Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 25
25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
og norðurhluti Rússlands (7. mynd).
Þar fyrir sunnan var breitt belti
freðmýra og síðan gresjur. Skóga
var ekki að finna fyrr en nær dró
Miðjarðarhafi. Ilmbjörkin þurfti því
að breiðast út frá ísaldarskjóli um
meira en þúsund kílómetra langan
veg og allar líkur eru á að fjalldrapi
hafi víðast numið land á undan
henni. Ennþá má finna erfðafræðileg
merki þeirrar blöndunar sem varð
milli tegundanna á þessari veg-
ferð.25,26
Á það hefur verið bent að teg-
unda blöndun plantna, sem brýtur
niður sérhæfingu en stuðlar að
fjölbreytilegri arfgerðum, geti
stundum orðið til þess að auðvelda
landnám nýrra búsvæða.27,28 Á
sama hátt gæti tegundablöndunin
sem mótaði lágvaxna, harðgerða
fjallabirkið hafa flýtt fyrir land-
námi ilmbjarkar í þeim lofts-
lagsbreytingum sem einkennt hafa
ísöld og nútíma.
Framtíð íslensku
skóganna
Saga íslenskra birkiskóga á
nútíma hefur verið lesin úr fjölda
frjórannsókna.24,15,24 Hún spannar
nærri 10 þúsund ár og einkennist
af vaxandi útbreiðslu á fyrri
hluta tímabilsins og samdrætti á
síðari hlutanum, með sveiflum
sem tengjast breytingum í árferði.
Niðurstöður þeirra rannsókna
sem hér er sagt frá fylgja sama
heildarmynstri. Allt fram að land-
námi tengist afkoma birkiskóga
fyrst og fremst loftslagi en síðustu
þúsund ár hefur landnýting haft
veruleg áhrif umfram aðra þætti.
Sveiflur í loftslagi hafa ennfremur
stuðlað að blöndun ilmbjarkar
og fjalldrapa á þann hátt að við
vaxandi útbreiðslu ilmbjarkar
verða til tegundablendingar sem
síðar geta miðlað erfðaefni til
foreldrategundanna. Það má leiða
að því líkur að blöndunin gagnist
ilmbjörk þar sem lífsskilyrði eru á
mörkum þess að hún geti viðhaldist.
Með öðrum orðum að lágvaxið,
margstofna birki með marga
eiginleika ættaða frá fjalldrapa sé
harðgerðara en hreinræktuð ilmbjörk.
Líklegt er að þær lofts lags-
breytingar sem nú standa yfir, og
eru taldar ógna bæði búsvæðum
dýra og afkomu manna um heim
allan, muni gagnast ís lensk um
birki skógum. Í skýrslu Lofts-
lagsnefndar Sameinuðu þjóðanna
(IPCC) frá 200729 var því spáð
að á heimskautasvæðum myndi
meðalárshiti á 21. öld hækka
um 5°C en sumarhiti hækka um
2°C. Á undanförnum árum hefur
gróðurþekja aukist hérlendis30 og
skógarmörk hafa færst ofar22. Sýnt
hefur verið fram á að fjallabirkið
í norðanverðri Skandinavíu
hefur nýlega breiðst upp fyrir
fyrri skógarmörk með hlýnandi
loftslagi.31 Ef breytingar halda áfram
í sömu átt breiðist birkiskógur út á
víðáttumiklum svæðum þar sem
nú er mólendi og melagróður, þó
því aðeins að landnotkun hefti ekki
slíka útbreiðslu. Bæði fjalldrapi og
ilmbjörk færast þá ofar í landið.
Meðan á þeirri tilfærslu stendur
má búast við bylgju kynblöndunar
þegar blóm fjalldrapans frjóvgast af
ilmbjarkarfrjóum og ilmbjarkarblóm
frjóvgast af fjalldrapa, þótt í minna
mæli verði. Fjöldi blendingstrjáa í
núverandi skóglendum3 bendir til
þess að þessi bylgja sé þegar hafin.
Í hlýrra loftslagi víkja blendingarnir
smám saman fyrir hávaxnara birki
en áður en að því kemur ná sumir
þeirra að víxlast aftur við fjalldrapa
eða ilmbjörk og auka þannig á
fjölbreytni genasamsetninga sem
þróunin getur unnið með áfram.
Abstract
Hybridisation of downy birch
and dwarf birch in the Holocene
Downy birch (Betula pubescens Ehrh.) and
dwarf birch (Betula nana L.) belong to
the same genus, Betula. Both are impor-
7. mynd. Hugmynd um Evrópu við hámark síðasta jökulskeiðs fyrir um 20 þúsund árum.
Blár litur sýnir jökulhelluna, grár freðmýrar, ljósgrænn gresjur og dökkgrænn skóga. –
Europe during the Last Glacial Maximum around 20 000 cal years BP. Blue: icecap, grey:
tundra, light green: steppe, dark green: forests. Unnið eftir/Adapted from metatech.org á
kortgrunn frá/on a map from alabamamaps.ua.edu.