Orð og tunga - 01.06.2012, Side 73

Orð og tunga - 01.06.2012, Side 73
Jón Hilmar Jónsson: Að fanga orðaforðann 63 Eins og ráða má af heiti greinarinnar er litið á gerð orðanetsins sem beint framlag til endurmótunar almennrar orðabókarlýsingar í samræmi við þær nýju forsendur sem rafræn gagna- og textavinnsla hefur skapað. í stað þess að afmarka fjölda flettiorða og beina lýsing- unni að einkennum hvers flettiorðs fyrir sig er tekist á við orðaforðann í heild sinni með áherslu á innbyrðis samhengi og vensl. Lýsing á samheitum og öðrum merkingarskyldleika annars veg- ar og orðasamböndum hins vegar hefur ekki átt greiða samleið í hefðbundnum orðabókum. Hér kallast þetta tvennt á og orðasam- bandaefnið myndar uppistöðuna í merkingargreiningunni. Um leið taka merkingarbær orðasambönd sér stöðu sem sjálfstæðar flettur og flettulistinn umbreytist í safn merkingarlega einræðra flettna. Orðabókarlýsing af þessu tagi á sér engin skýr takmörk og hún verður því fyllri því meira efni sem tiltækt er til greiningar. Meðal þess sem greiningin sýnir fram á er hversu virk orðin eru í setning- arlegum og merkingarlegum venslum og þá virkni má bera að öðrum mælikvörðum á gildi orða innan orðaforðans, svo sem tölulegum upplýsingum um tíðni í rituðum textum. Gagnvart hlutverki samheitaorðabókar er meginnýjungin fólgin í því að geta metið skyldleika tiltekinnar flettu við merkingarskyldar flettur með hliðsjón af setningarlegum venslum og styrkja með því þá samheita- og hugtakaflokkun sem byggð er á liuglægu mati. Með þessu sameinast ólík orðabókarhlutverk í samstæðri heild sem mikilvægt er að hafa yfirsýn um þegar staðnæmst er við lýsingu einstakra orða og gerð er grein fyrir breytileika þeirra í merkingarlegu og setningarlegu samhengi. Þá kemur m.a. í ljós hvaða merkingar- brigði eru virkari en önnur. Um leið skilar greiningin mikilvægum gögnum til margs konar athugana á íslenskum orðaforða, til annarra orðabókarverkefna og margs sem þar er við að fást. Það á meðal annars við um gerð merkingarskýringa, þar sem lengi hefur verið þörf á betri undirstöðugögnum. Ritaskrá Anna Björk Nikulásdóttir og Matthew Whelpton. 2010. Lexicon Acquisition through Noun Clustering. LexicoNordica 17:141-161. Dornseiff, Franz. 2004. Der deutsclie Wortsclmtz nach Sachgruppen. 8., völligneu bearbeitete und mit einem vollstándigen alphabetischen Zugriffsregister versehene Auflage von Uwe Quasthoff. Berlin: Walter de Gruyter.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.