Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016
„Það markar tímamót að
þessir menn stíga fram og
segja sína sögu vegna þess
að knattspyrnukúltúrinn í
Bretlandi byggist svo mikið
á viðteknum hugmyndum
um karlmennsku og það er
tímanna tákn að menn úr
þessari menningu skuli vera
reiðubúnir að segja frá
svona ofbeldi og skila
skömminni sem helvítis
karlinn á með réttu að
bera,“ skrifar vefritið Knuz-
.is um málið á Facebook-
síðu sína og bendir á að
mikið af orðræðu þeirra
komi beint úr femínískri
baráttu gegn kynferðisof-
beldi. Orðræðan sé því kom-
in í meginstrauminn og sé
valdeflandi fyrir fólk úr ýms-
um áttum.
Fyrrverandi knattspyrnumað-urinn Andy Woodward steigfram í vikunni í áhrifamiklu
viðtali við Guardian og sagði frá kyn-
ferðisofbeldi sem hann varð fyrir af
hálfu knattspyrnuþjálfarans Barry
Bennell. Fleiri fyrrverandi knatt-
spyrnumenn sem urðu einnig fyrir
barðinu á Bennell hafa sagt sögu sína
í kjölfarið.
David White, sem var eitt sinn í
landsliði Englands, er í þessum hópi
en hann segir að líf sitt hafi verið lagt
í rúst af Bennell, sem þjálfaði í yngri
deildum og atvinnumenn í meira en
þrjá áratugi. Bennell þótti einn besti
þjálfarinn í yngri deildum og hafa
auga fyrir upprennandi hæfi-
leikamönnum og var því í góðri að-
stöðu til að ná trausti ungra drengja.
White var 11 ára þegar hann varð
fyrst fyrir árás Bennells, manns sem
hann dýrkaði. Bennell, sem er 62 ára,
hefur þrisvar sinnum verið dæmdur
fyrir barnaníð en situr ekki í fangelsi
sem stendur.
Fjórir af þessum fyrrverandi
knattspyrnumönnnum og fórn-
arlömbum Bennells komu saman
fram í sjónvarpsviðtali hjá BBC á
föstudag. Woodward grét á meðan
hann heyrði Chris Unsworth og Jas-
on Dunford segja í fyrsta sinn frá því
er þeir voru beittir kynferðisofbeldi
af Bennell.
Unsworth, sem er 44 ára, fannst
hann verða að stíga fram til að hjálpa
öðrum. Hann spilaði með Manchest-
er City með Bennell en færði sig síð-
an til Crewe ásamt honum þegar
hann var 12 ára.
Hann sagði að hann hefði gist í
húsi Bennells mörgum sinnum og
Bennell hefði stundum haft tvo eða
þrjá stráka uppí hjá sér í einu og
beitt þá ofbeldi. „Við töluðum aldrei
um þetta. Mér var nauðgað á milli 50
og 100 sinnum,“ sagði Unsworth,
sem var níu ára gamall þegar kyn-
ferðisofbeldið hófst.
„Ég vissi hvað ég vildi fá út úr fót-
boltanum og hélt að þetta væri það
sem ég þyrfti að ganga í gegnum til
þess,“ sagði Unsworth, sem hætti í
knattspyrnu og varð atvinnugolfari
16 ára gamall. Hann hefur nú haft
samband við lögregluna í Cheshire
og bíður viðtals.
Ellefu hafa haft samband
Samkvæmt frétt BBC hafa ellefu
manns haft samband við lögregluna
vegna málsins frá því að Woodward
steig fram, þeirra á meðal Steve Wal-
ters, sem lék líka með Crewe og hef-
ur greint frá því að Bennell hafi beitt
hann kynferðisofbeldi þegar hann
var 13 eða 14 ára í fótboltaferðalagi.
Hann sagðist hafa orðið óhuggandi
eftir að hafa lesið sögu Woodwards.
„Ég var svo reiður og miður mín en
leið samt eins og hundrað tonnum
hefði verið lyft af mér,“ sagði hann í
viðtali við Victoriu Derbyshire á
BBC.
„Þetta hefur eyðilagt feril minn og
sambönd. Fólk spyr, hvað kom eig-
inlega fyrir þig, Steve?“
Walters vill að fleiri stígi fram,
ekki síst „þekktir knattspyrnumenn
sem eru þarna úti“. „Ég vil réttlæti
núna,“ sagði hann. „Þetta má aldrei
nokkru sinni aftur koma fyrir ungan
fótboltastrák.“
Hjálparlína opnuð
Ljóst þykir að þótt Bennell hafi verið
stórtækur sé hann ekki eini þjálf-
arinn sem hafi brotið af sér. Til að
bregðast við þessu og hjálpa fleirum
hafa góðgerðarsamtökin NSPCC
opnað sérstaka hjálparlínu, síma-
númer sem fólk getur hringt í og
fengið aðstoð. Fleiri en 50 símtöl bár-
ust á fyrstu tveimur klukkustund-
unum eftir að númerið var opnað.
Talsmaður breska forsætisráð-
herrans hefur sagt fyrrverandi
knattspyrnumennina hugrakka og
segir að það verði að meðhöndla
ásakanirnar af fullri alvöru.
Formaður enska knattspyrnu-
sambandsins, Greg Clarke, hitti Wo-
odward á fimmtudag. Hann er miður
sín vegna þjáninganna sem fórn-
arlömbin hafa orðið fyrir. Hann ætl-
ar að kanna málið og vill vera fullviss
um að það komi ekki fram ný kynslóð
fórnarlamba og að fórnarlömb kyn-
ferðisofbeldisins fái þá hjálp sem þau
þurfi.
Eyðilagði
feril og
sambönd
Margir fyrrverandi knattspyrnumenn hafa stigið
fram í Englandi og sagt frá kynferðisofbeldi
sem þeir urðu fyrir en flest brotin voru framin
af þjálfaranum Barry Bennell.
Steve Walters ræddi opinskátt um reynslu sína í viðtali við fréttakonuna Victoriu Derbyshire hjá BBC á föstudag.
Formaður enska knattspyrnusam-
bandsins, Greg Clarke, sýnir fórnar-
lömbunum stuðning.
AFP
Markar
tímamót
’Það er hræðilegt að margir félaga minna hafi þurft að þjástsvona á meðan þeir stunduðu þessa íþrótt sem ég og þeirelska. Það er mikilvægt að fólk viti að það er í lagi að tjá sig, þaðer hjálp í boði og óþarfi að þjást í hljóði.
Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins og sendiherra NSPCC.
ERLENT
INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR
ingarun@mbl.is
BRETLAND
LONDON Thomas Mair var dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á bresku
þingkonunni Jo Cox go hefur ekki
eika á reynslulausn. Hann myrtimögul
u fyrir Brexit-þjóðaratkvæða-Cox vik
BANDARÍKIN
WASHINGTON DC
Eiginkona Donalds Trump,
Melania, og sonur þeirra,
Barron, munu ekki flytja með
Trump í Hvíta húsið þegar
hann tekur við sem forseti í
janúar. Þau mæðgin áforma að
búa í NewYork þar til skólaári
Barrons lýkur.
LANDSÝR
ALEPPO Taka þurfti fyrirbura úr hitakössum á barna-
spítala í austurhluta Aleppo í kjölfar loftárása sem nú
hafa eyðilagt öll sjúkrahús borgarinnar. Árásirnar voru
fordæmdar af Sam-
einuðu þjóðunum.
Læknar án landa-
mæra segja að
þrjátíu sjúkrahús í
austurhluta Aleppo
hafi orðið fyrir
árásum síðan í júlí.
TYRKLAND
Tilkynnt var um brottrekstur um 15 þúsund manns
úr opinberum störfum í vikunni. Þar með er fjöldi
þeirra sem starfað höfðu innan hersins, lögreglunnar,
dómsvaldsins og menntakerfisins kominn yfir
hundrað þúsund sem hafa verið reknir úr störf-
um sínum, vikið frá tímabundið eða handteknir í
hreinsunum sem forseti Tyrklands hefur staðið fyrir.