Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 65

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 65
65 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Hellismenn Landnámabók er eina ritheimildin um Hellismenn sem nokkurt hald er í. Þeir eru að vísu nefndir í Harðar sögu en hún er ekki talin góð sagn- fræðiheimild. Einnig er til sérstök saga um þá, Hellismannasaga, sem gefin var út í Íslendingasagnaút- gáfu Guðna Jónssonar en hana ritaði Gísli Konráðsson í byrjun 19. aldar. Í þjóðsögum Jóns Árnasonar er einnig saga af Hellismönnum en ekkert er á henni byggjandi. Landnáma nefnir Hellismenn tvisvar. Fyrst er þar sagt að höfðingjar í Borgarfirði hafi staðið að drápi 18 Hellismanna á Hellisfitjum. Síðar er getið þeirra Smiðkelssona, foringja Hellismanna. Surtshellir (7. mynd) er ekki nefndur á nafn í þessu sambandi en Hell- isfitjar sem Landnáma getur um eru skammt frá honum og hinar fornu mannvistarleifar í hellinum benda eindregið til að þar hafi Hellismenn búið.19 Samkvæmt Landnámu hefur það verið nálægt miðri 10. öld. Það er athyglisvert að Hellismenn eru hvergi nefndir í Hallmundarkviðu og ekki minnst á að fólk hafi sest að í hellum í Hallmundarhrauni. Í síðustu vísu kviðunnar segir beinlínis að fáir menn hafi heimsótt helli Hallmundar. Ástæðan fyrir því gæti einfaldlega verið sú að kviðan hafi verið ort áður en Hellismenn gerðu Surtshelli að bústað sínum. Það hafa liðið all- mörg ár frá því að gosi lauk þangað til verandi var í Surtshelli fyrir hita. Í 8. vísu kviðunnar er sagt berum orðum að hitinn hafi verið mikill, jafnvel fyrir jötna. Hraunið hefur þó kólnað tiltölulega hratt vegna hins mikla grunnvatnsflæðis sem í því er (6. mynd). Heitar lindir sem nefndar eru í 3. vísu Hallmundarkviðu bera vitni um varmann sem grunnvatnið tók úr hrauninu. Drápan sem Þorvaldur holbarki er sagður hafa ort og flutt við Surtshelli var hugsanlega sjálf Hall- mundarkviða. Það að hún er lögð jötninum í munn kann þó að þykja einkennilegt í ljósi þeirra orða Land- námu að Þorvaldur hafi fært jötn- inum kviðuna. Skýringin gæti falist í einfaldri missögn. Hann flutti jötninum ekki kviðuna heldur flutti hann mönnum kviðu sem hann þóttist hafa lært af jötninum í hell- inum, þ.e. Hallmundi. Það er raunar í samræmi við skilning Bergbúa- þáttar, sem kviðan er felld inn í, á tilurð kvæðisins, svo langt sem hann nær. Þórður bóndi í Bergbúa- þætti væri því í raun Þorvaldur hol- barki Þórðarson. (Sjá umfjöllun um Bergbúaþátt í Náttúrufræðingnum 84, 1.–2. hefti). Nú má spyrja: Bjó ekki Surtur eldjötunn í Surtshelli og Hallmundur í Hallmundarhelli? Nei, hellirinn er ekki kenndur við Surt jötun. Að fornu var hellirinn sjálfur kallaður Surtur vegna þess hve dimmur hann var.20 Örnefnið 6. mynd. Fólk í heitri laug við jaðar Hallmundarhrauns skömmu eftir að hraunið rann. Myndin er gerð eftir lýsingu í 3. vísu Hallmundarkviðu. Miklar vatnslindir koma undan Hallmundarhrauni. Þótt vatnið sé ískalt í dag má ljóst vera að fyrstu árin og áratugina eftir gos hafa þessar lindir verið snarpheitar. – People bathing in a warm pool near the border of Hallmundarhraun lava during the eruption, according to a description in the 3. verse of the poem Hallmundarkviða. Large springs issue from below Hallmundarhraun. Although the water is cold today it must have been pretty warm while the lava still was hot. Málverk / Painting: Ólafur Th. Ólafsson 2015.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.