Orð og tunga - 01.06.2012, Side 50

Orð og tunga - 01.06.2012, Side 50
40 Orð og tunga 2 Askorun um endurmat orðabókarlýsingar Rafræn birting orðabókargagna og sú gagnavinnsla sem þar er að baki hefur á margvíslegan hátt breytt forsendum og aðstæðum orða- bókargerðar og losað um ýmsar hömlur við mótun og framsetningu orðabókarlýsingar. Frá sjónarmiði orðabókarnotenda virðist augljóst hagræði að því að geta farið beinustu leið að því orði sem athuga skal, tilgreina einfaldlega ritmynd orðs án þess að huga að stöðu þess í stafrófsröð með öðrum orðum eins og löngum hefur þurft. Frá sjónar- miði orðabókarhöfundar fela þær aðstæður líka í sér verulegt hagræði. Þar skiptir mestu að orðabókarlýsingin er ekki bundin endanlegum búningi frá upphafi, bæta má við nýjum orðum og efnisþáttum og endurskoða og lagfæra lýsinguna á öllum stigum verksins. I samanburði við orðabækur í prentuðum búningi eru meginum- skiptin þau að viðhafa má einfaldari og frjálsari efnisskipan, þar sem einingar orðabókartextans eru í minna mæli háðar og undirskipaðar öðrum einingum. Um leið gefst kostur á margs konar tengingum og vísunum jafnt innan textans sem út fyrir hann, sem dýpka lýsinguna og bregða upp nýjum sjónarhornuin (sjá nánari umfjöllun hjá Trap- Jensen 2008). Það gefur m.a. færi á að skoða samstæðar heildir innan orðaforðans betur og nánar en áður og draga fram heillega mynd af efnisþáttum sem löngum hafa birst á brotakenndan hátt í lýsingu einstakra orða. S\'o að þetta sjónarmið fái notið sín verður að endurskoða og um- breyta þeirri efnisskipan sem ráðið hefur ferðinni í prentuðum orða- bókum. Við almennustu og víðtækustu lýsingu orðaforðans hafa formbundnir eiginleikar orðanna (flettiorðanna) jafnan verið lagðir til grundvallar þar sem merkingarlegur breytileiki og margræðni er með í för, með viðeigandi skiptingu í merkingarliði o.s.frv. Sú efnis- skipan á ekki við þegar innbyrðis vensl og samstætt orðafar er til at- hugunar. I stað þess þarf lýsingin í auknum mæli að beinast að merk- ingarbundnum eiginleikum orðanna, þar sem hver fletta er merk- ingarlega einræð. Með því móti verður merkingarþátturinn virkur til flokkunar orðaforðans og getur kallast á við málfræðileg einkenni orðanna (t.d. orðflokk) eða formbúning þeirra (sjá einnig Jón Hilmar Jónsson 2009a: 259-262). Merkingarlegt sjálfstæði snýr ekki aðeins að stökum orðum. Þar eiga merkingarbær orðasambönd einnig hlut að máli. I almennum orðabókum hefur lýsingu orðasambanda á ýmsan hátt verið þröngur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.