Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 36

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 36
Náttúrufræðingurinn 36 lagst saman við geymslu og hliðar því misbreiðar. Slík afmyndun hafði einnig átt sér stað áður en eintökum var safnað enda stundum legið lengi á jörðu. Að öllu jöfnu er því meira mark takandi á lengdarmælingum. Stærðarmælingar er að finna í 1. töflu. Eintökin voru misstór, það lengsta 195 mm (úr Hafralónsá) en það stysta 20 mm (frá Þórshöfn). Mesta breidd eintaks var 125 mm (Hafralónsá). Stærð vatnamúsanna fer væntan- lega talsvert eftir því hve stór stykki detta í vatn eða hversu stórar flyksur losna úr árbotni. Að jafnaði voru vatnamýsnar úr Ormarsá langstærstar þótt eintak úr Hafralónsá hafi verið lengst safnaðra eintaka. Ein af stærri vatnamúsum úr Ormarsá var notuð til að mynda búk í skemmtilegan jólasvein (9. mynd). Tegundir mosa Í 2. töflu eru teknar saman upp- lýsingar um þær tegundir mosa sem greindar voru úr sýnum af vatnamúsum frá 12 fundarstöðum (stöðum 4–6 og 9–17). Samtals fundust 34 mosategundir í sýnunum, allt frá einni tegund (Nýlenduvatni) til 15 (Nýpslóni) á hverjum fundarstað. Frá sex stöðum fundust 10–12 tegundir í hverju sýni. Ef sýnið úr Nýlenduvatni er undanskilið var fjöldi tegunda úr vatnamúsum svipaður hvort sem þær fundust í vötnum eða ám. Nokkru fleiri tegundir var að finna í sýnum við árósa. Áður var búið að greina fjórar tegundir til viðbótar úr vatnamúsunum þremur sem fjallað er um í fyrri grein1 og frá einum fundarstað vatnamúsa til viðbótar (Hraunsfjarðarvatni). Þetta eru Kiaeria falcata, Sarmetypum exannulatum (áður Drepanocladus exannulatus), Scorpidium revolvens (áður Drepanocladus revolvens) og Meesia uliginosa. Því hafa alls fundist 38 mosategundir í íslenskum vatnamúsum. Rétt er að geta þess að tegundin Calliergon sarmentosum sem nefnd er í fyrri grein1 ber nú fræðiheitið Sarmentypnum sarmentosum, sbr. 2. töflu. Þá má einnig benda á að samkvæmt sameindarannsóknum inniheldur tegundin Hygroamblystegium (Amblystegium) varium (sjá 2. töflu) núna A. fluviatile og A. tenax sem hafa fundist hérlendis en voru áður skilgreindar sem tvær tegundir. 9. mynd. Jólasveinn sem Guðjón heitinn Bjarnason bjó til úr vatnamús sem fannst við Ormarsá í Þistilfirði. Búkurinn er úr einum stærsta mosavöndli sem fundist hefur hér á landi. Vöndlarnir voru sprautaðir með hárlakki til að halda þeim betur saman. Eigandi jólasveinsins er Gunnur Jónasdóttir, ekkja Guðjóns. – A yule lad made of false lakeballs from river Ormarsá in Þistilfjörður. The body was made from one of the largest balls found in Iceland. The balls were varnished to keep the moss better together. Ljósm./Photo: Ævar Petersen, 9.1. 2014. 2. tafla. Mosategundir sem fundust í sýnum vatnamúsa frá tólf stöðum á Íslandi. Gerð er grein fyrir fundarstöðum að framan, sjá einnig 1. töflu. Tölurnar höfða til fjölda stöngla og greina sem unnt var að tegundargreina nema þar sem annað er tilgreint. Ef fjöldi greindra sprota var yfir 10 er fjöldinn tilgreindur með >10. – Species of Bryophyta identified in samples from false moss balls found at 12 localities in Iceland. The finding locations are numbered in the list earlier in the paper, see also Tab. 1. Numbers indicate numbers of stem and branch fragments possible to identify, except where noted. When more than 10 fragments were possible to identify, this is indicated by ‘>10’. Tegund mosa / Species Fundarstaðir / Localities 4 5 6 9 10 11 12 13 14 15 16 17 Aulacomnium palustre (Hedw.) Schwägr. - - 1 - - - - - - - - - Brachythecium rivulare Schimp. 2 - - - - - - - - - - - Bryum pseudotriquetrum (Hedw.) P. Gaertn. o.fl. / et al., s.l. - - - - - - - 2 - - - - Bryum sp. - - - - - - 2 - 1 1 1 - Calliergon cordifolium (Hedw.) Kindb. - - - - - - - - - - - 1 C. giganteum (Schimp.) Kindb. 1 - 2 9 - - - - - - - - C. richardsonii (Mitt.) Kindb. - - - 7 >10 - - - - - - - C. giganteum / richardsonii - - - >10 - - - - - - - - Calliergonella lindbergii (Mitt.) Hedenäs - - - - - - - - - 1 - - Campylium stellatum (Hedw.) Lange & C.E.O.Jensen - - - - - - - - 1 - - - Framhald á næstu síðu. – Continued.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.