Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 31

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 31
31 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags fjórðungi vatnamúsa á fundarstað hafi verið safnað og miðað við þann fjölda voru áætluð 320 eintök á staðnum. Sumar voru í vatninu við bakkann en aðrar höfðu skolast upp á land. 5. Ormarsá, Þistilfirði, N.-Þing. (66.414612°N; 15.902303°V), um 2002–2010. Hundruð eintaka fundust á þessu árabili en aðeins nokkrum tugum eintaka var safnað. Gunnur Jónasdóttir og Guðjón Bjarnason, Reykjavík. Árið 2014 fengust 26 eintök hjá finnanda sem hélt eftir 10–15 eintökum. – Gunnur segir að fyrst hafi sést vatnamýs um 2002 neðst við Ormarsá, bæði við ána sjálfa og á sjávarströndinni rétt utan óssins, í Hjallhöfn. Eintökum var safnað á mismunandi árstímum í rúman áratug og þá helst þeim „fallegu og stóru“ eins Gunnur komst að orði. Mörg eintök eru varðveitt hjá finnanda, bæði í sumarbústað á Hóli við Raufarhöfn og á heimili í Reykjavík, og hafa þau eintök hvorki verið skoðuð né mæld. Gestir hafa iðulega verið leystir út með eintaki til minja. Því má gera ráð fyrir að tugir vatnamúsa frá þessum slóðum séu í vörslu annarra. Einn höfunda (Ævar Petersen) og Guðmundur Ö. Benediktsson á Kópaskeri komu á staðinn 11. ágúst 2012 til að skyggnast um eftir vatnamúsum. Leitað var um 400 m upp með vesturbakka árinnar og aðeins út fyrir ósinn. Fundust tugir vatnamúsa sem kastast höfðu upp á land, flestar voru fullmyndaðir vöndlar en einnig lágu þarna ólögulegir mosavafningar, lausir í sér. Í litlu viki upp með ánni hafði fjöldi vatnamúsa fokið eða kastast upp á gras innan um rekaspýtur. Sum eintök voru gróin niður í grassvörð og gróður jafnvel farinn að spíra upp úr þeim. Var greinilega talsverður tími liðinn frá því að vatnamýsnar bárust upp á land. Aðrir vöndlar voru nýlegir og lágu lausir á árbakkanum. 6. Hraunsskeið, við Ölfusárós, Árn. (63.876948°N; 21.215756°V), 23. júlí 2005. 14 eintök og öllum safnað. Erling Ólafsson, Hafnarfirði. – Vatnamýsnar fundust á sjávar- ströndinni vestan við árósinn. Vöndl arnir eru úr mosa sem aðeins vex á landi eða í ferskvatni og hafa því borist til sjávar niður eftir Ölfusá hvort sem þeir hafa myndast í þeirri á, í vötnum sem tengjast henni eða þverám sem renna í hana. 7. Hraunsfjarðarvatn, Helga- fellssveit, Snæf. (64.923282°N; 22.935769°V), júní 2006. 10 eintök og var tveimur safnað. Sigurborg Sturludóttir, Stykkishólmi (Róbert A. Stefánsson, Náttúrustofu Vesturlands, munnl. uppl.) (2. mynd). – Annað eintakið er varðveitt á Náttúrustofu Vesturlands en hitt var sent til tegundargreiningar á Akureyri. Það kom síðan í hlut Bergþórs Jóhannssonar að greina mosann í því. Hann reyndist vera af tegundinni lautahnúskur (líka kallaður lautabrúskur) Kiaeria falcata. Nauðsynlegt reyndist að skera geira inn í eintakið til að nálgast sýni. Þá kom í ljós að vatnamúsin var óvenju þétt í sér. Fíngerð jarðefni höfðu blandast við mosann sem að auki var lifandi. Vatnamýsnar úr Hraunsfjarðarvatni eru einu heilu mosavöndlarnir úr lifandi mosa sem fundist hafa hérlendis. Nokkru eftir fundinn, 27. júní 2006, var farið á staðinn að nýju (Róbert A. Stefánsson) en þá var hann kominn undir vatn. Hafði Hraunsfjarðarvatn verið tekið undir miðlunarlón og yfirborð hækkað til muna frá því vatnamýsnar fundust. 8. Þjórsárver, sunnan Hofsjökuls. (64.600121°N; 18.726985°V), fyrir 2007. Fjöldi eintaka a.m.k. 58 skv. ljósmynd en engum safnað. Guðmundur P. 2. mynd. Vatnamús úr lifandi mosa af tegundinni Kiaeria falcata. Fannst í Hraunsfjarðarvatni árið 2006. Eini fundur vatnamúsar úr lifandi mosa á Íslandi. Því miður var fundarstaðurinn færður á kaf undir miðlunarlón skömmu eftir fundinn. – False lake ball made of live moss of the species Kiaeria falcata found in 2006 at Lake Hraunsfjarðarvatn. This is the only locality where entire false lake balls of live moss have been found in Iceland. Unfortunately, the finding locality was turned into a reservoir shortly after the lake balls were discovered. Ljósm./Photo: Róbert A. Stefánsson, 15.6. 2006.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.