Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 23

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 23
23 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags frjókorna en er sýndur á 5. mynd c. Þessu birkiskeiði lauk með breyttu loftslagi, jarðvegur varð mjög blautur og fyrir um 7.000 árum var birki nær horfið. Birkið breiddist aftur út hægt og hægt og náði hámarki fyrir um 5.000 árum en hefur hörfað eftir það. Hlutfall ilmbjarkarfrjókorna hefur lækkað samfara almennri fækkun birkifrjókorna. Afbrigðileg birkifrjókorn fundust í mörgum sýnum, mest fyrir um 7.400 árum og aftur fyrir um 3.300 árum (3. mynd c). Samanburður þessara þriggja mósniða sýnir að ilmbjörk var fyrst að ná fótfestu við Hellu í Eyjafirði, fór hægar af stað við Eyvík í Grímsnesi en náði ekki að breiðast út nærri Ytra-Álandi í Þistilfirði fyrr en nærri þrjú þúsund árum seinna. Áhrif loftslags á birkiskóga sést þegar hlutfall ilmbjarkar í heildarfjölda þurrlendisfrjókorna er borið saman við loftslagsgögn úr Grænlandsískjarna17 (4. mynd). Svo virðist sem samband sé milli blöndunar tegundanna og framgangs ilmbjarkar í umhverfi þar sem fjalldrapi er fyrir. Þó er ekki ljóst hvaða kennistærð eða stiki hefur sterkust tengsl við tíðni afbrigðilegra birkifrjókorna og gæfi þannig skýrustu vísbendingar um tegundablöndun. Var þetta nokkuð mismunandi milli rannsóknar- staðanna þriggja. Kennistærðir sem tengjast tegunda blöndun eru t.d. hlutfall ilmbjarkar af heildarfjölda birkifrjókorna, meðalþvermál birki - frjókorna og reiknaður ár leg ur uppsöfnunarhraði (PAR) birki- frjókorna (5. mynd). 5. mynd. Hlutfall birkifrjókorna með fleiri en þrjú frjópípugöt (hringir) í samanburði við aðrar breytur (línur). Litaðir hringir tákna sýni þar sem fjöldi afbrigðilegra frjókorna bendir til þess að tegundablöndun hafi átt sér stað. a) Hlutfall ilmbjarkar af heildarfjölda birki frjó korna við Hellu í Eyjafirði. b) Meðal- þvermál birkifrjókorna við Eyvík í Grímsnesi. c) Reiknaður árlegur upp söfnunarhraði birkifrjókorna við Ytra-Áland í Þistilfirði. Takið eftir að lóðréttir mæli kvarðar eru mismunandi þótt lárétti tímakvarðinn sé sá sami í a, b og c. – Frequencies of nontriporate Betula pollen (open circles) compared with other variables (lines). Filled circles represent samples where the frequency of abnormal pollen suggests species hybridisation. a) Pro- portion of B. pubescens in total Betula pol- len at Hella. b) Average Betula pollen diameter at Eyvík. c) Calculated Betula pol- len PAR (Pollen Accumulation Rate) values at Ytra-Áland. Notice different vertical scales although the horizontal time scale is the same in a, b and c. 4. mynd. Hlutfall ilmbjarkarfrjókorna í heildarfjölda þurrlendisfrjókorna frá Hellu í Eyjafirði (græn lína), Eyvík í Grímsnesi (rauðgul lína) og Ytra-Álandi í Þistilfirði (blá lína), borið saman við hlutfall súrefnis- ísótópa í Grænlandsjökli17 (grá lína) sem gefur vísbendingu um hitastig. – Proportion of Betula pubescens pollen in total land pollen at Hella (green line), Eyvík (orange line) and Ytra-Áland (blue line), compared with the temperatures based on oxygen isotope proportions from the Greenland Icecore Project17 (grey line).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.