Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 21

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 21
21 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Aðferðir Sýni voru tekin af mó úr framræstum mýrum í þremur landshlutum: Við Eyjafjörð nálægt bænum Hellu á Árskógsströnd, í Grímsnesi við bæinn Eyvík og við Þistilfjörð nálægt bænum Ytra-Álandi (2. mynd, 1. tafla). Á hverjum stað var tekið lóðrétt snið af óröskuðum jarðvegi og notað til frekari sýnatöku. Við einangrun frjókorna var fylgt hefðbundnum aðferðum með hitun í NaOH, sigtun og hreinsun með HCl, HF, asetólýsu og etanóli. Sýnin frá Hellu voru tekin 1996 og geymd í glyseríni eftir hreinsun en sýnin frá Eyvík og Ytra-Álandi, sem voru tekin 2006 og 2011, voru þurrkuð með TBA (Tert-Butyl Alcohol) og geymd í sílikon-olíu. Fjögur ný sýni frá Hellu voru undirbúin á sama hátt til samanburðar. Aldursákvörðun sýnanna byggðist að hluta á þekktum öskulögum og að hluta á kolefnisaldursgreiningu. Aldur er gefinn upp sem cal BP, þ.e. reiknaður árafjöldi fyrir 1950, eða cal ka BP, þegar átt er við þúsundir ára, hvort sem fjallað er um geislakolsgreiningar eða talningu ára úr ískjarna Grænlandsjökuls. Frjókorn sem höfð eru í glýseríni stækka, en almennt er talið að sílikonolía hafi ekki áhrif á stærð. Við samanburð á stærð birkifrjókorna úr sýnum frá Hellu, annars vegar í glyseríni og hins vegar í sílikonolíu, kom í ljós að fleira hefur áhrif á kornastærð en í hvaða vökva þau eru geymd. Í ljós kom að stærðarmunur var þeim mun meiri því neðar úr sniðinu sem sýnin voru tekin. Aðstæður í mýrinni eða tíminn sem kornin höfðu legið þar hafði einnig haft áhrif á stærðina. Þetta gerði að engu möguleika á að nota fyrirframákveðin stærðarviðmið til að greina á milli frjókorna ilmbjarkar og fjalldrapa. Í staðinn var stærðar- dreifing innan hvers sýnis skoðuð og hlutföll tegunda reiknuð út miðað við að báðar tegundir hefðu normaldreifða kornastærð innan hvers sýnis. Til þess voru notaðar aðferðir Bhattacharyas,11,12 jafna Járai-Komlódi13 og forritið Bmod.14 Birkifrjókorn sem höfðu fleiri en þrjú frjópípugöt voru talin en ekki mæld og hlutfallslegur fjöldi þeirra notaður sem vísbending um tegundablöndun. Frjógreining var einnig gerð á sýnunum til þess að fá upplýsingar um gróðursögu hvers svæðis og sögu birkisins.8,9,15 Niðurstöður Saksunarvatnsaskan er frá einu eða fleiri Grímsvatnagosum frá því fyrir um 10.300 árum.16 Hún finnst neðarlega í öllum sniðunum og því endurspegla frjókornin sem þar finnast fyrsta birkið sem nam land á nútíma, eftir hremmingar síðasta jökulskeiðs. Í öllum sniðunum sýndu niðurstöðurnar vaxandi fjölda birkifrjókorna fyrstu aldirnar og jafnframt vaxandi hlutfall ilmbjarkar af birkifrjókornum. Síðan tóku við tímabil þar sem ýmist dró úr magni birkis eða það jókst (3. mynd). Í öllum sniðunum fundust afmörkuð tímabil þar sem mikið var um afbrigðileg birkifrjókorn og ætla má að þá hafi margir blendingar ilmbjarkar og fjalldrapa vaxið í nágrenni sýnatökustaða.*Upplýsingar frá nærliggjandi veðurstöð (Hella: Akureyri; Eyvík: Hæll; Ytra-Áland: Þorvaldsstaðir). – Data from nearby weather station (Hella: Akureyri, Eyvík: Hæll, Ytra-Áland: Þorvaldsstaðir). Gögn/Source: Veðurstofa Íslands, Icelandic Meteorological Office. 1. tafla. Sýnatökustaðir – Sampling sites. Staður Site Hella Eyvík Ytra-Áland Breiddargráða / Latitude 65°56´35´´N 64°03´17´´N 66°12´29´´N Lengdargráða / Longitude 18°24´20´´W 20°41´37´´W 15°33´19´´W Hæð yfir sjávarmáli / Altitude (m) 15 65 34 Lengd sniðs / Monolith length(cm) 200 108 108 Tímabil / Period covered (cal ka) 7,1–11,4 7,6–10,3 0–10,3 Meðalárshiti / Mean annual temp 1930–1960* 3,2°C 3,6°C 2,8°C Meðalhiti í júlí / Mean July temp. 1930–1960* 10,5°C 10,6°C 8,5°C Fjöldi sýna / Number of samples 39 44 47 Aldursákvörðun / Dating method Þekkt öskulög / Known tephras 2 2 5 Kolefnisgreiningar / 14C datings - 2 2 Meðalsethraði / Average deposition rate (mm ári-1 / mm year-1) 0,5 0,4 0,1 2. mynd. Sýnatökustaðir. – Sampling sites.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.