Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 29

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 29
29 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Vatnamýs á Íslandi Inngangur Árið 1988 birtist pistill í Náttúru- fræðingnum um litla vöndla úr dauðum mosagreinum. Var þeim gefið heitið vatnamýs enda fundnar í vatni eða við vötn og eldri íslensk orð ekki til um þessi fyrirbæri.1 Nú, tæpum þremur áratugum síðar, hafa vatnamýs fundist á fleiri stöðum á landinu og tímabært að uppfæra upplýsingar um þessi náttúrufyrirbæri. Vatnamýs myndast í fersku vatni en kastast oft upp á land vegna öldugangs eða straumkasts. Þær hafa einnig fundist á sjávarströndu nærri árósum og hafa þá borist niður eftir ám til sjávar. Vatnamýs eru af tveimur megingerðum, (1) misstórir vöndlar (stundum kúlur) úr dauðum eða deyjandi mosa (stundum með öðrum gróðri eða efnum í bland) og (2) vöndlar úr lifandi mosa. Til eru kúlur í ferskvatni úr lifandi þörungum, annars vegar kúluskítur sem eru grænþörungar og hins vegar slorpungur sem eru bláþörungar.2,3,4,5,6 Vatnamýs hafa fundist víða erlendis, s.s. annars staðar á Norðurlöndum, í Norður- Ameríku og á Írlandi, en efni í þeim fer eftir aðstæðum.2,7,8,9,10 Svo virðist að náttúruskoðendur hafi veitt þessum fyrirbrigðum litla athygli. Vatnamýs finnast eflaust á fleiri stöðum á landinu en engin skipuleg könnun hefur farið fram til þessa. Í þessari samantekt er skráð það sem kunnugt er um vatnamýs á Íslandi, hvar þær hafa fundist til loka árs 2015 og ýmislegt um fundi þeirra og myndun, þ.á m. um stærð vöndlanna og um mosategundir sem mynda þá. Efniviður og aðferðir Engin skipuleg könnun hefur farið fram á tíðni og útbreiðslu vatnamúsa og er hér byggt á eintökum sem náttúruskoðarar, þ.á m. höfundar, hafa safnað á ýmsum stöðum á landinu. Farið var á suma þekkta fundarstaði gagngert til þess að kanna aðstæður nánar og safna eintökum. Einnig var leitað til ýmissa náttúruskoðara, t.a.m. vatnalíffræðinga, og spurt hvort þeir hefðu orðið varir við vatnamýs. Greiningar á sýnum voru í höndum Lars Hedenäs mosa fræðings við náttúru- gripasafnið í Stokkhólmi sem er meðal höfunda þessar greinar. Áður hafði Bergþór heitinn Jóhannsson mosafræðingur greint mosategundir úr sýnum frá þremur fyrstu fundarstöðum vatnamúsa í landinu1 og einum til viðbótar (Hraunsfjarðarvatni). Eintökin voru mæld þurr og eftir geymslu í mislangan tíma. Þrjár mælingar voru gerðar með skífumáli, lengd, mesta breidd og minnsta breidd. Breiddarmælingar voru teknar með um 45º á milli mælingarlína. Breidd var mæld á tveimur stöðum vegna mismunandi lögunar. Við árslok 2015 höfðu mosavöndlar sem kallaðir eru vatnamýs (e. false lake balls) fundist á 17 stöðum á landinu. Vatnamýs myndast þegar mosi veltist í vatni vegna öldugangs eða straumkasts og verður oftast kúlulaga að lokum. Fyrstu tveggja fundarstaða árið 1969 og hins þriðja 1982 er getið í fyrri grein um þetta efni.1 Hér eru skráðir fundir vatnamúsa á 14 stöðum til viðbótar. Fundarstaðir eru dreifðir um land allt. Fimm staðanna eru í Þistilfirði og þar hafa jafnframt fundist langflest eintök, en aðrir fundarstaðir eru stakir hér og þar. Vatnamýs eru misjafnar að stærð, allt frá um 20 upp í 195 mm að lengd. Við greiningu mosategunda í vatnamúsum frá tólf stöðum fundust 34 tegundir. Sum mosaeintök var aðeins unnt að greina til ættkvíslar eða ættar. Eintök frá fjórum stöðum höfðu verið greind áður og fundust í þeim fjórar mosategundir. Alls hafa því fundist 38 tegundir mosa í hérlendum vatnamúsum. Engin eintök eru til frá einum fundarstaðanna (Þjórsárverum). Ævar Petersen, Lars Hedenäs, Kristín Jónsdóttir, Róbert A. Stefánsson og Skarphéðinn G. Þórisson Náttúrufræðingurinn 86 (1–2), bls. 28–41, 2016 Ritrýnd grein
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.