Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 43
43
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
allt frá því að losna við efni úr
húsagrunnum á sem einfaldastan
hátt yfir í landgerð undir byggingar,
umferðarmannvirki og hafnar-
mannvirki.
Strandlengja Kópavogsbæjar
hefur ekki farið varhluta af
uppfyllingum og er nú svo komið
að mestur hluti strandlengjunnar
sem snýr að Fossvogi hefur verið
fylltur upp. Lengst af var um að
ræða smáar og lítt skipulegar
uppfyllingar en síðar var ráðist í
stórfelldar framkvæmdir utarlega
á Kársnesi. Á árunum eftir 2001
voru hugmyndir um enn frekari
landfyllingar út í Skerjafjörð, en
í núverandi aðalskipulagi hefur
verið dregið nokkuð úr þeim
fyrirætlunum.6,7 Einnig hefur verið
á teikniborðinu að leggja göngubrú
eða brú fyrir almenningssamgöngur
yfir Fossvog, frá stað vestan við
suðurenda norður-suður-flugbrautar
Reykjavíkurflugvallar yfir á Kársnes
og tengja á þann hátt vesturbæ
Kópavogs við miðbæjarsvæði
Reykjavíkur.8 Samkvæmt þessum
hugmyndum yrði tengingin að hluta
á uppfyllingu og að hluta með brú
og er brúin mislöng eftir útfærslum.
Því styttri sem brúin er, þeim mun
lengri þurfa uppfyllingarnar að
vera, sem þar með hafa aukin áhrif
á sjávarstrauma og sjóskipti inni
í Fossvogi. Hugmyndirnar vöktu
upp spurningar um möguleg áhrif
slíkra framkvæmda á umhverfi
og dýralíf svæðisins. Til að svara
þeim spurningum þarf gögn og
því hóf starfsfólk Náttúrufræðistofu
Kópavogs að kanna lífríki á svæðinu.
Hafin var regluleg vöktun fugla og
einnig var gerð úttekt á botndýrum
í Fossvogi.
Hér verður gerð grein fyrir
niðurstöðum fuglavöktunarinnar.
Markmið hennar var fyrst og
fremst að meta gæði mismunandi
svæða í Fossvogi fyrir fuglalíf,
og afla auk þess upplýsinga um
helstu tegundir og svæðanotkun
þeirra. Gögnin nýtast beint til að
bæta upplýsingar um fuglalíf á
Skerjafjarðarsvæðinu, en jafnframt
sem viðmiðunargögn ef ráðist
verður í frekari framkvæmdir eða
annars konar breytingar á svæðinu.
Í þessari samantekt eru kynntar
niðurstöður þriggja ára vöktunar á
fuglalífi í Fossvogi, frá vori 2008 og
fram á haust 2011. Vöktunin fól í sér
44 talningar. Þá verður leitast við að
setja niðurstöðurnar í samhengi við
fyrirliggjandi gögn um fuglalíf og
framtíðarnýtingu svæðisins.
Lýsing á
rannsóknarsvæðinu
Fossvogur er um tveggja kílómetra
langur vogur sem gengur inn
úr Skerjafirði norðan Kársness.
Eftir honum miðjum eru mörk
sveitarfélaganna Reykjavíkur
og Kópavogs. Innst í voginum
er Fossvogsleira, um 5,5 hektarar
(ha.) að stærð, en út frá henni
dýpkar vogurinn hægt og er dýpi
í mynni hans um 7 metrar. Næst
fjöru er botn vogsins allþéttur en
síðan tekur við mjúkur leðjubotn.
Vogurinn er vinsælt útivistarsvæði
og eru starfræktir við hann þrír
siglingaklúbbar og ylströnd, en
hann er að auki vinsæll til sjósunds.
Umhverfis voginn er gott kerfi
göngu- og hjólastíga með töluverðri
umferð.
Heildarlengd strandlengju
Fossvogs í landi Kópavogs er um
2,4 km. Í sunnanverðum Fossvogi
hefur mestur hluti upprunalegrar
strandlengju farið undir uppfyllingar,
eða frá hafnarsvæðinu á Kársnesi
og inn að Marbakkabraut, en auk
þess hefur nesið lengst nokkuð
til vesturs vegna uppfyllinga (2.
mynd). Mestur hluti uppfyllinganna
er klæddur brimvörn úr stórgrýti en
sums staðar á eftir að ganga frá
klæðningunni og þar er efni þeirra
óvarið gegn sjávargangi. Einungis
um 450 metra kafli frá Fossvogslæk
út að Marbakkabraut er lítt röskuð
fjara. Ofan fjörunnar hefur verið fyllt
undir göngustíg. Fjaran á þessum
kafla er að mestu þangivaxin grjót-
og klapparfjara, en síðan tekur
Fossvogsleiran við og teygir sig
norður fyrir botn Fossvogs. Þá tekur
við svæði þar sem bæði er að finna
grýtta fjöru og fíngerða malarfjöru
með þangvöxnum klettarönum,
og nær hún allt að endimörkum
talningarsvæðisins skammt innan
við núverandi ylströnd og aðstöðu
siglingaklúbba. Þar fyrir vestan taka
svo við uppfyllingar í tengslum við
Reykjavíkurflugvöll. Innanverður
2. mynd. Talningarsvæði í Fossvogi.
Sveitarfélagamörk Reykjavíkur og Kópavogs
eru dregin með línu. Loftmyndin er fengin
af vefsetri Kópavogsbæjar (https://www.
map.is/kopavogur/). – Overview of Foss-
vogur, showing the counting areas and
boundaries between Reykjavík and Kópa-
vogur. Birt með leyfi Loftmynda ehf.
©Loftmyndir ehf.