Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 87
87
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
24. nóvember. Guðni Axelsson jarð-
eðlisfræðingur: Eðli jarðhitans og
sjálfbær nýting hans.
26. janúar 2015. Margrét Hrönn
Hallmundsdóttir fornleifafræðing-
ur: Áhrif Heklugosa á býli í landi Kots
á Rangárvöllum.
Náttúrufræðingurinn
Frá síðasta aðalfundi hafa komið
út þrjú tvöföld hefti af Náttúru-
fræðingnum: 3.–4. hefti 83. árgangs,
og 1.–2. og 3.–4. hefti 84. árgangs. Á
haustmánuðum urðu ritstjóraskipti
þegar Álfheiður Ingadóttir settist
í ritstjórastól en Hrefna B. Ingólfs-
dóttir lét af störfum, og hafði þá
komið útgáfu ritsins í rétt horf eftir
áföll ársins 2013. Það er í annað sinn
sem Hrefna vinnur upp seinkun á
útgáfunni.
Í ritstjórn Náttúrufræðingsins sitja nú:
Droplaug Ólafsdóttir, líffræðingur,
formaður, Esther Ruth Guðmunds-
dóttir, jarðfræðingur, Hafdís Hanna
Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur,
fulltrúi stjórnar HÍN, Hlynur Ósk-
arsson, vistfræðingur, Rannveig
Magnúsdóttir, líffræðingur, Tómas
Grétar Gunnarsson, dýravist-
fræðingur og Þóroddur F. Þórodds-
son, jarðfræðingur.
Í gildi er samstarfssamningur
HÍN og Náttúruminjasafns Íslands
um útgáfu tímaritsins og var hann
undirritaður á aðalfundinum 2014
fyrir réttu ári. Samningi þessum var
lýst í síðustu ársskýrslu. Hann létti
mjög undir í fjárhag útgáfunnar og
rekstri félagsins eins og vænst var.
Samstarfinu til staðfestingar birtist
hið nýja merki NMSÍ í tímaritinu
við hlið HÍN-merkisins.
Nefndir
Samstarfshópur frjálsra félagasamtaka
á sviði umhverfismála á vegum um-
hverfis- og auðlindaráðuneytis:
Hópurinn á fulltrúa í nokkrum
nefndum á vegum umhverfis- og
auðlindaráðuneytis, s.s. í Ráðgjaf-
arnefnd hagsmunaaðila um stjórn
vatnamála, í stjórn og svæðisráðum
Vatnajökulsþjóðgarðs o.fl. Árni Hjart-
arson er fulltrúi HÍN en Hólmfríður
Sigurðardóttir hjá Fuglavernd er
talsmaður og tengiliður hópsins við
ráðuneytið. Hópurinn hefur aldrei
verið kallaður saman í tíð núverandi
ríkisstjórnar.
Ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila um
stjórn vatnamála:
Nefndin var skipuð á fyrri hluta
árs 2012 í samræmi við ný lög um
stjórn vatnamála. Hlutverk nefndar-
innar er að vera Umhverfisstofnun
og vatnaráði til ráðgjafar um atriði
sem undir lögin heyra. Í árslok
2013 var gefin út Stöðuskýrsla fyrir
vatnasvæði Íslands. Næsta skref
í starfi nefndarinnar átti að vera
að setja fram vöktunaráætlun fyrir
vatnsauðlindina. Hægt miðar við
það og hafa fáir fundir verið haldnir
því að fjárveitingar til verkefnisins
voru skornar verulega niður. Full-
trúi HÍN er Árni Hjartarson.
Styrkveitingar
Fyrir nokkrum missirum ákvað
stjórn HÍN að gefa út sérstakt þema-
hefti af Náttúrufræðingnum með
heitinu „Náttúra Þingvallavatns og
Jóla- og kveðjusamsæti stjórnar HÍN í desember 2014. Frá vinstri: Kristján Jónasson, gjaldkeri, Herdís Helga Schopka, ritari, Hilmar J.
Malmquist, meðstjórnandi og forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, Esther Ýr Jónsdóttir, fræðslustjóri, Hrefna B. Ingólfsdóttir, fyrrverandi
ritstjóri, Árni Hjartarson, formaður, Álfheiður Ingadóttir ritstjóri, Droplaug Ólafsdóttir, formaður ritstjórnar Náttúrufræðingsins, Jóhann Þórs-
son, félagsvörður og afgreiðslustjóri Náttúrufræðingsins og Hafdís Hanna Ægisdóttir, varaformaður stjórnar HÍN. Ljósm: Hrund Ólafsdóttir.