Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 51

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 51
51 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags einangrurum háspennulína og upp úr klukkan 18 varð alvarleg truflun í tengivirki Landsnets á Brennimel vegna mikillar seltu á suður- og vesturhluta landsins.1 í 2 m hæð var mun lægri, eða um –4°C (8. og 9. mynd). Ásamt þessum hitamun milli hafs og andrúmslofts, ~10°C, olli vindröstin því að mikið af varma og raka fluttist úr hafinu í andrúmsloftið, sjá ramma á bls. 47. Við þennan varma- og rakaflutning frá sjávaryfirborði varð loftið mjög óstöðugt, lóðréttur vindhraði jókst og éljaklakkar mynduðust. Þetta sést glöggt á veðurtunglamynd frá því snemma um morguninn (1. mynd). Þá var léttskýjað næst aust- urströnd Grænlands en eftir því sem lengra dregur yfir hafið verða éljaklakkarnir stærri. Þegar leið á daginn hlýnaði loftið sem streymdi yfir Grænlandssund til Íslands og því minnkaði flæði af varma upp í andrúmsloftið tölu- vert og af raka eilítið. Í framhaldi minnkaði éljaklakkaframleiðslan og það dró úr úrkomu. Rakastig við yfirborð lækkaði þá víða úr 80–90% í 50–60%, eins og sjá má til dæmis á mælingum frá veður- stöð Vegagerðarinnar sunnan undir Akrafjalli (10. mynd). Enn var þó skýjað á vestan- og norðanverðu landinu. Afturábak-útreikningar gefa til kynna að rakastig loftsins sem streymdi yfir Grænlandshaf til Íslands hafi verið í kringum 50% í 200 m hæð, óháð því hvenær dagsins það náði landi. Líkleg ástæða fyrir lækkandi rakastigi er því að éljum hafi fækkað, fremur en að loftið sem barst inn á Vesturland undir kvöld hafi verið þurrara. Þegar dró úr éljum skolaðist salt ekki lengur af 9. mynd. Þrýstingur við sjávarmál (hPa, svartar línur), hiti í 2 m h.y.s. (°C, litaðar línur), vindörvar og snjókoma (mm/3 klst), 6 tíma spá. Gögn frá Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, gildistími 10. janúar 2012 kl. 12. – Mean sea level pressure (hPa, black lines), 2 m temperature (°C, coloured lines), wind barbs and snow (mm/3 hours). A 6 hour forecast from the European Centre of Medium Range-Weather Forecast valid 10 January 2012 12 UTC. Salt í lofti fyrir vestan og suðvestan land berst yfirleitt ekki langt inn á landið og því er áraunin mest við sjávarsíðuna. Öðru máli gegnir í stærri seltuveðrum þegar flæði saltagna frá úthafinu til loftsins verður mjög mikið. Þá bera suðvestan- og vestanvindar saltagnirnar jafnvel yfir hálendið. Kerfisbundnar og samfelldar seltumælingar hafa verið gerðar í Svartárkoti fremst í Bárðardal frá 1992, en sumarmánuðum er sleppt.13 Í Bárðardal er þurrviðrasamt og óvíða gætir meiri áhrifa meginlandsloftslags í byggð hér á landi. Markmið þessara seltumælinga er að bæta forsendur fyrir raftæknilega hönnun háspennulína. Með þeim er unnt að meta raunverulega seltuáraun hér á landi og kanna hámarksseltuáburð á einangraraskálar háspennulína. Í Svartárkoti hefur verið komið fyrir upphengjum með einangraraskálum líkt og á háspennulínum. Einu sinni í viku eru tekin sýni af seltu og öðrum óhreinindum sem setjast á glerhluta skálanna. Tvö sýni eru tekin, annars vegar af efra yfirborði skálarinnar og hins vegar af neðra yfirborði. Sýnatakan fer þannig fram að selta er hreinsuð af ásamt öðrum óhreinindum með bómullarhnoðrum og eimuðu vatni. Hnoðrunum er svo komið fyrir í plastboxum og sýnin send Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem annast úrvinnslu. Við úrvinnslu seltumælinga er niðurstaða sett fram með einingunni g NaCl/m2. Eftir víðtækt seltuveður í nóvember 2001 reyndust seltugildi í reglubundinni mælingu í Svartárkoti vera 0,984 g NaCl/m2. Þetta gildi er fjórum til fimm sinnum hærra en í næsthæstu mælingunni. Í kjölfar seltunnar í janúar 2012 mældist í Svartárkoti um tíundi hluti þess sem mældist 2001 eða um 0,09 g NaCl/m2 á skálahengjunum, enda var sú áraun að mestu bundin við Suðvesturland. Seltumælingar Landsnets í Svartárkoti

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.