Orð og tunga - 01.06.2012, Page 10

Orð og tunga - 01.06.2012, Page 10
Orð og tunga viii doktorsnemi við Háskóla Islands, sagði frá gerð Islcnsks merkingarbrunns, þeim vélrænu aðferðum sem þar er beitt og markmiðum verkefnisins en merkingarbrunnurinn er einkum ætlaður til nota við ýmis máltæknileg úrlausnarefni, þ.e.a.s. hann er ætlaður vélum fremuren fólki. Loks fjallaði ]ón Hilmar Jónsson, rannsóknarprófessor viðStofnun Arna Magnússonar í íslenskum fræðum, um Islenskt orðanet sem hann og Þórdís Ulfarsdóttir hafa unnið að um árabil. Sjónarhornið í því verkefni er fyrst og fremst orðabókarfræðilegt, aðferðir um margt ólíkar þeim sem viðhafðar eru í verkefni Onnu og megintilgangurinn annar. Greiningin fer í miklu ríkari mæli fram í höndunum, ef svo má segja, og markmiðið er ekki síst að birta lifandi notendum ýmiss konar merkingarleg og formleg vensl orða og orðasambanda. Málstofunni lauk með pallborðsumræðum þar sem fyrirlesarar brugðust við erindum hver annars og áheyrendum gafst kostur á að bera fram fyrirspumir og athugasemdir. Á grundvelli erinda sinna og þeirra umræðna sem á eftir fylgdu hafa fyrirlesararnir nú samið greinar sem eru uppistaðan í þessu hefti. I sameiningu gefa þær áhugaverða innsýn í það rannsóknar- og þróunarstarf sem nú fer fram við greiningu á merkingu og merkingarvenslum íslenskra orða og orða- sambanda og með grein Matthew Whelpton eru íslensku verkefnin sett í samhengi við það sem verið er að gera og gert hefur verið annars staðar. Auk þemagreinanna þriggja eru í heftinu þrír ritdómar um nýleg verk á sviði tímaritsins. Anna Helga Hannesdóttir, dósent við Gautaborgarhá- skóla, fjallar um nýja útgáfu á orðabók frá 17. öld, Specimen Lexici Runici eftir séra Magnús Olafsson í Laufási sem kom útí ritröðinni Orðfræðiritjyrri ahia. Þá fjallar Ásgrímur Angantýsson, lektor við Háskólann á Akureyri, um Handbók í íslensku sem kom út á síðasta ári og loks fjallar Veturliði G. Óskarsson, dósent í Uppsölum, um ritröðina Moderna importord i sprdka i Norden þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum samnefndrar rannsóknar á nýlegum aðkomuorðum í norðurlandamálum en í dómnum horfir hann einkum til þeirra bóka og bókarkafla sem fjalla um íslensku. Að vanda eru svo í heftinu bókafregnir þar sem sagt er í stuttu máli frá nokkrum nýjum og nýlegum verkum sem vakið gætu áhuga lesenda, þ. á m. einni orðabók, íslex orðabókinni, sem er sérstaklega samin til vef- birtingar og því ekki bók í hefðbundnum skilningi. Loks eru sagðar fréttir af nýliðnum og væntanlegum ráðstefnum sem tengjast fræðasviði tíma- ritsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.