Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Side 37
Helgarblað 20.–23. mars 2015 Fólk Viðtal 37 „Verð að berjast fyrir börnin“ Læknum tókst að svæfa sjúkdóm- inn en svo blossaði hann aftur upp sumarið 2011. Þá fékk ég ónæmi fyr- ir lyfjunum og endaði í aðgerð 2012 þar sem tekinn var hluti af smáþörm- um og ristli. En svo er spurning hvað gerist þegar ég hef læknast af krabba- meininu, hvort sjúkdómurinn blossi aftur upp. En að öðru leyti hef ég alltaf verið hraust,“ segir Magnea sem starfaði áður á dvalarheimilinu Hlíð en hefur ekkert getað unnið í veikindum sínum og hefur það sett stórt strik í fjárhag fjölskyldunnar en Magnea var ótryggð. „Það vildi enginn tryggja mig vegna Crohns. Ég hef ekkert getað unnið og það er mjög dýrt að fá krabbamein. Ég þarf að greiða fyrir allar blóðprufur, lyfjagjöf, læknavið- töl og myndatökur sjálf. Fyrst þegar ég greindist gerðum við ekki ann- að en borga. Mér finnst kerfið líka meingallað en fyrst eftir greiningu leið mér eins og ég stæði í pappírs- flóði upp að hnjám. Mér fannst alveg nóg að vera komin með krabbamein án þess að þurfa að hugsa um alla þessa pappíra en sem betur fer fékk ég hjálp hjá félagsráðgjafa við skrif- finnskuna.“ Allt snýst um krabbann Magnea er staðráðin í að jafna sig. „Ég er heppin að hafa fengið þetta í brjóstið. Það er yfirleitt hægt að lækna brjóstakrabbamein, það er allavega auðveldara viðureignar en margt annað. Ég má vera ánægð með það. Ég er ákveðin í að ná mér og hef tilkynnt læknunum að ég ætli aldrei að fá krabbabein aft- ur enda lét ég taka úr mér allt sem hægt er að taka. Ég hef allavega gert mitt,“ segir hún og brosir út í annað og heldur svo áfram: „Ég reyni ein- faldlega að halda áfram með lífið þótt flest allt snúist um þetta og ekki bara hjá mér heldur öllum í kring- um mig. Það eru allir með hugann við þetta og miður sín yfir þessu. Og það er ómetanlegt að eiga gott fólk í kringum sig þegar svona kemur upp á og maðurinn minn hefur sýnt og sannað að hann er frábær pabbi og frábær maki. Auðvitað hafa veik- indin reynt á sambandið en hann er ótrúlega umburðarlyndur gagnvart mér. Hann og öll hans fjölskylda hefur staðið þétt við bakið á mér. Ég á heimsins bestu tengdaforeldra. Svo náttúrlega fjölskyldan mín og vinir. Það hafa allir lagst á eitt við að hjálpa. Til að mynda er ég svo þakk- lát fyrir móðursystur mína sem hef- ur gengið í gegnum það sama og ég. Símtölin frá henni hafa bjargað mér. Það er nauðsynlegt að geta talað við einhvern sem veit í gegnum hvað ég er að ganga. Þótt engir tveir eru eins hjálpar það mikið.“ Hvað ef ég dey? Aðspurð segist hún aldrei hafa ótt- ast dauðann. „Ég er ekki hrædd við að deyja enda hef ég ákveðið að ætla að læknast. Ég verð að gera það fyrir börnin mín. En auðvitað hef ég far- ið þangað í huganum og hef hugs- að mér að ræða það sem fyrst við manninn minn; ef ég dey, hvað þá? Ég held að við hefðum gott af því að ræða það þannig að ef svo fer þá verði hann ekki einn eftir í óviss- unni. Dauðinn er þörf umræða í svona veikindum þótt maður ætli sér að sjálfsögðu að sigrast á þessu. Ég er með svo ótrúlega góða lækna sem ég treysti 100 prósent að muni lækna mig.“ Verð að komast yfir reiðina Skiptar skoðanir eru á því hvort einstaklingar eigi að fá að vita ef þeir eru arfberar stökkbreytta gens- ins en sjálf segist Magnea hafa vilj- að vita það. „Ef ég hefði vitað að amma og pabbi væru „brakkar“ hefði ég örugglega ýtt fastar á að þetta yrði skoðað. Ég á þrjár dæt- ur og það eru 50 prósent líkur á að þær erfi þetta. Þótt þær eigi eftir að stjórna því sjálfar hvort þær fái að vita þetta þá vona ég að þær velji það þegar þær hafa aldur og þroska til. Svo óska ég þess að tækninni hafi fleygt það mikið fram að þegar þær ná aldri verði hægt að leiðrétta þetta gen. En það eru kannski bara draumórar,“ segir hún og bætir við að krabbameinið hafi haft mikil áhrif á hennar líf. „Sýn mín á lífið er gjörbreytt. Ég er þakklátari fyrir allt sem ég hef og fólkið í kringum mig. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa eignast þessi þrjú börn á fimm árum og þennan stjúpson. Ég mun ekki geta eignast fleiri börn þótt ég hefði alveg verið til í nokkur í viðbót,“ segir hún og bætir við að hún ætli sér að komast yfir reiðina. „Ég verð að gera það fyrir mig sjálfa. Það er engum hollt að ganga um með innibyrgða reiði. Héðan í frá mun ég treysta betur á eigið innsæi. Næst verð ég frekari og heimta skoðun.“ n Fjölskyldan Sævar Örn heldur á Karen Lind og Magnea á Dagný Rós. Fyrir framan þau stendur Aníta Ósk. Mynd Auðunn níelsson Söfnun fyrir fjölskylduna Fólkið í kringum Magneu og fjölskyldu hefur komið af stað styrktarsöfnun enda hafa veikindin sett stórt strik í fjár- hag fjölskyldunnar. Þeir sem vilja styrkja Magneu geta lagt pening inn á reikings- númerið 0545-26-8155 kt. 0112815599. Magnea vill skila þakklæti til þeirra fjölmörgu sem stutt hafa fjölskylduna: „Ég vil innilega þakka þeim sem hafa stutt mig og styrkt í þessum veikindum. Hlýjar kveðjur til ykkar allra.“ Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Gerðu daginn eftirminnilegan Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Veisluréttir úr smiðju meistarans · Eingöngu fyrsta flokks hráefni Skírn · Ferming · Útskrift · Brúðkaup

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.