Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 5
5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Aðeins brot af þeim lífverum
sem berast þannig langt frá heim-
kynnum sínum lifir flutningana af
og enn færri tegundir þrífast við þau
lífsskilyrði sem eru til staðar á nýja
staðnum.9,10 Mörg dæmi eru þó um
að aðfluttum tegundum vegni betur
á nýja staðnum en í náttúrulegum
heimkynnum sínum. Oftast er þá
ekki að finna neina náttúrulega óvini
sem hugsanlega gætu haldið tegund-
inni í skefjum á nýja staðnum11 og
geta aðfluttu tegundirnar þá orðið
ágengar. Ágeng telst sú framandi
lífvera sem veldur skaða í vistkerfi
eða er skaðleg heilsufari manna eða
veldur efnahagslegu tjóni (sbr. skil-
greiningu Alþjóða-náttúruverndar-
samtakanna, IUCN). Skaðinn getur
verið smávægilegur en einnig mjög
alvarlegur. Mörg ár, jafnvel áratugir,
geta liðið þar til hægt er að meta
áhrif aðfluttra tegunda á lífríkið.9
Ekki verða allar framandi sjávar-
lífverur ágengar og er erfitt að spá
fyrir um við hvaða aðstæður það
gerist. Miklu skiptir magn innfluttra
lífvera og hversu oft þær berast,
einnig hvort hið nýja umhverfi er
svipað því upprunalega, og hvort
um náttúrulega óvini er að ræða í
hinum nýju heimkynnum. Til að
meta hvort líklegt sé að viðkomandi
tegund verði ágeng getur verið gott
að athuga hvernig tegundinni hefur
vegnað annars staðar þar sem hún
hefur verið flutt inn.
Í núverandi umfjöllun telst
framandi tegund sem ekki er vitað
hvort hafi áhrif á lífríkið, vera
„mögulega ágeng“, ef hún hefur alla
burði til að verða ágeng og á sér
sögu um ágengni annars staðar frá.
Á undanförnum áratugum hefur
fundist fjöldi tegunda í strand-
sjónum við Ísland sem ekki voru
þekktar hér áður.12,13,14 Oft er erfitt
að meta hvort um er að ræða nýja
landnema eða hvort auknar rann-
sóknir valda því að fleiri tegundir
finnast. Sé um að ræða nýja land-
nema getur einnig verið erfitt að
segja til um hvort þeir hafa borist
hingað með náttúrulegum hætti,
t.d. í kjölfar breyttra umhverfisað-
stæðna af náttúrulegum orsökum
sem gera þeim kleift að nema land
á nýjum slóðum, eða hafa borist
hingað beint eða óbeint af manna-
völdum. Við slíkt mat er gagnlegt
að skoða útbreiðslusögu tegund-
anna, t.d. hvort þær eru upprunnar
á fjarlægum hafsvæðum, og líklegt
að þær hafi dreifst af mannavöldum.
Í þessari samantekt er fjallað
um allar tegundir framandi sjáv-
arlífvera sem fundist hafa í strand-
sjónum við Ísland og taldar eru
hafa borist hingað af mannavöldum.
Þessar tegundir hafa ýmist fundist
hér ítrekað og/eða í miklu magni og
teljast því hafa tekið sér bólfestu hér
við land. Að því er virðist lifa flestar
þessara framandi tegunda hér án
þess að hafa neikvæð áhrif á lífverur
sem fyrir eru. Sumar tegundirnar
eru hins vegar ágengar eða gætu
orðið það. Útbreiðslu tegundanna
við landið er lýst, líklegum flutn-
ingsleiðum, og áhrifum á lífríkið.
Til frekari fróðleiks er lesendum
bent á ágætt yfirlit um framandi
og ágengar tegundir í greinum
sem birst hafa nýlega í Náttúru-
fræðingnum.15,16
Svifþörungar
Heterosigma akashiwo (Y. Hada)
Y. Hada ex Y. Hara & M. Chihara
Í maí 1987 varð mikill laxadauði í
eldiskvíum í Hvalfirði. Á sama tíma
varð vart við blóma svifþörungs-
ins Heterosigma akashiwo (1. mynd)
og var talið að hann hefði valdið
fiskadauðanum.17 Þetta er í eina
skiptið sem þessi tegund hefur
fundist hér við land. Hugsanleg
skýring er að tegundin hafi borist
til landsins um þetta leyti, e.t.v. með
kjölfestuvatni, skilyrði verið hag-
stæð fyrir hana þá og hún fjölgað
sér mikið. Hún hafi síðan ekki lifað
af þau skilyrði sem henni voru búin
það sem eftir var ársins, eða lagst
í dvala. H. akashiwo er algeng við
strendur Evrópu og er ekki ólíklegt
að hún geti blómstrað hér aftur.
Tegundin barst sennilega af
mannavöldum úr Kyrrahafi í Norð-
ur-Atlantshaf18 þar sem hún hefur
fundist víða og oft valdið tjóni í fisk-
og skeldýraeldi. Hér á landi verður
tegundin að teljast hafa verið ágeng.
Stephanopyxis turris (Greville
& Arnott) Ralfs
Kísilþörungurinn Stephanopyxis turris
(2. mynd) fannst fyrst hér við land
sumarið 1997. Hann fannst í sýnum
úr Hvalfirði.19,20 Margar athuganir
höfðu verið gerðar á svifþörungum
í Hvalfirði og í Faxaflóa allt frá alda-
mótunum 1900 án þess að tegundin
hefði fundist. Síðan tegundin fannst
fyrst hefur hún oft fundist í Hvalfirði
í þónokkrum þéttleika. Við teljum
því líklegt að hún hafi borist inn á
svæðið af mannavöldum skömmu
áður en hún fannst þar fyrst. Á seinni
árum hefur S. turris fundist víða í
Faxaflóa og í Breiðafirði og hefur
að öllum líkindum borist þangað
úr Hvalfirði. Náttúruleg heimkynni
tegundarinnar eru á strandsvæðum
við Evrópu og við austurströnd
Norður-Ameríku.
1. mynd. Svifþörungurinn Heterosigma
akashiwo. Ljósm./Photo: Wenche Eikrem og
Jahn Throndsen.
2. mynd. Svifþörungurinn Stephanopyxis
turris. Ljósm./Photo: Karl Gunnarsson.