Orð og tunga - 01.06.2012, Side 64

Orð og tunga - 01.06.2012, Side 64
54 Orð og tunga flokkunar. Önnur og beinni aðgerð er að skipa saman skyldum flettum undir tiltekna gagnategund í gagnagrunni orðanetsins. Meðal slíkra gagnategunda eru Samheiti, Skyldheiti (merkingarskyldar flettur sem ekki ná því að teljast samheiti (sbr. e. near-synonyms)), Andiieiti og Merking, en síðastnefnda tegundin sameinar heila merkingarflokka undir viðeigandi fyrirsögn. Oft er erfitt að dæma um samheiti því skyldleikastigið er mismunandi og ýmsir aðgreinandi þættir hafa þar áhrif, orðin geta tilheyrt ólíkum tíma og samfélagsgerð, haft ólíkt stílgildi o.s.frv. Huglægt mat og innsæi þess sem greinir ræður því hvernig greint er og þá fer ekki hjá því að nokkurs ósamræmis gæti. Með það í huga eru tvær skyldar gagnategundir í boði þegar meta skal samheitakennt orðafar. Greining á merkingarvænslum á þann hátt sem hér var lýst tekur jafnt til orðasambanda, samsetninga og orðhluta. í efni flettunnar hlát- ur má m.a. greina eftirtalin samheiti: hláturgjarn, hláturmildur; galsa- hlátur, gáskahlátur; holur [hlátur], tómlegur [hlátur]; vera að springa úr hlátri, vera að rifna úr hlátri, verða vitlaus í hlátri; hviða, roka. Aðrar sam- stæður bera fremur svip skyldheita: hálfkæfður [hlátur], krampakenndur [hlátur]; dillandi [hlátur], galopinn [hlátur]; hlátur, fliss. Þá má einnig greina andheiti: glaðvær [hlátur] - gleðisnauður [hlátur]; hávær [hlátur] - lágvær [hlátur]. Loks má tengja saman flettur undir fyrirsögnum innan tegundarinnar Merking: hlátur, hlæja, springa af hlátri (und- ir hlátur); aðhlátur, Itafa <hann, hana> að hlátri, verða að hlátri (undir aðhlátur); kuldahlátur, hlæja kuldahlátri, hlæja kalt (undir kuldahlátur). Greining á efni annarra flettna á svo sinn hlut að því að byggja upp þær samstæður sem hér hafa myndast. 6.2 Merkingarflokkun og samheiti Merkingarflokkun flettnanna tekur enn sem komið er að mestu til sagnaflettna en þar er greiningin í Orðaheimi höfð til fyrirmyndar svo langt sem hún nær. Þorri sagnaflettnanna hefur verið flokkaður og flokkun nafnorðaflettna er komin nokkuð á veg. í stað þess að byggja upp fast og stigveldisbundið kerfi merkingarflokka eins og sterkust hefð er fyrir í hugtakaorðabókum (sbr. m.a. Roget's Thesaurus ofEnglish Words and Phrases (1988) og orðabók Dornseiffs, Der deutsche Wortschatz nach Sachgruppcn (2004)) er farin sú leið að láta tengsl flokkanna endurspeglast í skörun þeirra í milli og viðeigandi millivísunum. Ein-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.