Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 22
Náttúrufræðingurinn 22 Sniðið frá Hellu í Eyjafirði spannar tímabilið frá því fyrir um 11.400–7.100 árum. Afbrigðileg birkifrjókorn fundust í flestum sýnum en í nokkrum sýnanna var hlutfallið mjög hátt. Þetta bendir til þess að mikil tegundablöndun hafi orðið á talsverðu tímabili fyrir um 9.000 árum, á sama tíma og ilmbjörk varð ríkjandi í gróðursamfélaginu. Afbrigðileg frjókorn urðu aftur algeng fyrir um 7.300 árum, einnig samfara vaxandi hlutfalli ilmbjarkar (3. mynd a). Sniðið frá Eyvík í Grímsnesi spannar tímabilið frá því fyrir um 10.300–7.500 árum. Landnám birkis hófst þar heldur síðar en við Eyjafjörð og ilmbjarkarfrjókorn mynduðu ekki jafn hátt hlutfall af heildarfjölda frjókorna. Fjalldrapi var mikilvægur hluti flórunnar og ilmbjörk varð ekki verulega útbreidd fyrr en eftir kuldatímabilið fyrir rúmlega 8.000 árum. Hlutfall afbrigðilegra birkifrjókorna fór tvisvar yfir 5% á þessu rúmlega 3.000 ára tímabili sem gefur vísbendingu um að tegundirnar hafi líka blandast á þessu svæði (3. mynd b). Sýnin frá Ytra-Álandi í Þistilfirði spanna allan nútíma, frá því fyrir um 10.300 árum til okkar daga. Frjógreining sýndi langt tímabil melagróðurs, síðan mólendi sem átti blómaskeið sitt fyrir um 8.000 árum með miklu frjófalli. Fram til þess tíma fannst aðeins lítið eitt af birkifrjókornum en þá hófst afar hratt landnám birkis. Toppur í birkifrjói fyrir um átta þúsund árum kemur varla fram á 3. og 4. mynd vegna gríðarlegrar fjölgunar annarra 3. mynd. Birkifrjókorn frá sýnatöku stöðunum þremur. a Hella, b Eyvík, c Ytra-Áland. Gráar súlur sýna hlut- fall birki frjókorna af öllum þurr lendis frjókornum, svört lína sýnir reiknað hlutfall ilmbjarkar af öllum birkifrjókornum, grá lína með hringjum sýnir hlutfall birkifrjókorna með fleiri en þrjú frjópípugöt af öllum birkifrjókornum. Litaðir hringir tákna sýni þar sem fjöldi afbrigðilegra frjókorna bendir til þess að tegundablöndun hafi átt sér stað. – Betula pollen from the three sampling sites, a Hella, b Eyvík and c Ytra- Áland. Grey columns represent the proportion of Bet- ula pollen in total land pollen, black line shows calculated proportion of B. pubescens pollen in all Betula pollen, grey line with circles shows proportion of abnormal (nontriporate) pollen grains in all Betula pollen. Filled circles represent samples where the fre- quency of abnormal pollen suggests species hybridisa- tion.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.