Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 88
Náttúrufræðingurinn
88
Mývatns – Einstök vistkerfi undir
álagi“. Markmiðið með verkefninu
er að koma á framfæri nýjum rann-
sóknum á náttúru Mývatns-Laxár
og Þingvallavatns. Einnig verður
fjallað um verndarstöðu vatnasvið-
anna og þær ógnir sem kunna
að steðja að hinum sérstæðu vist-
kerfum vatnanna. Í þessu skyni
hefur verið leitað eftir styrkjum til
að fjármagna útgáfuna. Jákvæðar
undirtektir hafa nú þegar fengist á
þremur stöðum. Náttúruverndar-
sjóður Pálma Jónssonar veitti styrk
upp á 700.000 kr., Samfélagssjóður
Landsbankans styrkir verkefnið
með 250.000 kr. og umhverfis- og
auðlindaráðuneyti lagði fram ver-
kefnisstyrk, 500.000 kr. Gott er að
eiga góða að.
„Höfuðsafn á leið á
götuna“
Barátta HÍN fyrir hagsmunum Nátt-
úruminjasafns Íslands hefur haldið
áfram en staða stofnunarinnar er
vægast sagt erfið. Nú, tveimur
dögum fyrir þennan aðalfund, var
forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins
„Höfuðsafn á leið á götuna“. Frétt
blaðsins, og fleiri fjölmiðla, var sú
að leigusamningi safnsins í Loft-
skeytastöðinni hafi verið sagt upp
og framtíðin því í algerri óvissu.
Þetta er afleit staða og kallaði borg-
arstjórinn í Reykjavík þetta þjóðar-
skömm.
Stjórn HÍN hefur sótt tvo ráð-
herra heim á starfsárinu til að kynna
þeim málefni safnsins og tengsl
HÍN við það. Hinn 2. júní gengu
Árni Hjartarson og Jóhann Þórs-
son á fund þáverandi umhverfis-
og auðlindaráðherra, Sigurðar Inga
Jóhannssonar. Ásamt ráðherra
voru þeir Jón Geir Pétursson skrif-
stofustjóri og Sigurður Þráinsson
líffræðingur á fundinum. Sigrún
Magnúsdóttir tók við ráðherrastarf-
inu eftir áramótin. Hinn 23. janúar
var hún sótt heim og var sendi-
nefndin þá aftur skipuð þeim Árna
og Jóhanni. Með Sigrúnu á fund-
inum voru Ingveldur Sæmunds-
dóttir aðstoðarmaður ráðherra og
Sigurður Þráinsson líffræðingur. Á
báðum þessum fundum fór fram
ágæt kynning og umræður um
NMSÍ og lýstu ráðherrar stuðningi
við málstað safns og félags. Sig-
urður Ingi vildi þó fáu lofa en Sig-
rún var sérdeilis vinsamleg safninu.
Hét hún stuðningi við náttúrusýn-
ingu í Perlunni, og við þá baráttu að
upp rísi höfuðsafn í náttúrufræðum
í borginni.
Margítrekuð ósk HÍN um fund
með menntamálaráðherra hefur
legið inni í ráðuneyti hans allt frá
haustinu 2013. Í nóvember kom loks
svar um að ráðherra gæti því miður
ekki fundað með fulltrúum HÍN en
boðið var upp á fund með aðstoðar-
manni ráðherra, Sigríði Hallgríms-
dóttur. HÍN-fulltrúar, þau Árni,
Hafdís Hanna og Herdís Helga
Scopka, mættu svo á þann fund 21.
nóvember. Þá kom í ljós að aðstoðar-
maðurinn gat ekki mætt en sendi
á fundinn Karítas Gunnarsdóttur
skrifstofustjóra og Eirík Þorláksson
sérfræðing. Umræður voru góðar
en bagaleg þótti fjarvera aðstoðar-
mannsins og fálæti ráðherrans. Sem
betur fer er þessi framganga eins-
dæmi. Ósk um fund með mennta-
málaráðherra hefur verið ítrekuð
og er enn beðið viðbragða úr ráðu-
neytinu.
Lokaorð
Starfsárið 2014–2015 getur kallast
köflótt ár, með bjartar hliðar og
dökkar. Útgáfa tímaritsins hefur
gengið vel og samstarfið við NMSÍ
er farsælt. Fjárhagsstaðan er góð og
fræðslufundirnir hafa þótt áhuga-
verðir og vel heppnaðir. Fækkun
félagsmanna veldur á hinn bóginn
áhyggjum og baráttan fyrir bættri
stöðu Náttúruminjasafnsins hefur
ekki skilað árangri.
Reykjavík 20. febrúar 2015
Árni Hjartarson, formaður
Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra tók á móti fulltrúum félagsins hinn 23.
janúar 2015. Ráðherra var sérdeilis vinsamlegur safninu og hét stuðningi við náttúrusýningu
í Perlunni og við þá baráttu að upp rísi höfuðsafn í náttúrufræðum í borginni. Hér er Sigrún
ásamt Árna Hjartarsyni formanni HÍN og Jóhanni Þórssyni félagsverði. Ljósm. Sigurður Þrá-
insson.