Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 47
47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hlaupum. Talað er um seltuveður og
þau mestu geta valdið rafmagns-
truflunum um mikinn hluta lands-
ins. Áraun seltu er áhugavert veð-
urfræðilegt viðfangsefni en rann-
sóknir á saltögnum í lofti á köldum
og kaldtempruðum svæðum
eru takmarkaðar. Mergð smárra
saltagna í lofti getur við viss veður-
skilyrði orðið gríðarmikil, þannig
að seltumóða dregur stórlega úr
skyggni. Einkum eru áhugaverð
tilvik þegar þurr loftmassi steypist
ofan af Grænlandi með vestlægum
vindi yfir Grænlandshaf. Stormur
ýfir upp sjóinn og sjávarlöður gufar
upp en smágerðar seltuagnirnar
verða eftir og berast með hvössum
vindi yfir landið úr vestri. Brim við
ströndina eykur síðan enn á flæði
seltu úr sjónum til andrúmsloftsins.
Rafmagnstruflanir vegna seltu
verða öðru hverju. Til að mynda
gerðist þetta þrisvar árið 2001, í jan-
úar, febrúar og nóvember.1 Seltu-
veðrið í nóvember 2001 er það
mesta sem mælst hefur á Íslandi. Þá
var vestan og suðvestan stormur
víða á landinu og vindstyrkur allt
að 40 m/s með norðurströndinni og
50 m/s í fjallshæð. Saltagnir bárust
með vindi fleiri hundruð kílómetra
frá ströndu og má nefna að seltu
varð vart fremst í Bárðardal.2,3
Seltuveðrið 10. janúar 2012 var
af nokkuð ólíkum toga (1. mynd).
Vindstyrkur var töluvert minni og
hvassviðrið bæði staðbundnara og
stóð styttra yfir. Selturáraunar varð
ekki vart á eins miklum hluta lands-
ins og í seltuveðrinu 2001 en hún
2. mynd. Saltagnir myndast þegar loftbóla
springur í yfirborði sjávar. Fyrst myndast
mjög litlir dropar sem gufa upp og skilja eftir
saltagnir, þvermál ~0,3 mm. Þegar loftbólan
fellur saman geta myndast stærri dropar, sem
skjótast allt að 15 cm upp í loftið. Mynd
endurteiknuð eftir Wallace & Hobbs.12 – A
schematic to illustrate the production of film
droplets and jet drops when an air bubble
bursts at the surface of water. Over the oceans
some of the droplets and drops evaporate to
leave sea-salt particles and other material in
the air.
Við yfirborð hafs flæðir raki, hiti og skriðþungi á
milli lofthjúpsins og hafsins. Þessi flæði stjórnast af
mismun hita, raka og skriðþunga frá hafi upp í
lofthjúpinn, sem og af þéttleika loftsins og af
vindhraða. Með þessu móti talar hafið við
lofthjúpinn. Ef kaldur, þurr og hvass vindur blæs
yfir fremur hlýtt haf verður mikið kvikuflæði skin-
og dulvarma frá hafi til lofthjúpsins. Í sumum
tilvikum getur hafið tapað svo miklum hita að
yfirborðssjórinn kólnar og eðlismassinn eykst að
því marki að hann sekkur og myndar djúpsjó.
Þetta gerist í miklum mæli á örfáum stöðum í
Norður-Atlantshafi: Í Labradorhafi, norðan
Svalbarða og líkast til einnig á Grænlandshafi þar
sem lágrastir myndast vegna áhrifa Grænlands á
loftstreymið.11 Þessi lóðrétta hreyfing er
mikilvægur hluti hita-seltuhringrásarinnar í
Atlantshafi, sem flytur hlýjan yfirborðssjó norður
Atlantshafið með Golfstraumnum og Norður-
Atlantshafsstraumnum en kaldan og þungan
djúpsjó suður með botninum. Þessi hringrás er
vegna varmaflutningsins nátengd veðurfari við
Atlantshaf.
Samspil lofthjúps og hafs
3. mynd. Vindur (vindörvar) og hæð (línur, dm) í 300 hPa hæð, 6 tíma spá. Svartur fáni merk-
ir 50 hnúta vind (25 m/s) og lituðu svæðin sýna svæðin með mestan vindhraða. Vindhraði er í
hnútum. Jafnhæðalínur flatarins eru dregnar með 4 dekametra (40 m) millibili. Spá frá Reikni-
miðstöð evrópskra veðurstofa, gildistími 10. janúar 2012 kl. 06. – Wind speed (wind barbs) and
the height (lines, dm) at 300 hPa, 6 hour forecast. A triangle represents 50 kt wind speed (25
m/s) and the shaded regions show the areas with the largest wind speed. Wind speed is in kt.
The isoheight interval is 4 dm (40 m). A forecast from the European Centre of Medium Range-
Weather Forecasts, valid 10 January 2012 at 06 UTC.