Orð og tunga - 01.06.2012, Page 53
]ón Hilmar Jónsson: Að fanga orðaforðann
43
tveimur erlend-íslenskum orðabókum, Dansk-íslenskri orðabók (1992)
og Ensk-íslensku orðabókinni (2006). Alls er hér um að ræða um 26.000
jafnheitasamstæður (með tveimur eða fleiri jafnheitum). Jafnt þetta
efni sem efni talmálsskrárinnar veitir víða mikilvægan vitnisburð
sem hingað til hefur aðeins verið nýttur að litlu leyti. I því sambandi
er rétt að hafa í huga að hér er að nokkru á ferðinni annars konar
orðafar en í megingögnunum. I talmálsefninu fer mikið fyrir sjald-
gæfum og oft staðbundnum orðum sem lítið ber á í rituðum heimild-
um. Meðal jafnheitanna hefur andspænið við erlend orð aftur á móti
sín áhrif og þar ber meira á nýyrðum og lausmótuðu orðafari en í
megingögnunum.
4 Viðfangsefni og markmið
Eins og fram hefur komið er markmiðið með orðanetinu að rekja og
greina merkingarvensl innan orðaforðans með áherslu á samheiti og
hugtakavensl og láta setningarleg og orðmyndunarleg vensl vísa veg-
inn í því efni. Viðfangsefnið er m.a. í því fólgið að móta viðeigandi
efnisskipan og finna orðanetinu umgjörð og birtingarmynd við hæfi.
Gagnaefnið er vitaskuld margþættara en svo að það eigi allt beint
erindi við almenna notendur, og vinnugrunnur orðanetsins, sem gefið
var nafnið Þcsárus, snýr fyrst og fremst að þeim sem vinna við grein-
inguna og aðra þætti verksins. En til þess að koma verkinu á framfæri
og opna aðgang að greiningunni var ákveðið að orðanetið ætti sérstaka
vefsíðu, ordanet.is, þar sem það kæmi fram í orðabókarbúningi og
auðvelt væri að leita og svipast um. Um vefsíðuna og innihald hennar
verður fjallað nánar í 7. kafla en afmörkun þess sem þar birtist getur
verið rúm eða þröng eftir atvikum. Akvörðun í því efni snýst ekki síst
um það hvort eða að hvaða marki orðasambandagögnin sem liggja
greiningunni til grundvallar eigi að vera sýnileg á yfirborðinu eða
hvort merkingarþátturinn og merkingarvenslin séu höfð í fyrirrúmi.
Hér var síðari leiðin valin en tekið skal fram að birtingarmyndin er enn
í mótun og getur breyst í samræmi við framvindu greiningarinnar.
Sé viðfangsefni orðanetsins skilgreint með hliðsjón af hefðbundn-
um orðabókartegundum má segja að það spanni þau hlutverk sem
samheita- og hugtakaorðabókum er ætlað að gegna. Sá munur er
þó á að hér eru þessi hlutverk samofin og markmiðið er að varpa
skýrara og breytilegra ljósi á merkingarlega stöðu einstakra flettna í