Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 68

Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 68
Náttúrufræðingurinn 68 aðila Loftskeytastöðvarinnar, lauk þannig í bili að safnið og HÍN hafa enn um sinn nánast óskerta aðstöðu í húsinu. Perluvinir og náttúrusýning í Perlunni Náttúrusýning í Perlunni komst aftur á dagskrá á árinu þegar í ljós kom að borgin hygðist koma þar upp slíkri sýningu, með eða án aðkomu ríkisins og Náttúruminjasafns Íslands. HÍN lagði áherslu á að Náttúruminjasafnið kæmi að málinu með tilstyrk menntamála- ráðuneytisins. Ráðu neytið tók því ekki fjarri og gaf lengi í skyn að það hygðist styðja aðkomu safnsins en í raun dró það lappirnar allan tímann og að lokum varð ljóst að það vildi ekki leggja safninu lið í þessu máli. Stjórn HÍN hitti S. Björn Blöndal, forseta borgarráðs, og átti ágætan fund með honum, og einnig áttu fulltrúar úr stjórn félagsins fundi með embættismönnum borgarinnar og fulltrúum Perluvina. Á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur 2. október var orðið ljóst að ríkið myndi ekki fást að borðinu. Þá var ákveðið að stíga næstu skref án hlutdeildar þess. Í framhaldinu óskuðu fulltrúar borgarinnar eftir því að Perluvinir og Hið íslenska náttúrufræðifélag myndu lýsa í stuttu máli hugmyndum um aðkomu sína að gerð og rekstri sýningarinnar. Nokkru síðar sendu stjórn HÍN og Perluvinir frá sér minnispunkta og kemur meðal annars þetta fram þar: Hið íslenska náttúrfræðifélag og Náttúruminjasafn Íslands verða Reykjavíkurborg til ráðgjafar á undirbúningsstigi verkefnisins. Þau taka þátt í að móta þau skilyrði sem sett verða í auglýsingu og varða efnistök og hugmyndafræði sýningarinnar, og faglegar kröfur sem gerðar verða til þeirra aðila (verktaka/fjárfesta) sem hafa hug á að setja upp náttúrusýningu í Perlunni og reka hana. Perluvinir kanna á sama tíma fýsileika þess að mynda hlutafélag með fjárfestum og svara auglýsingunni. Niðurstaða þar að lútandi liggur fyrir áður en auglýst verður. Um leið og auglýst verður er hlutverki Perluvina lokið, nema þeir kjósi að birtast aftur sem hlutafélag sem býður sig fram til að annast sýninguna. HÍN og NMSÍ verða Reykja- víkurborg til ráðgjafar við að meta þá aðila sem bjóða sig fram og getu þeirra til þess að móta metnaðarfulla sýningu sem stenst samanburð við það besta sem gerist á alþjóðasviði náttúrufræðisafna. Í framhaldi af þessu aðstoðaði HÍN borgina við að gera útboðs- lýsingu um umrædda náttúru- sýningu. Áhugafólk um verkefnið innan Perluvina brást við þessari þróun mála með því að stofna hlutafélagið Perluvini ehf. Markmið þess var að hanna sýningu, útbúa viðskiptahugmynd og bjóða í rekstur verkefnisins með sterka fjárfesta að bak hjarli. Stofnfundur Perluvina ehf. var haldinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu hinn 27. október. Þar hélt formaður HÍN erindi um baráttu félagsins fyrir náttúruminjasafni sem hefði aðstöðu og burði til sýningahalds. Fundurinn var vel sóttur og voru tæplega 80 hluthafar skráðir í félagið. Fljótt kom í ljós að Perluvinir ehf. voru ekki einir um hituna. Fjárfestahópur undir forystu Gunnars Gunnarssonar vann einnig að tilboði í sýninguna. Í ársbyrjun 2016 birti Reykjavíkurborg auglýsingu og útboðslýsingu um náttúrusýningu í Perlunni. Umsóknarfrestur var til 22. febrúar. Fljótt varð ljóst að fyrrnefndir tveir hópar voru þeir einu sem myndu senda inn tilboð. Í upphafi ríkti samkeppni en mál þróuðust síðan á þann veg að þessir aðilar sameinuðust undir nafninu Perla norðursins og sendu inn viðamikið tilboð ásamt tillögu að metnaðarfullri sýningu. Önnur tilboð bárust ekki. Þegar þetta er skrifað (26. febrúar 2015) situr fulltrúi frá HÍN í dómnefnd sem kannar tilboðið og gæði þess. Ósk um fund með menntamálaráðherra Margítrekuð ósk stjórnar HÍN um fund með menntamálaráðherra um málefni Náttúruminjasafns hefur legið inni í ráðuneyti hans allt frá haustinu 2013. Vakin var athygli á fálæti ráðherrans í síðustu ársskýrslu. Í ár hefur enn verið reynt að fá fund með ráðherranum og beiðni um það ítrekuð. Allt situr þó við hið sama og enn er beðið fundar. Sem betur fer er þessi framganga einsdæmi í samskiptum félagsins við yfirvöld sem að öðru leyti hafa verið góð og greið. Lokaorð Starfsárið 2015–2016 verður að kallast gott ár. Útgáfa tímaritsins hefur gengið vel og greinar í því hafa vakið almenna athygli. Samstarfið við NMSÍ er farsælt. Fjárhagsstaðan er góð og fræðslufundirnir hafa verið áhugaverðir og vel heppnaðir. Fækkun félagsmanna veldur áhyggjum og baráttan fyrir bættri stöðu Náttúruminjasafns hefur ekki skilað árangri. Reykjavík, 25. febrúar 2016 Árni Hjartarson, formaður Undirskriftir í samningi menntamálaráðherra og Hins íslenska náttúrufræðifélags frá 1947.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.