Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn
62
veitti hann Hvítá í gegnum ásinn til
frekari varna, en áður féll hún um
Melrakka dal.7 Sagan virðist vera
hreinn tilbúningur því það var ekki
á færi fornmanna að veita slíku
vatnsfalli sem Hvítá er úr einum far-
vegi í annan. Auk þess er augljóst
að engin á hefur runnið um Mel-
rakkadal frá því í ísaldarlok. Þó gæti
leynst sannleikskjarni í þessari sögn.
Áður en Hallmundarhraun rann
hefur áin vafalítið runnið um aura
sína nokkru norðar en hún gerir nú.
Hraunið hrakti hana svo úr farvegi
sínum og þröngvaði henni suður og
vestur fyrir Gunnlaugshöfða og upp
að Hraunsásnum neðan við bæinn.
Höfðinn er jökulurðarhryggur
norðan árinnar, og hefur áin skilið
höfðann frá Hraunsásnum í þessum
tilflutningum.5 Fóturinn fyrir frá-
sögninni gæti því verið minning
seinni alda manna um tilflutning
árinnar einhvern tíma á landnáms-
tíð þegar hinn þjóðsagnakenndi
Músa-Bölverkur bjó í Hraunsási og
stóð í vígaferlum við nágranna sína.
Týndir bæir
Í Landnámabók eru nefndir bæir
innst í Hvítársíðu sem enginn veit
lengur hvar stóðu. Þessir bæir eru
Sturlustaðir, Grímsgil, Karlastaðir,
Hranastaðir og Kollshamar. Að
auki er Reykholt hið forna nefnt
í gömlum þjóðsögum (5. mynd).
Allir staðirnir hafa verið í grennd
við Kalmanstungu og Húsafell og
er merkilegt að svo margir bæir á
þessu litla svæði skuli gleymdir og
horfnir með öllu. Til samanburðar
má geta þess að í Landnámu eru
nafngreindir 90–100 bæir í Borgar-
fjarðar- og Mýrasýslum. Nú eru 10
þessara bæja týndir, helmingurinn
á slóðum Hallmundarhrauns. Hafi
þessir bæir verið til má vel ímynda
sér að þeir hafi lent undir hrauninu.
Sturlustaðir. Sturla goði var sonur
Kalmans landnámsmanns í Kalm-
anstungu og „bjó á Sturlustöðum
uppi undir Tungufelli upp frá
Skáldskelmisdal, en síðan bjó hann
í Kalmanstungu“.7 Örnefnin Sturlu-
staðir, Tungufell og Skáldskelmis-
dalur eru öll týnd. Líklegasta stað-
setning bæjarins er norðan undir
fellinu Tungu um tvo kílómetra
norðvestur af Kalmanstungu þar
sem Norðlingafljót fellur nú um
Hallmundarhraun. Í Landnámu er
ekki mikið sagt um Sturlu Kalm-
ansson. Þó er hans getið í tengslum
við Hellismenn, og var Sturla á
Hellisfitjum þegar þeir voru felldir.
Líklega hefur hann verið helsti
foringi bænda í þeirri viðureign.
Þess er líka getið að hann átti son
sem Bjarni hét. Hann stóð í jarða-
deilum um Tunguna litlu, sem var
landspilda við Hvítá suðvestur af
Kalmanstungu. Hann vann málið
og reisti sér þar bæ sem fékk nafnið
Bjarnastaðir. Þessar deilur gætu hafa
spunnist af því að þrengt hafði
að Kalmanstungubændum þegar
3. mynd. Fljótstunga, Þorvaldsstaðir og Litlafljót. Líklegir farvegir Norðlingafljóts og Hvítár
fyrir gos (bláar línur). – A map indicating the farms Fljótstunga and Þorvaldsstaðir, the rivulet
Litlafljót and possible channels (blue lines) of the rivers Norðlingafljót and Hvítá before the er-
uption of Hallmundarhraun. Kort/Maps: Landmælingar Íslands, Atlaskort 35 og 45.
4. mynd. Hraunsás, bær Músa-Bölverks – Hraunsás farm, the home of the warrior Músa-Böl-
verkur. Ljósm./Photo: Árni Hjartarson.