Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 20
Náttúrufræðingurinn
20
Umræða
Mosadýr fundust á öllum svæðum
sem til rannsóknar voru, þ.e. í 14
stöðuvötnum og 8 ám. Það bendir
sterklega til að þessi hópur dýra sé
algengur í íslensku ferskvatnsvist-
kerfi. Alls fundust fjórar tegundir
mosadýra, Plumatella repens, P. fun-
gosa, Fredericella sultana og Crista-
tella mucedo. Þrátt fyrir takmark-
aðar rannsóknir á íslenskum mosa-
dýrum hefur áður verið greint frá
tilvist allra þessara tegunda á Ís-
landi. Flestar heimildirnar eru þó
komnar til ára sinna og sumar
hverjar ekki mjög afgerandi hvað
tegundagreiningu varðar. F. sultana
hefur áður fundist í Neðra-Selvatni
við Vatnsfjörð í Ísafjarðardjúpi, í
tjörn við Arngerðareyri við Ísa-
fjarðardjúp og í Þingvallavatni.12 Í
sömu heimild er greint frá tilvist
dvalarblasta C. mucedo í Mývatni,
þótt dýrið sjálft hafi þá ekki fund-
ist. Árið 1969 fannst tegundin P.
fungosa í Mývatni13 og árið 1972 í
ánum Laxá og Kráká á vatnasviði
Mývatns.14 Nýjasta rannsóknin var
gerð í Urriðakotsvatni við Hafnar-
fjörð árið 1981 en þá var líffræði
mosadýra í vatninu rannsökuð og
greint frá tegundinni P. repens.15 Ein
tegund að auki, Hyalinella punctata,
sem ekki fannst nú, hefur fundist
hérlendis og er það jafnframt fyrsta
heimild um mosadýr hér á landi.11
Tegundin fannst í tjörn 2 km vestan
við Reykjavík. Líklega er hér um að
ræða Bakkatjörn á Seltjarnarnesi.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar eru P. repens og F.
sultana algeng mosadýr í íslensku
ferskvatni. Það fyrrnefnda fannst í
öllum vötnum og ám sem til rann-
sóknar voru og það síðarnefnda alls
staðar nema í Hraunvatni á Skaga,
eða á ríflega 95% rannsóknarsvæða.
P. fungosa virðist einnig talsvert
algeng en hún fannst í þremur
stöðuvötnum og tveimur ám, þ.e. á
23% svæða sem til skoðunar voru. C.
mucedo fannst einungis á einum stað
í Elliðavatni (4,5% svæða), og virðist
ekki eins algeng.
Allar tegundir mosadýra sem
fundist hafa á Íslandi til þessa eru
vel þekktar í öðrum Evrópulöndum
og sumar tegundir víðar. Líkt og í
þessari rannsókn er F. sultana algeng
um allan heim, líka á norðlægum
slóðum. Í Noregi finnst hún allt frá
syðsta hluta landsins og norður fyrir
70. breiddargráðu.2,3,30,31,32,33 Þrátt
fyrir nokkuð almenna útbreiðslu
tegundarinnar í Noregi fannst hún
einungis í 72 af 601 vatnasvæðum,
eða 12% þeirra sem skoðuð voru.
Rannsóknir sýna að tegundin þrífst
illa á mjög lygnum svæðum, þar sem
hætta er á gruggmyndun, en vel þar
sem straumur er hæfilegur.3,33 Þá er
dreifing hennar til nýrra búsvæða
takmörkunum háð sökum þess að
tegundin myndar ekki flotblasta.
Dreifingarformin berast því mun
styttra frá upprunastað meðan flot-
blastar annarra tegunda fljóta með
straumi og geta þannig borist víða.3
Dreifing tegundarinnar í Vífilsstaða-
vatni og Hafravatni var í samræmi
við þetta. Hún var almennt nokkuð
staðbundin og þéttleikinn mestur
í straumi við útfall stöðuvatnanna.
Tegundin var þó mun útbreiddari
í Hafravatni en Vífilsstaðavatni (3.,
4. og 5. mynd) sem líklega helgast
af því hve ólík vötnin eru. Vífils-
staðavatn er mjög grunnt og grugg-
myndun því tíð þegar vind hreyfir
en Hafravatn mun dýpra og þar af
leiðandi minni hætta á gruggi.
P. repens var algengasta tegundin
sem fannst í rannsókninni og var
sem fyrr greinir í öllum ám og
vötnum sem til rannsóknar voru.
Auk þess var útbreiðslan almenn
innan bæði Vífilsstaðavatns og
Hafravatns, ólíkt F. sultana. Það
1. tafla. Stöðuvatn og ár sem til rannsóknar voru, tími sýnatöku og tegundir sem fundust á
hverjum stað. – Lake/river where bryozoans were searched, time of sampling and the species
found at each sites.
Tegundir mosadýra – Bryozoan species
Stöðuvatn / á
Lake / river
Tími sýnatöku
Sampling date
Pluma-
tella
repens
Pluma-
tella
fungosa
Frederi-
cella
sultana
Cristatella
mucedo2012
Hafravatn júlí X - X -
Vífilsstaðavatn júlí X - X -
Álftavatn ágúst X - X -
Bretavatn ágúst X X X -
Elliðavatn júlí X - X X
Eyrarvatn ágúst X - X -
Geitabergsvatn ágúst X - X -
Helluvatn júlí X - X -
Hlíðarvatn ágúst X X X -
Hraunvatn júní X - - -
Leirvogsvatn ágúst X - X -
Meðalfellsvatn ágúst X - X -
Mývatn september X X X -
Þórisstaðavatn ágúst X - X -
Elliðaár ágúst X - X -
Hólmsá ágúst X - X -
Korpa júlí X - X -
Laxá í Aðaldal september X X X -
Laxá í Leirársveit ágúst X - X -
Mýrarkvísl september X X X -
Suðurá ágúst X - X -
Vífilsstaðalækur júlí X - X -
Alls/Total 22 5 21 1