Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 61

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 61
61 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags meðal annars komið fyrir í mælabúri sem gengið var frá eftir kúnstar innar reglum. Mælitækin voru þurr hitamælir og síritandi hitamælir, enn fremur síritandi vind hraðamælir og úr komu safn mælir. Ég áttaði mig á því þegar í stað að tjaldnautur minn hafði ýmislegt til brunns að bera. Útivist og fjallaferðir voru meðal hugðarefna hans og er ég ekki víðs fjarri því að í þeim efnum höfum við náð einkar vel saman enda þótt aldrei væri ég handgenginn skátahreyfingunni líkt og hann. Athygli vakti hve vel Kristinn var að sér um afrek og svaðilfarir land könnuða fyrri tíðar í heim skautaleiðöngrum og fróðlegt að spjalla við hann um þau efni öll. Þá var þessi nýi fé lagi minn glaðsinna, áræðinn og úrræðagóður og lét hvergi deigan síga. Téðan Landrover tókum við iðulega til kostanna og öttum óspart á hvert það forað sem á vegi okkar varð, til dæmis þegar við beinlínis klifum Fagradalsfjallið til sýnatöku. Ég minnist þess ekki að okkur hafi fundist nema sjálfsagt að við bærum okkur að með þeim hætti. Var enda öllu vænlegra til árangurs en að slíta sér út við að bera allt það grjót á sjálfum sér sem ugglaust var um hendis nokkuð og yrði til muna seinlegra. Bíll þessi nefndist Guðjón okkar á meðal og var kall merkið í talstöðinni „Ingi tíu sextíu og fjórir“. Annan jeppa fengum við síðar, Willysjeppa ættaðan af Héraði, og nefndum aldrei annað en Umba. Það gat komið sér vel að vera ekki lengur einbíla – annar gæti þá dregið hinn ef á þyrfti að halda. Á það reyndi óðar en varði og raunar hvað eftir annað. Í þann tíð var allt þess háttar yfirgengilegt bílabrölt jafnvel talið til marks um garpskap og áræði. Orðið utan vegaakstur heyrðist aldrei úr munni manna eða hafði að minnsta kosti ekki öðlast þá merkingu sem orðið ber í sér nú um stundir – hvað þá að athæfið vekti mönnum hroll eða ylli viður styggð náttúru - kera. Um hverfis sinnar höfðu enn ekki látið að sér kveða að neinu marki hér lendis og Laxár stíflan var rétt ósprungin þegar við héldum inn á öræfin. Það má þó segja mælinga mönnum og öðrum slíkum til afbötunar að ekki gefst allt of rúmur tími til at- hafna á há lendi Íslands frá því að snjóa leysir og frost fer loks úr jörðu og þar til allt er komið á kaf í snjó á nýjan leik. Í slíku samhengi er mönnum því nokkur vorkunn enda ríður á að komast yfir sem mest og nýta stuttan tíma til athafna eins og best verður á kosið. Engan þekki ég sem kann full skil á öllum þeim slóðum út um hvuppinn og hvappinn sem mælinga menn hafa skilið eftir sig víðs vegar um hálendið. Enda þótt við yngri mennirnir gerðum okkar besta komumst við aldrei með tærnar þar sem meistari vor hafði hælana í þessum efnum. „Guttorma“ nefndum við Kristinn slíkar slóðir sem virtust á þessum árum spunnar af fingrum fram út um gervallt hálendi Íslands beggja vegna vatnaskila og eru hvergi skráðar á landakort – ekki fremur en kennileiti og örnefni úr okkar eigin smiðju á borð við „Öxulbrjót“ og „Bræðra pytt“, enda má ætla að þær mis fellur í landslagi séu nú til allrar guðs lukku máðar af yfirborði ætt jarðar vorrar eftir nær - fellt hálfa öld. Ég minnist orða sem Guttormur lét falla þegar við lögðum leið okkar um Holu hraun og sund riðum þeim Guðjóni og Umba yfir Jökulsá á Fjöllum þar sem hún fellur í kvíslum um flæðurnar undan Dyngjujökli: „Jæja, drengir. Nú höfum við farið það sem Guð mundur Jónas son hefur aldrei farið. En hann hafði heldur ekki loftmyndir eins og við.“ Fagurt var mannlíf þar efra. Er engan veginn ofmælt að félagar mínir voru snillingar, allir með tölu. Menn höfðu vísur á hraðbergi og ýmis- lega sagnaskemmtan – að vísu ekki ávallt ein bert Setið í festum. Hvað er nú til ráða? Norðan undir Álftadalsdyngju á leið til byggða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.