Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Síða 45
SJÓNVARP Hinn glaðbeitti sjónvarpsmaður Gísli Marteinn
Baldursson hefur stjórnað síðustu þáttum af Vikunni í Rík-
issjónvarpinu á stuttbuxum. Ástæðan er hvorki pólitískur bak-
grunnur Gísla (hann hvatti sjálfur til brandara af þessu tagi)
né óbærilegur hiti í upptökuverinu heldur er kappinn í óg-
urlegu gipsi á vinstra fæti eftir að hafa slitið hásin og kemst
ekki í aðrar buxur. Gárungarnir velta því nú fyrir sér
hvort aðrir þáttastjórnendur ættu að sigla í kjölfarið.
Ætti Bogi Ágústsson til dæmis að taka Viðtalið í skota-
pilsi? Eða Egill Helgason að stjórna Kiljunni í „leder-
hosen“? Verra er fyrir fréttaþuli að brydda upp á nýj-
ungum enda sér maður aldrei neðri hluta líkama þeirra.
Þeir gætu þess vegna upp til hópa verið kviknaktir bak
við borðið.
Lífið er stutt, Buxur!
Gísli Marteinn
Baldursson
Morgunblaðið/Golli
27.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
SJÓNVARP Það er alltaf gaman þegar sjón-
varpsstöðvarnar hlaða í þemahelgi. Ríkis-
sjónvarpið gerði einmitt þetta síðastliðinn
laugardag með því að sýna kvikmyndirnar
Miss Pettigrew Lives for a Day og A Serious
Man. Oftast hverfist þemað um staka leikara,
samanber vel heppnað Armin Mueller-Stahl-
þema hjá RÚV um árið, eða staka leikstjóra.
Núna var þetta að vísu aðeins langsóttara, en
glöggir áhugamenn um kvikmyndir áttuðu
sig þó á því. Aðalleikkonan í fyrrnefndu
myndinni, Frances McDormand, er nefnilega
gift öðrum Coen-bræðra sem gerðu síðar-
nefndu myndina. Meira af slíku!
Launþema á laugardagskvöldi
Frances McDormand sem ungfrú Pettigrew.
Öðruvísi mér áður brá. Hljómsveitin sem
framan af ferlinum harðneitaði að gera
myndbönd við lög sín, leit á það sem pjatt
og prjál, hefur nú sent frá sér myndband
við hvert einasta lag á nýju plötunni sinni,
tólf talsins. Metallica-gaurarnir eru hrein-
lega orðnir „vídjóðir“.
Aðdáendur málmskrímslisins biðu lengi
eftir Hardwired ... to Self-Destruct en
þegar platan loksins kom var það
með lúðrablæstri og látum.
Og tólf tilbúnum mynd-
böndum sem leikstýrt er af
hinum og þessum, körlum
og konum. Kennir þar
margra grasa.
Lemmy Kilmister og
Motörhead höfðu djúpstæð áhrif á Lars
Ulrich og James Hetfield þegar þeir voru
að vaxa úr grasi og fyrir vikið vel við hæfi
að Lemmys sé minnst á nýju plötunni.
Hann sálaðist seint á síðasta ári. Lagið
James Hetfield og Kirk Hammett hafa gefið sér tíma til að
troða upp á tónleikum milli allra myndbandanna.
AFP
Lemmy Kilmister
var ekkert blávatn.
METALLICA Í MYND
Vídjóðir
kalla þeir Murder One og fer Lemmy karl-
inn, eða teiknuð útgáfa af honum, mikinn í
myndbandinu sem leikstýrt er af Robert
Valley.
Þar kemur sitthvað fram; eins og að
Lemmy hafi vanið komur sínar í Cavern-
klúbbinn í Liverpool, þar sem rokkið fædd-
ist, og að hann hafi verið rótari hjá Jimi
Hendrix og hljómsveit hans seint á sjöunda
áratugnum. Þá kemur fram að Lemmy hafi
verið rekinn úr geimrokkbandinu Hawk-
wind eftir að hann var handtekinn með
fíkniefni í fórum sínum á landamærum
Bandaríkjanna og Kanada 1975. Honum
var sleppt fimm dögum síðar án ákæru.
Eftir þá uppákomu var kappinn rekinn úr
bandinu; ekki fyrir að neyta fíkniefna, held-
ur fyrir að neyta rangra fíkniefna.
Í myndbandinu við Murder One er því
haldið fram að Lemmy hafi hefnt sín á
bandingjunum með því að sænga hjá kær-
ustum þeirra allra.
Sel það ekki dýrar ...