Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 62

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 62
Náttúrufræðingurinn 62 guðsorð, en kom þó hvergi að sök. Menn létu allt fjúka, hvort sem var í bundnu eða lausu, en ætíð ríkti ofar öllu öðru samheldni og eindrægni í okkar litla, einangraða sam fé lagi. Öræfakyrrðinni þarf tæpast að lýsa fyrir þeim sem kynnst hafa. Öðru hverju létu heimilis fastir íbúar Kreppulóns, há vellur, álftir og gæsir, til sín heyra. Þá mátti oft heyra allt að því taktfastan slátt í stagi eða vind þjóta við tjaldskör eða það hljóð sem verður þegar regn hryðjur eða hagl él ganga yfir svo bylur í tjald dúknum. Hráslagalegt hríðarveður og gnauð vinda í ómælis víðáttu öræfanna er í ein hvers konar notalegu ósamræmi við ylinn og ör yggið inni fyrir – undir að vísu næfurþunnum tjald himni. Okkur var einskis vant og undum eins og blómi í eggi við þann aðbúnað sem kostur var á. Öll að föng fluttum við með okkur úr byggð en fyrir kom að við legðum okkur til munns væna fjalla bleikju úr Kreppu lóni. Fyrst í stað freistuðum við þess að geyma vistir í fönnum og sköflum en ekki gekk allt of vel að halda mat vælum nógu köldum til lang frama með þeim hætti. Því var það að menn opnuðu æ fleiri niður - suðudósir sem lengra leið á úthaldið. Samskipti við umheiminn fóru fram um tal stöð, yfir leitt gegnum Seyðisfjarðarradíó. Ég man að útvarpssendingar náðust illa, nema hvað mis daufur ómur barst öðru hverju á ljósvakanum með tilheyrandi snarki og skruðningum frá Radio Luxemburg. Þetta var sjó - ræningja stöð í Norðursjónum sem sendi út það sem hæst bar í breskri harktónlist. Dygga bandamenn eignuðumst við beggja vegna Möðrudalsöræfa og koma í hugann Bragi á Gríms - stöðum og Hákon heitinn Aðalsteinsson. Þá kom fyrir að við nutum gestrisni Jóns Stefáns sonar í Möðru dal sem sá meðal annars ástæðu til að sýna okkur fram á skaðsemi reykinga. Kirkja hans væri til marks um það hverju menn fengju áorkað ef þeir sólunduðu ekki fjár munum sínum í tóbak eða aðra óráð síu. Jón lagði sig einnig fram um að kynna okkur tón menntir og verður það ætíð með öllu ógleymanlegt. Þá lögðum við stöku sinnum leið okkar í byggð og sóttum heim félaga okkar í Fljótsdal. Elsa heitin Vil mundar dóttir, jarðfræðingur, sat þá í sæmd sinni að Skriðuklaustri en undirsátar hennar byggðu eins konar annexíu í fé lags heimilinu Végarði. Þar svaf starfslið Elsu í flatsæng á leiksviði hússins en gögnum og búnaði var komið fyrir í sjálfum samkomusalnum. Í Vé garði hafði einnig aðsetur mælinga flokkur sem laut forystu Gunnars heitins Þor bergs sonar. Það orð fór af Gunnari að hann væri fremur fá talaður en menn höfðu stöku sinnum eftir honum eitt og annað sem hann átti til að læða út úr sér. Brunaboða hafði verið komið fyrir við nátt ból Végerðinga. Kyndi klefi var í kjallaranum undir sviðinu. Var bundið firnalangt snæri við olíu- brennarann í neðra en síðan leiddu menn spottann alla leið úr kjallaranum upp á sviðið og smeygðu yfir rennibraut þá sem ætluð var til þess að hengja á leiktjöld eða því umlíkt. Loks var blikkfata hengd neðan í snærisspottann og fyllt með grjóti og rör bútum eða því sem pípu lagningamenn kalla „fittings“. Búnaðinum var ætlað að virka með þeim hætti að ef eldur yrði laus í kyndiklefanum brynni snærið í sundur. Við það skylli fatan lóðbeint niður á leik sviðið með til heyrandi fyrirgangi og vekti menn af værum blundi. Einhverju sinni þegar við Kristinn komum í Végarð stóð hugur okkar öðru fremur til þess að bæta okkur upp allan þann gleð skap sem við þóttumst hafa farið varhluta af í fásinni og ein- Tjaldbúðirnar í Grágæsadal um miðjan júlí að afstöðnu hreti.Kristinn Albertsson og greinarhöfundur. Við sváfum í vinstra tjaldinu og þar glittir í tvo svonefnda bretabedda – hægra megin tjald sem gegndi hlutverki eldhúss og matstofu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.