Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 53

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 53
53 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags safnast fyrir í dældum og lægðum. Hér verða á hinn bóginn aðeins skoðuð tilvik þegar vindur er hvassari en 6,0 m/s. Gögn Hveravellir eru á Kili, milli Langjökuls og Hofsjökuls (1. mynd). Þar hefur veður verið athugað frá árinu 1966. Fyrstu áratugina sinntu veðurathugunarmenn mælingum, en frá árinu 2004 hefur ekki verið föst viðvera á veðurstöðinni og eru allar mælingar nú gerðar með sjálfvirkum tækjum. Á sínum tíma var veðurathugunarstöð valinn staður á Hveravöllum vegna þess meðal annars að þar var veður talið gefa nokkuð glögga mynd af veðri og veðurfari á stórum hluta hálendis Íslands. Liggja þau sömu rök að baki því að Hveravallagögn hafa verið valin í þeirri athugun sem hér segir frá. Víst má telja að það sem hér verður lesið úr gögnum eigi almennt við á landinu, nema ef til vill á stöku stað við rætur fjalla. Hveravallastöðin er í 641 m hæð yfir sjávarmáli og ekki nærri háum eða bröttum fjöllum sem stuðlað gætu að mjög staðbundnu veðri. Þótt brött fjöll séu ekki í næsta nágrenni Hveravalla mótast vindar þar þó að einhverju marki af því að Langjökull er um 10 km vestur af stöðinni en Hofsjökull í um 20 km fjarlægð í austurátt (1. og 2. mynd). Sitthvað fróðlegt má lesa um veðurstöðina og veðurfar á Hveravöllum í riti Flosa Hrafns Sigurðssonar o.fl. um stöðina.6 Í athuguninni sem hér er gerð grein fyrir hafa verið skoðaðar vindmælingar á Hveravöllum frá ársbyrjun 2005 til ársloka 2014. Á því tímabili liggja fyrir ágætar og samfelldar veðurathuganir, auk þess sem greiður aðgangur er að útgefnum veðurspám í sjónvarpi. Notast er við 10 mínútna meðalvind á klukkustundarfresti, eða tæplega 88 þúsund athuganir. Vindáttin Í hægum vindi er vindátt oft afar breytileg. Lítilsháttar breytingar á loftþrýstingi, sem eiga sér ýmsar orsakir, geta leitt til þess að andvari komi úr gagnstæðri átt miðað við það sem var fyrir örskömmu, án þess að hægt sé um vik að skýra breytinguna. Í strekkingsvindi er jafnan minni breyting á vindátt og verður nú nánar litið á vindáttarbreytingar þegar svo háttar til. Á 3. mynd er vindátt á Hvera- völlum sýnd sem fall af vindátt klukkustund fyrr, þegar vindur er hvassari en 8,0 m/s (kaldi, 5 vindstig) í báðum athugunum. Þótt meðalvindhraði á Hveravöllum sé um 7,4 m/s fækkar þetta skilyrði tilvikum í tæplega 16.800. Ljóst er að í langflestum tilvikum breytist vindátt lítið, enda eru flestir punktarnir á myndinni nálægt línu sem dregin er þar sem láréttur og lóðréttur ás hafa sömu gildi. Punktaklasarnir í horninu neðst til hægri og efst til vinstri eiga rætur að rekja til þess að í norðanátt getur vindátt sveiflast milli þess að hafa lágt gildi (NNA-átt) og að vera í tæpum 360˚ (NNV-átt) án þess að um mikla breytingu á vindátt sé að ræða. Á punktaritinu má sjá að vestanátt og austanátt eru fátíðari en aðrar vindáttir. Fullvíst má telja að skýringin sé sú að Hofsjökull og Langjökull stýra vindátt, þótt jöklarnir séu ekki í næsta nágrenni Hveravalla. 2. mynd. Börn að leik í túnfæti veðurstöðvarinnar á Hveravöllum á Kili. Myndin er tekin síðdegis 29. júní 2006. Hofsjökull er í baksýn og yfir honum er gat á skýjahulunni sem líklega á rætur að rekja til niðurstreymis í austlægri vindátt. Vindur á Hveravöllum var af SSA. – A view to the east from Hveravellir in the afternoon of 29 June 2006. Surface winds are from SSE and the clouds are broken, presumably due to descending air in easterly flow over Hofsjökull. Ljósm./Photo: Haraldur Ólafsson. Á Hveravöllum á Kili er bensínstöð sem nýtist ferðafólki á ýmsum aldri. Myndin er líklega tekin sumarið 1969. – Hveravellir is a popular destination. The picture is probably taken in the summer of 1969. Ljósm./Photo: Sigrún Ólafsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.