Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Qupperneq 6
6 Fréttir Helgarblað 20.–23. mars 2015
„Þessi maður hefur
n Íslenskt fórnarlamb hefndarkláms vill að nethlekkir verðir fjarlægðir
É
g veit ekki hvað ég get gert
meira. Þetta eru ógeðslegar
síður og þessi maður hefur lagt
líf mitt í rúst,“ segir ung íslensk
kona sem hefur reynt að fá
myndir af sér fjarlægðar af klámsíðu.
Konan er ein þeirra sem vilja að
hlekkir tengdir nafni hennar verði
fjarlægðir af Google. Myndir af kon-
unni rötuðu á vefinn eftir að fyrrver-
andi kærasti hennar setti þær þang-
að. „Það er barátta sem ég á líklega
ekki eftir að vinna, en mér sýnist að
það eina sem ég geti gert úr þessu sé
að skipta um nafn. Þetta er það fyrsta
sem kemur upp þegar nafnið mitt
er gúglað og myndirnar af mér rata
í efstu myndaniðurstöðuna,“ segir
konan sem er ekki orðin þrítug. „Ég
hef haft samband við Google og bíð
eftir svörum. Það er það síðasta sem
ég get gert því í hvert sinn sem mér
tekst að ná því fram að
mynd verði tekin niður
kemur önnur upp,“ seg-
ir hún.
Vilja gleymast
DV hefur að undan-
förnu fjallað um mál
af þessum toga, það er
réttinn til að gleymast
á netinu. Fólk á rétt á
því að hverfa af netinu
samkvæmt niðurstöðu
Evrópudómstólsins og
hafa 180 Íslendingar
beðið netrisann
Google um að fjarlægja 603 hlekki
úr niðurstöðum leitarvélarinnar.
183 hlekkir hafa verið fjarlægðir,
alls 34,5 prósent. Það er aukning frá
umfjöllun DV í síðustu viku, en þá
höfðu 175 beðið um að 573 hlekk-
ir yrðu fjarlægðir. Ástæðurnar fyr-
ir því að vilja gleymast eru margar.
Hluti þeirra sem vilja gleymast hef-
ur verið dæmdur fyr-
ir afbrot en umfjöll-
un um fortíð þeirra
torveldar atvinnuleit.
Einhverjir sjá eftir at-
vikum úr fortíð sinni,
hafa sagt eitthvað sem
birst hefur opinber-
lega en endurspeglar
ekki lengur gildismat
þeirra. Eftir umfjöllun
DV á dögunum hafa
margir haft samband
við blaðið.
Ómakleg umfjöllun
„Mér finnst að umfjöllun um mig
á sínum tíma hafi verið ómak-
leg og ég vil að það verði fjarlægt,“
segir karlmaður á fertugsaldri í
samtali við DV. Maðurinn sem
um ræðir var hnepptur í gæslu-
varðhald vegna rannsóknarhags-
muna og grunaður um afbrot fyrir
nokkrum árum. Honum var sleppt
eftir nokkurra vikna gæsluvarðhald
og var ekki ákærður. Nafn hans var
til umfjöllunar í tengslum við mál-
ið og er ein af leitarniðurstöðunum
þegar nafn hans er slegið inn í leit-
arvélar á netinu. „Mér finnst eins og
ég sé að taka út refsingu fyrir glæp
– nema ég framdi engan glæp. Ég
tengdist þessu máli ekki á nokkurn
hátt,“ segir hann. Hann hefur farið
þess á leit að niðurstöðurnar verði
fjarlægðar og bíður átekta.
Ósáttur
Einn þeirra er ósáttur við umfjöllun
um sig á íslenskri spjallsíðu. Þar var
viðkomandi nafngreindur og þegar
nafn hans er slegið inn koma upp
hlekkir á spjallsíðuna, þó að um-
ræðan hafi verið fjarlægð. Hægt er
að lesa brot úr umfjölluninni og seg-
ir maðurinn auðvelt að slíta það úr
samhengi. Hann mun að næstu dög-
um óska eftir því að nafn hans verði
fjarlægt af leitarvél Google. n
„Mér finnst
eins og ég sé
að taka út refsingu
fyrir glæp – nema ég
framdi engan glæp
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
10. mars 2015
lagt líf mitt í rúst“
Vill láta fjar-
lægja hlekki
Konan segir að
beiðnin til Google sé
síðasta hálmstráið,
hún íhugar annars
að skipta um nafn.
B
úist er við um 3.000 gestum
á EVE Fanfest, hátíð og ráð-
stefnu tölvuleikjafyrirtækisins
CCP, sem fer fram í Hörpu um
helgina. Þar af er reiknað með um
1.500 erlendum gestum og um 50
blaðamönnum frá mörgum stærstu
leikja- og tæknimiðlum heims,
ásamt fjölmiðlum á borð við BBC,
Bild og The Guardian.
EVE Fanfest er nú haldin í ellefta
sinn og hefur stækkað mikið síðan
hún var fyrst haldin á efri hæð Kaffi
Sólon árið 2004. Spilarar tölvuleiks-
ins EVE Online eru stærsti hluti gesta
hátíðarinnar, en áskrifendur leiksins
skipta hundruðum þúsunda. Spilar-
ar leiksins og aðrir áhugasamir sem
ekki komast til Íslands geta fylgst
með dagskrá hátíðarinnar í gegn-
um beina útsendingu EVE TV og
Twitchtv.com frá Hörpu gegnum
netið. Ríflega 521.000 áhorfendur
horfðu á útsendingar frá EVE Fan-
fest-hátíðinni í fyrra og búist er við
svipuðum áhorfendatölum í ár.
Stærsta pöbbarölt Íslands, EVE
Fanfest Pub Crawl, fer fram í kvöld
þar sem hundruð manna fara frá
Hörpu klukkan 21 og fylkja liði í
tuttugu hópum um alla miðborg
Reykjavíkur. Nokkrir veitingastaðir
og barir munu bjóða upp á EVE-
matseðla og EVE-drykki. Lebowksi
bar, English Pub og American Bar í
Austur stræti verða væntanlega vin-
sælir viðkomustaðir því auk þess að
bjóða upp á matseðlana eru stað-
irnir ríkulega skreyttir myndverkum
tengdum EVE-heiminum.
Sólmyrkvanum verður jafnframt
fagnað fyrir utan Hörpu þar sem
hundruð gesta EVE Fanfest koma
saman og horfa á sólmyrkvann á
milli 8.30 og 10.30 í dag, föstudag. n
freyr@dv.is
Búist við 3.000 gestumAðAlfundur BÍ 2015
Aðalfundur Blaðamannafélagsins
verður haldinn 22. apríl 2015 að
Síðumúla 23 kl 20:00
Dagskrá fundarins
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Skýrslur frá starfsnefndum
• Kosningar*
• Önnur mál
*Framboð til formanns BÍ þarf að
berast skrifstofu BÍ ekki síðar en tveimur
vikum fyrir boðaðan aðalfund.
BÍ félagar eru hvattir til að mæta
EVE Fanfest verður haldin í ellefta sinn í Hörpu um helgina
EVE Online Tölvuleikurinn EVE Online
verður áberandi á hátíðinni um helgina.
Enginn þarf
að óttast
sólmyrkvann
Háskóli Íslands og Stjörnu-
skoðunarfélag Seltjarnarness
blása til hátíðar í dag fyrir framan
aðalbyggingu Háskóla Íslands í til-
efni sólmyrkvans sem verður sjá-
anlegur á milli 8.30 og 10.30 í dag,
föstudag.
Hátíðin, sem hefst klukkan
8.30 skömmu áður en sólmyrk-
vinn skellur á, er liður í dag-
skrá háskólans á Alþjóðlegu ári
ljóssins. Auk þess verður, í Há-
tíðarsal háskólans síðar sama
dag, boðið upp á fyrirlestra um
evrópska geimfarið Rosetta og
hinn ósýnilega alheim.
Sævar Helgi Bragason, verk-
efnisstjóri vísindamiðlunar við
verkfræði- og náttúruvísindasvið
Háskóla Íslands, hlakkar mikið
til. „Ef verðið verður gott eins og
reiknað er með þá verður þetta
mjög skemmtilegur dagur fyrir
okkur áhugafólk um þennan sól-
myrkva. Við verðum með örfá
gleraugu sem fólk skiptist á að
nota og svo verðum við með sjón-
auka sem margir geta notað í einu
þannig að það fá allir að sjá eitt-
hvað,“ segir Sævar Bragi.
Hann tekur fram að enginn
þurfi að óttast neitt vegna sól-
myrkvans. „Þetta er eins og hver
annars sólríkur sumardagur á
Íslandi en fólk þarf bara að fara
varlega. Fólk á frekar að reyna að
nýta tækifærið og sjá myrkvann,“
segir hann en næsti sólmyrkvi
af þessari stærðargráðu verður
ekki fyrr en eftir ellefu ár, eða árið
2026.
Hátíðin heldur svo áfram kl.
17 með tveimur fyrirlestrum í Há-
tíðarsal aðalbyggingar Háskóla
Íslands. Haley Gomez, stjarneðl-
isfræðingur við Cardiff-háskóla,
fjallar um hinn hinn ósýnilega
alheim og Mark McCaughre-
an, yfirmaður vísindarannsókna
og geimkönnunar hjá Geimvís-
indastofnun Evrópu (ESA), flytur
erindi um evrópska geimfarið
Rosetta sem rannsakar um þess-
ar mundir halastjörnuna 67P/
Churyumov-Gerasimenko.
Fyrirlestrarnir, sem jafnframt
eru liður í dagskrá Háskóla Ís-
lands á Alþjóðlegu ári ljóssins, eru
öllum opnir meðan húsrúm leyfir.