvort framhald yrði á því að
láta Geysi gjósa á sunnudögum,
„en síðastliðinn sunnudag stóð
Geysisnefnd fyrir því að sett
var sápa í hverinn og gaus hann
þá myndarlegu gosi,“ eins og
sagði í blaðinu.
Guðmundur var spurður um
það, hvort honum fyndist
ekki að með þessu væri verið
að óvirða þetta fræga náttúru-
fyrirbrigði?
„Þetta er alltaf matsatriði,
en það er lítið gagn að Geysi ef
enginn fær að sjá hann gjósa,
það var því álit Geysisnefndar
að stefna bæri að því að fólk
gæti séð Geysi gjósa öðru
hverju.“ Sagði hann umsjónar-
mann Geysissvæðisins myndu
sjá um að setja sápu í hverinn.
GAMLA FRÉTTIN
Sápugos
í Geysi
Ferðamenn við Geysi, samnefnara fyrir aðra goshveri heimsins.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
David Guetta, franskur plötu-
snúður og tónlistarframleiðandi.
Róbert „Robbie“ Sigurðsson,
íslenskur landsliðsmaður í íshokkí.
Luka Modric, króatískur landsliðs-
maður í knattspyrnu.