Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 74

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn 74 Inngangur Dýrafjörður er langur og breiður fjörður á norðanverðum Vest- fjörðum. Árið 1991 var fjörður- inn þveraður. Áður höfðu verið gerðar umfangsmiklar rannsóknir á náttúru fjarðarins. Þar á meðal voru fuglar athugaðir árið 19791 í tengslum við athuganir í Önundar- firði og 1984–19852 voru gerðar vistfræðilegar rannsóknir á fuglalífi Samanburður á fjöru- og botndýralífi fyrir og eftir þverun Dýrafjarðar Þorleifur Eiríksson, Böðvar Þórisson og Guðmundur Víðir Helgason Dýrafjörður á norðanverðum Vestfjörðum var þveraður árið 1991. Árið 1985, eða nokkru áður en framkvæmdir hófust, voru gerðar þar umfangs- miklar vistfræðirannsóknir, meðal annars á hryggleysingjum í leirum, fjörum og á botni fjarðarins. Þessar rannsóknir voru endurteknar á árunum 2006–2007 með sömu aðferðum og notaðar voru í fyrri rannsóknum. Hér eru niðurstöður þessara tveggja rannsóknatímabila bornar saman. Birt eru meðaltöl um fjölda einstaklinga af ákveðnum tegundum eða dýrahópum af fjörusniðum og botnsvæðum og borin saman við tölur af samsvarandi svæðum í fyrri rannsóknum. Jafnframt er reiknuð fjölbreytni á mismun- andi svæðum og skyldleiki samfélaga á svæðunum, bæði innan sömu rannsóknar og á milli rannsókna. Niðurstöður þessara tveggja rannsókna, sem gerðar voru með 21–22 ára millibili, eru mjög líkar. Það er 46–57% skyldleiki milli sömu svæða á botni 1985 og 2006. Skyldleiki sömu sniða á leirum á milli rannsókna er 42,3% og 52%. Í fjörunni er skyldleikinn á bil- inu 62–66%. Fjölbreytnin á botni er mikil: H´=3,3–4,3. Fjölbreytnin er minni í fjörum en meiri breytileiki milli stöðva: H´=1,9–3,3. Niðurstöðurnar eru að sjálfsögðu ekki nákvæmlega eins á svæðunum milli rannsókna en erfitt er að benda á sérstakar breytingar sem rekja megi til þverunar Dýrafjarðar, nema í nánd við brúarhafið. Dýrafjarðar og hryggleysingjum í fjörum3 og á botni fjarðarins.4 Fram- kvæmdir við Dýrafjarðarbrú hófust 1989 og var hún fullbyggð 1990. Um vorið 1990 hófst vinna við fyllingu og var brúin tengd og umferð leyfð yfir hana sumarið 1991 (1. mynd). Hún var formlega opnuð í október 1992.5 Rannsóknir vegna vegagerðar í fjörum og leirum eða vegna fjarðarþverunar hófust 1973 með rannsóknum í Borgarfirði, í Botns- vogi og Brynjudalsvogi í Hvalfirði og í Hraunsfirði á Snæfellsnesi.6 Eftir þetta voru gerðar rannsóknir á fjörum á nokkrum stöðum vegna hugsanlegrar vegagerðar. Gerð var forkönnun á lífríki Laxárvogs, Álfta- fjarðar og Önundarfjarðar 1974,7 for- könnun á lífríki Gilsfjarðar, Þorska- fjarðar, Djúpafjarðar og nærliggjandi fjarða 1976,8 rannsóknir í Önundarf- irði og víðar á Vestfjörðum 19791 og síðan í Dýrafirði 1984–1985.2,3,4 Síðan hafa verið gerðar samsvar- andi rannsóknir við þverun annarra fjarða,9 svo sem Breiðdalsvíkur,10 Skutulsfjarðar,11 Gilsfjarðar,12,13 Kolgrafafjarðar,14 Reykjafjarðar og Mjóafjarðar í Ísafjarðardjúpi.15 Unnið er að þverunum í Kjálka- firði og Kerlingarfirði16,17 og gerðar hafa verið rannsóknir vegna hugs- anlegrar þverunar í Gufufirði, Djúpafirði og Þorskafirði við Breiða- fjörð18 og í Kollafirði við Faxaflóa.19 Einnig hafa verið gerðar rannsóknir á leirum við Borgarnes20 og Horna- fjörð21 vegna vegagerðar. Í rannsóknum vegna Gilsfjarðar var gert ráð fyrir endurteknum rannsóknum, einu22 og fimm árum- eftir þverun,23 svo hægt væri að Náttúrufræðingurinn 85 (1–2), bls. 74–85, 2015 Ritrýnd grein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.