Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 59
59
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Á Brúaröræfum með Kristni J.
Albertssyni og fleiri góðum mönnum
Við andlát míns gamla félaga, Kristins J. Albertssonar,
finn ég með mér þörf til að minnast liðinna daga og
því hafa eftir farandi línur ratað á blað.
Síðastliðið haust hafði ég spurnir af því að heilsu
Kristins hefði skyndi lega hrakað og reyndi ég ítrekað
að ná fundi hans. Ég náði því miður aldrei að hitta
hann en þar kom þó að við spjölluðum saman í síma
all drjúga stund. Í því samtali vildi Kristinn gera sem
minnst úr áhyggjum mínum og taldi alveg af og frá að
menn gerðu sér rellu út af smámunum. Því var það að
talið barst óðara að ein hverju allt öðru. Spjallið barst
út um víðan völl og endaði í feiknalegum hláturs -
rokum af beggja hálfu – rétt eins og svo oft áður.
Og nú er hann allur.
Kynni okkar Kristins hófust sumarið 1970 þegar
við héldum tveir saman norður í land áleiðis austur
á Brúar ör æfi. Farkosturinn var Landroverbifreið,
einn þeirra jeppa sem Orkustofnun hafði á leigu
við virkjana rannsóknir. Áttu þessir leigujeppar
eitt sammerkt: Eftir að bifreiðar þessar höfðu lengi
þjónað eigendum sínum vel og dyggilega höfðu
þær yfirleitt lifað sitt fegursta blómaskeið þegar
Orku stofnun fékk þá til brúkunar. Það tók okkur
tvo daga að komast alla leið til Akureyrar enda eitt
og annað sem gaf sig á leiðinni. Eftir dag á verk -
stæði nyrðra var bíllinn þó talinn fullgóður í slarkið
og frá Akureyri héldum við um Mývatns sveit og
Möðrudal, því næst til suðurs um öræfin og allt inn
að svo nefndu Kreppulóni í Grá gæsadal, skammt
frá ármótum Kverkár og Kreppu. Þangað náðum
við á fjórða degi.
Helstu heimildir um það sem í hönd fór eru
dagbókarslitur undirritaðs og veðurbók, enn fremur
skýrsla Guttorms Sigbjarnarsonar um viðfangsefni
okkar sem var í því fólgið að afla gagna til jarð fræði -
korts af há lendinu norðan Vatna jökuls.
Náttúrufræðingurinn 86 (1–2), bls. 59–63 , 2016
Á blíðviðrisdegi í Grágæsadal. Talið frá vinstri: Greinarhöfundur,
Guttormur Sigbjarnarson, Kristinn Albertsson. Ljósmyndir
eru úr safni Kristins, en ljósmyndarar óþekktir.