Orð og tunga - 01.06.2012, Side 66

Orð og tunga - 01.06.2012, Side 66
56 Orð og tunga skyni. Með markvissri leit að orðapörum í textum þessara safna hefur fjöldi þeirra stóraukist og gildi gagnategundarinnar aukist að sama skapi í orðanetinu. Til þessa hefur megináherslan verið lögð á nafnorð en orðapörin hafa einnig augljóst gildi gagnvart lýsingarorðum og raunar einnig gagnvart sögnum. Með því að rekja orðapör með einstökum orðum er greinilega farið inn á slóð samheita og í vænu safni slíkra sambanda er jafnan að finna samstæð orð af því tagi, sumpart orð sem eiga við orðið sem rakið er út frá en ekki síður meðal orða sem það dregur til sín. Orðapör sem rakin eru út frá flettunni hlátur skila t.d. samheitunum gamansemi og spaugsemi, og hávaði og skarkali ná saman á sama hátt. Málnotkunarlegt gildi orðapara virðist ekki síst í því fólgið að skerpa og auðga myndina af því sem er til umræðu eða umsagnar og gefa því viðeigandi merkingarblæ. En inntak og eðli þess sem við er átt getur líka verið samsett og þá tjáir orðaparið náið samband þeirra orða sem í hlut eiga. Þetta skýrir að einhverju leyti þá gífurlegu fjölbreytni og þann mikla fjölda orðapara sem einstök orð reynast eiga hlut að í textadæmum fyrrgreindra safna. Þar eru ekki aðeins á ferðinni samheiti heldur skilar dæmasafnið víða drjúgum skerf og jafnvel nýjum orðum inn í einstaka merkingarflokka. Af þessum sökum hefur flettuforði orðanetsins aukist að mun, m.a. með fleiryrtum nafnliðaflettum eins og áður er getið. Gildi orðapara sem vitnisburðar um notkunar- og merkingarvensl kemur fram í því að á vefsíðu orðanetsins eru þau tilgreind við einstakar flettur notendum til glöggvunar. Sem gagnategund í greiningunni reynast þau svo hafa undirstöðugildi þegar kemur að því að meta það sem orðanetinu var m.a. ætlað að vitna um, hvernig skyldleikastigi flettnanna er háttað og hvort greina megi á milli samheita með tilliti til þess. 6.4 Mat á merkingarskyldleika Gerð orðanetsins hvílir eins og áður segir á þeirri meginhugmynd að merkingarvensl megi rekja út frá venslum orða í orðasambön- dum og samsetningum. Þá er nærtækt að líta svo á að styrkur merk- ingarvenslanna, merkingarleg nálægð eða skyldleikastig flettnanna hverrar gagnvart annarri, komi fram í því hversu oft og víða um er að ræða formvensl við sömu orð. En hafa verður í huga að fletturnar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.