Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 16

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 16
Náttúrufræðingurinn 16 verða mosadýr undir í samkeppni við þörungategundir. Þau þrífast því einna best á skuggsælum stöðum, einkum á neðra borði steina eða vatnagróðurs og trjáróta, og raunar á alls kyns framandi hlutum, svo sem fljótandi spýtum, steyptum veggjum og röralögnum.3 Dýrin mynda sambýlisform sem samanstanda af fjölmörgum einstaklingum sem eru erfðafræði- lega eins og verða til með kyn- lausri fjölgun eða knappskotum (e. budding). Sérhver einstaklingur í sambýli er smár, vart meira en 1 mm, en sambýli sumra tegunda geta orðið umfangsmikil og spannað tugi sentimetra. Útlit mosadýra- sambýla er afar fjölbreytilegt, allt frá hlaupkenndum massa til skrið- jurta-líkra forma og greinóttra trjá- eða mosalaga forma.3 Mismunandi útlitseinkenni aðgreina tegundir eða ættkvíslir og nýtast því við tegunda- greiningu. Dýrin lifa á sviflægu groti og smásæjum dýrum, svo sem frum- og hjóldýrum. Við góð skil- yrði getur lífmassi þeirra orðið mik- ill og jafnvel ráðandi í fánu strand- svæða og grynninga.4,5 Þar skapa þau fjölbreytileg búsvæði fyrir aðrar lífverur,6 og leika að auki stórt hlut- verk í hringrás næringarefna.7 Öll mosadýr í ferskvatni eru tvíkynja. Kynæxlun á sér jafnan stað snemm- eða miðsumars og stendur yfirleitt stutt yfir. Hjá sumum tegundum er kynæxlun einungis hjá hlutfallslega fáum einstaklingum og verður jafnvel ekki vart í nokkur ár í röð. Megin-æxlunarmáti mosadýra er því kynlaus æxlun með myndun svokallaðra blasta (statoblasts); ýmist setblasta (sessoblasts) eða loftfylltra flotblasta (floatoblasts). Blastar þessir myndast yfir sumartímann en þegar kólna fer á haustin og vaxtarskil- yrði versna leggjast þeir í dvala þar til hagstæð skilyrði skapast á ný vorið eftir. Þá spíra blastarnir og mynda einstakling sem fjölgar sér með knappskotum og til verða sam- býli sem áður er lýst.3,8,9 Misjafnt er eftir tegundum hvers konar blastar myndast. Sumar tegundir mynda einungis setblasta en aðrar mynda bæði set- og flotblasta. Setblastar stuðla einkum að staðbundinni dreifingu viðkomandi tegundar en flotblastar geta borist langar leiðir og nýtast til að nema ný og fjarlæg búsvæði.3 Þótt meginreglan í lífsferli mosadýra sé myndun dvalarforma eru dæmi um að sambýli sumra tegunda, svo sem Fredericella- og Lophopus-tegunda, geti lifað af vet- urinn séu skilyrði hagstæð.1 Þrátt fyrir mikla útbreiðslu og gnægð mosadýra í ferskvatni voru Lífsferill Tetracapsuloides bryosalmonae (T.b.) krefst tveggja hýsla; mosadýrs og laxfisks. Sníkjudýrið þroskast í mosadýrum og fullþroska gró berast frá mosadýrum út í vatnsfasann þegar vatnshiti hefur náð um 7–8°C (a). Laxfiskar smitast komist þeir í tæri við grósmitað vatn (b). Þroskun sníkjudýrsins heldur áfram í fiskinum og til verða annars konar gró sem seytt er út með þvagi fisksins (c) og smita mosadýr (d). Smitaðir fiskar fá einungis PKD- nýrnasýki nái vatnshiti a.m.k. 12°C í nokkrar vikur (e), ella eru þeir einkennalausir smitberar (f). Sumir sjúkir fiskar komast yfir sjúkdóminn og mynda ónæmi gegn sýklinum (g) en aðrir fiskar drepast (h). Tetracapsuloides bryosalmonae (T.b.) needs two hosts to complete its life cycle; bryozoans and salmonids. The parasite develops inside the bryozoan host and mature spores are released into the environment when the water temperature reaches approx. 7–8°C. Salmonids get infected when exposed to spore- infected water. Inside the salmonids, another type of infective spores develop which are released with urine into the water, where they infect the naive bryozoans. Infected fish only develop PKD if the water temperature reaches at least 12°C for several weeks, otherwise they become subclinical carriers of the infections. Some fish recover from the disease and gain resistance for the disease while other die. Lífsferll sníkjudýrsins - The life cycle of the parasite
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.