Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 34
Náttúrufræðingurinn
34
óðul bleikju stærri en hjá urriða,
jafnvel þegar tekin eru með í reikn-
inginn tölfræðileg áhrif af því að
óðul dragast saman með auknu
fæðuframboði. Í sömu greiningu
hafði straumhraði ekki áhrif á óðals-
stærð, kannski vegna þess (i) að
sterk fylgni er á milli straumhraða
og fæðuframboðs eins og það er
mælt hér30 og (ii) að áhrif straum-
hraða eru mögulega þegar inni-
falin í marktækum tegundamun,
þar sem bleikja notar lygnara vatn
en urriðinn. Í þessari rannsókn helg-
uðu stærri fiskar sér stærri óðul, sem
er í samræmi við margar fyrri rann-
sóknir,20 þótt ekki sé þetta samband
alltaf til staðar.12 Ef óðul stækka eftir
því sem einstaklingar í hverjum
árgangi vaxa, eða fæðuframboð
dregst saman, getur það leitt til
náttúrulegrar grisjunar í villtum
stofnum, ef keppt er um takmarkað
rými og/eða fæðu.31,32 Hugsanlega
er lítil mettun búsvæða hjá urriða
(20,8%) skýring á því hvers vegna
óðul þeirra dragast ekki saman með
aukinni samkeppni í þessari rann-
sókn, en sú skýring getur ekki átt
við um bleikju þar sem mettun er
mun meiri (85,6%). Þar er nærtæk-
ari skýring að við mikla mettun
búsvæða verji bleikjur ekki óðul sín
á skilvirkan hátt og deili þeim þess
vegna með öðrum einstaklingum. Í
slíkum tilvikum er ef til vill réttara
að tala um að sumar bleikjur nýti
óvarin athafnasvæði eða jafnvel
dragi sig í hópa.33
a) Óðalsstærð, lengd og fæðuframboði var umbreytt með log10, en samkeppni og straumhraða með því að taka
kvaðratrót af upprunalegum gildum. – Territory size, fork length and food availability were log10 transformed,
whereas intruder pressure and current velocity were square-root transformed.
b) Fæðuframboð er mælt sem fjöldi hryggleysingja sem safnast fyrir í rekgildru á einni mínútu. Flatarmál munna
rekgildrunnar var 0,1 m2 (breidd = 40 cm, hæð = 25 cm, netmöskvi = 250 μm). – Food availability is estimated as
the number of invertebrates collected in a drift net in one minute. The sampling area of the drift net opening was
0,1 m2 (width = 40 cm, height = 25 cm, mesh size = 250 μm).
c) Samkeppni var mæld sem fjöldi fiska í minna en 1 m fjarlægð frá þeim fiski sem fylgst var með. – Intruder
pressure was measured as the number of fish within a 1 m radius from the focal fish.
d) Flokkun botngerðar er lýst í 1. töflu. – Classification of substrate size is described in table 1.
e) Þessar breytur voru fjarlægðar úr endanlegu líkani þar sem P > 0,15. Lokalíkanið, sem inniheldur allar breytur
ofan við brotnu línuna, var líka með lægsta AIC-gildið af öllum mögulegum líkönum. – These variables were
removed from the final model because P > 0,15. The final model, which included all variables above the dashed
line, also had the lowest AIC value of all possible models.
2. tafla. Fjölþátta tölfræðigreining þar sem prófað er fyrir áhrifum tegundar og vistfræðilegra
breytna á óðalsstærð fyrir 31 vorgamla (0+) bleikju og 30 vorgamla (0+) urriða í sex ám á
Norðurlandi. − A multivariate model, which tests for the effect of species and ecological varia-
bles on territory size for 31 Arctic charr (0+) and 30 brown trout (0+) in six streams in
Northern Iceland. This table is modifed from an earlier publication.15
Vistfræðileg breyta − Ecological
predictor a)
Hallatala
− Coefficient
Staðalskekkja
− Standard
error
F P
Tegund – Species 0,203 0,063 10.403 0,002
Klauflengd – Fork length (cm) 3,464 1,128 9,424 0,003
Fæðuframboð – Food availability b) -0,272 0,083 10,754 0,002
Samkeppni – Intruder pressure c) 0,225 0,084 7,199 0,010
Straumhraði – Water current velocity
(cm sek -1)
0,959 0,562 2,917 0,093
Botngerð – Substrate size d), e) -0,155 1,322 0,255
Vatnsdýpi – Water depth (cm) e) -0,066 0,234 0,631
8. mynd. Mettun búsvæða (PHS) hjá vor-
gömlum (0+) bleikju- og urriðaseiðum í sex
ám á Norðurlandi (þrjár fyrir hvora tegund).
Mettunin gefur til kynna það hlutfall sem
óðul þekja af búsvæði hvers fisks. Mettun yfir
100% gefur til kynna að óðul fiskanna skarist.
Örvarnar sýna meðalmettun. – Percent
habitat saturation (PHS) for 0+ Arctic charr
and brown trout in six streams in northern
Iceland (three for each species). PHS indicates
the proportion of local habitat occupied by
territories around each focal fish. PHS over
100% suggests an overlap among territories.
The arrows show the mean PHS. This figure
is redrawn and modified from an earlier
publication.15
9. mynd. A. Bleikjuseiði halda sig í lygnu vatni og eru frekar hreyfanleg við fæðuleit. B. Laxa-
seiði hafa stóra eyrugga, sem gera þeim kleift að halda sig við botninn og skima eftir fæðu á reki
á straumharðari búsvæðum án þess að eyða mikilli orku við að synda á móti straumnum. – A.
Young-of-the-year Arctic charr inhabit slow-running waters and are fairly mobile while se-
arching for prey. B. Juvenile Atlantic salmon have large pectoral fins, which enable them to hold
a position close to the substrate and search for prey in faster waters, without spending much
energy on swimming against the water current. Ljósm./Photo: Stefán Óli Steingrímsson.