Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 52
Náttúrufræðingurinn
52
Salt á háspennulínum
Tengivirki Landsnets á Brennimel
í Hvalfirði er einn af mikilvægustu
afhendingarstöðum í raforkuflutn-
ingskerfinu. Tveir stórnotendur eru
tengdir við það, Norðurál og Ís-
lenska járnblendifélagið. Að auki
er þar tenging inn á dreifikerfi
RARIK og á Brennimel er upphaf-
spunktur byggðalínunnar norður
í land. Síðdegis hinn 10. janúar
settist selta hratt á einangrara í
tengivirkinu. Fyrsta skammhlaupið
varð kl. 18.50 og sló út öllum afl-
rofum í tengivirkinu. Við það sló
út, auk Járnblendis og Norðuráls,
báðum vélum í Sultartangavirkjun
og öllum vélum í jarðgufuverinu
á Hellisheiði. Nokkru síðar bár-
ust fréttir um eld á Brennimel og
var slökkvilið frá Akranesi sent á
staðinn. Þegar starfsmenn Lands-
nets komu á Brennimel rétt fyrir
kl. 20 kom í ljós að þéttir brann í
tengivirkinu. Skammhlaup vegna
seltunnar ollu miklu spennuflökti
og truflunum og urðu rafmagns-
notendur um allt land varir við
þetta. Mikið gekk á og ljósbogar
sem fylgdu sáust víða, m.a. frá
höfuðborgarsvæðinu. Margar ár-
angurslausar tilraunir voru gerðar
til að spennusetja virkið, en vegna
seltunnar sló út aftur jafnharðan (11.
mynd). Spennusetning um varatein
einnar af þremur aðflutningslínum
til virkisins tókst á endanum og
kl. 21.53 komst rafmagn á til hluta
Norðuráls. Til Járnblendisins komst
straumur ekki á fyrr en kl. 06.03
morguninn eftir, þegar tókst að
koma flutningi í eðlilegt horf eftir
víðtækar hreinsun seltunnar alla
nóttina. Þegar upp var staðið reynd-
ust skemmdir umtalsverðar á raf-
búnaði á Brennimel.
Seltuvandamál eru vel þekkt í
tengivirkinu og þar eru virkar varnir
til taks til að verjast seltuáraun
upp að vissu marki. Reyndustu
11. mynd. Á Brennimel 10. janúar 2012.
Skammhlaup við árangurslausa innsetningu .
– Brennimelur 10 January 2012. Short circuit
during unsuccessful instalment. Ljósm./
Photo: Úr safni RÚV/ Television channel
RÚV.
10. mynd. Efri hluti: hiti (°C, rauður ferill) og
daggarmark (°C, blár ferill). Neðri hluti: raka-
stig (%). Mælingar á veðurstöð Vegagerðar-
innar sunnan undir Akrafjalli 9. og 10.
janúar 2012. – Top panel: Temperature (°C,
red) and dew point (°C, blue), and bottom
panel: relative humidity (%) measured at the
weather station of the Road authorities south
of Akrafjall on 9–10 January 2012.