Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Side 23
Fréttir 23Helgarblað 20.–23. mars 2015
Bragðið er betra
með Hellmann’s
þennan útlending inni og hendið
lyklunum.“
Erfiðar heimsóknir í fangelsið
Dómurinn var þeim gríðarlegt áfall.
„Ég brotnaði niður og féll nánast í
gólfið, en var gripin,“ segir Guðrún.
Fyrst um sinn heimsótti hún son
sinn einu sinni í mánuði í fangels-
ið en undanfarið hefur hún komið
á tveggja mánaða fresti. Einnig hafa
þau talast við í gegnum síma. Hún
segir heimsóknirnar erfiðar vegna
stífrar öryggisleitar en alltaf sé jafn-
gott að hitta son sinn. „Honum
finnst ekki gott að ég komi of oft því
þá fara hugsanir hans á kreik. Það
tekur hann tíma að jafna sig. Hann
veit líka að mér finnst þetta ekkert
spennandi.“
Virtur innan fangelsismúranna
Geir átti erfiða tíma í fangelsinu til
að byrja með og notaði vímuefni en
fann svo að botninum var náð og
sneri við blaðinu. Hann er nú búinn
að vera vímulaus innan múranna
árum saman og leitar styrks í trúnni
en í fangelsinu þjóna kaþólskir
prestar.
„Það hefur orðið ótrúleg breyting
á honum. Hann talar íslensku al-
veg eins og við hin, enda höfum
við alltaf talað við hann á íslensku.
Hann gætir sín og hefur, sem bet-
ur fer, öðlast virðingu bæði fanga og
fangavarða. Hann sagði alltaf: „Ég
veit ekki hvar ég væri ef þið [pabbi
og mamma, innsk. blm.] hefðuð
ekki komið og heimsótt mig.“ Við
gerðum það alveg frá byrjun en
margir foreldrar segja bara „bæ,
bæ, ég þekki þig ekki lengur“,“ seg-
ir Guðrún.
Íhugar að flytja til Íslands
Spurð hvað tekur við þegar Geir
flytur heim til Íslands segir hún
ekkert vera ákveðið. Hún reikn-
ar samt með því að hann vilji búa
í Reykjavík, þar sem hann kann vel
við sig. Sjálf ætlar hún að reyna að
fara með honum heim og einnig
kemur til greina að hún flytji hing-
að. „Ég þarf að hugsa mig um. Ég
missti manninn minn fyrir tveim-
ur árum, þannig að ég get gert hvað
sem ég vil.“
Iðraðist í Kastljósviðtali
Kristín Sólveig Bjarnadóttir, hjúkr-
unarfræðingur frá Sigluvík skammt
frá Akureyri, og fjölskylda hennar
byrjuðu að skrifast á við Geir
skömmu eftir að Kastljós tók viðtal
við hann innan fangelsismúranna
árið 2007. „Hann var niðurbrotinn í
þessu viðtali. Þarna var hann búinn
að vera í níu ár og átti níu ár eftir.
Maður upplifði svo sterkt auðmýkt
og iðrun í þessu viðtali og
hugsaði með sér: „Hann er
búinn að taka út sinn dóm,
þetta er orðið gott“,“ segir
Kristín Sólveig, sem nýlega
tjáði sig um heimkomu Geirs.
Auk þess að skrifa honum
bréf í von um að hjálpa hon-
um stóðu þau ásamt fleirum
fyrir söfnun fyrir grunnnámi
í viðskiptafræði fyrir Geir og
útskrifaðist hann með sóma
fyrir þremur árum. „Þegar
ég fékk ljósmyndina af hon-
um sá ég að hann var breyttur
maður. Hann var fluttur á ívið
mannúðlegri deild þar sem
aðrir fangar voru líka í námi.
Hann fór að verða öruggari og
varð vonbetri.“
Heimsótti Geir í fangelsið
Á síðasta ári steig Kristín Sólveig
stórt skref þegar hún heimsótti Geir
í fyrsta sinn, ásamt dóttur sinni Sól-
eyju Maríu Kristínardóttur, sem
hún segir hafa verið mikla upplif-
un. „Honum fannst algjörlega ótrú-
legt þegar við sögðumst ætla að
heimsækja hann. Hann þorði ekki
að vona að það yrði nokkurn tím-
ann,“ segir hún. „Við hefðum aldrei
þorað nema af því að Guðrún fer
þarna annað slagið með bróð-
urdóttur Geirs sem er jafngöm-
ul dóttur minni.“ Á tveimur dög-
um töluðu þau saman í fimm til sex
klukkustundir hvorn dag og höfðu
vitaskuld frá mörgu að segja.
Vöfflukaffi og Facebook-hópur
Kristín hefur í samráði við Geir og
Guðrúnu verið að undirbúa komu
hans til Íslands. Hún hefur tvívegis
haldið vöfflukaffi sem fjáröflun til
að hjálpa honum að koma undir
sig fótunum. Hún hefur einnig sett
sig í samband við félagsþjónustuna
í Reykjavík. Kristín hefur jafnframt
stofnað hóp á Facebook sem heitir
Vinir Geirs. Þar er hafin söfnun fyrir
búslóð handa honum og leit stend-
ur yfir að leiguíbúð í Reykjavík.
Þeim sem vilja styrkja Geir með
fjárframlögum er bent á styrktar-
reikning; kennitalan er 630307-
0900 og banki 0515-14-612840.
Eins og engill af himnum
Rétt eins og Geir þá er móðir hans
Guðrún afar þakklát fyrir hjálpsemi
Kristínar. „Ég veit ekki hvar við vær-
um án hennar. Hún kom alveg eins
og engill af himnum.“ n
n Geir Gunnarsson hefur verið í bandarísku fangelsi í 17 ár n Flytur heim til Íslands í september
líka að losna út“
„Hann
var
stöðugt að
reyna að
sanna sig
og eignast
vini, reyndi
að vera
fyndinn og
skemmti-
legur.
„Honum
finnst ekki
gott að ég komi
of oft því þá fara
hugsanir hans á
kreik. Það tekur
hann tíma að jafna
sig.
Í heimsókn Kristín (t.v.) og Guðrún fyrir utan Greensville-fangelsið í Virginíu.
Í heimsókn Sóley (t.v.) ásamt Shelby, bróðurdóttur Geirs.