Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Blaðsíða 48
Helgarblað 20.–23. mars 201548 Sport
Blaðamaður: „Hvort liðið
fer á HM?
Zlatan: „Það
má
Guð vita.
Blaðamaður: „Er
ekki erfitt
að spyrja
hann?
Zlatan: „Af hverju? Þú
ert að horfa á
hann.
Zlatan virðist hafa vitað að
Svíar myndu tapa fyrir Portú-
gal í umspili fyrir HM í Brasilíu.
„Þegar þú kaupir mig
ertu að kaupa Ferrari“
Z
latan Ibrahimovic, leik-
maður Paris St. Germain,
er þekktur fyrir að hafa
munninn fyrir neðan nef-
ið. Hann vakti athygli á
dögunum þegar hann lét þau orð
falla að Frakkland væri „skíta-
land“ sem ætti PSG ekki skilið.
Kveikjan að þessum ummælum var
vafasöm dómgæsla í 3–2 tapi Par-
ísarliðsins gegn Bordeaux í frönsku
1. deildinni. DV hefur hér tekið
saman mörg af eftirminnilegustu
ummælum þessa stórkostlega leik-
manns. n„Zlatan fer ekki í
hæfnispróf.
Svíinn var nálægt því að ganga í
raðir Arsenal frá sænska félaginu
Malmö á sínum tíma. Enska félagið
bauð honum að koma til reynslu en
Zlatan hafnaði því.
„Ég get ekki annað en
hlegið að því hversu
fullkominn ég er.
Zlatan er þekktur fyrir að sjá spaugi-
legu hliðarnar á lífinu.
„Það sem
Carew getur
gert með fótbolta
get ég gert með
appelsínu.
Zlatan skaut föstum skotum að norska
knattspyrnumanninum John Carew.„Mér er skítsama
hver vinnur. Ég er
á leið í sumarfrí.
Zlatan var hreinskilinn eftir að
Svíar féllu úr keppni á EM 2012.„Meiddur
Zlatan er
býsna alvarlegt
mál fyrir hvaða lið
sem er.
Þar hitti Svíinn líklega
naglann á höfuðið. „Ég
hef
líka gaman
af flugeld-
um, en kveiki aldrei í
þeim annars staðar en
í garðinum. Ég kveiki
aldrei í eigin húsi.
Zlatan kann að leika sér með
flugelda, ólíkt kollega sínum
Mario Balotelli.
„Ég get
spilað í öll-
um ellefu stöðum
á vellinum, því
góður leikmaður
getur spilað hvar
sem er.
Zlatan er góður jafnt í
vörn sem sókn. Og hann
getur líka verið í marki –
að eigin sögn.
„Onyewy var
eins og þunga-
vigtarboxari. Nærri tveir
metrar og 115 kíló. Samt
réð hann ekki við mig.
Zlatan um fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá AC
Milan, Bandaríkjamanninn Oguchi Onyewu.
„Það er ekki þess virði að
horfa á heimsmeistara-
keppni án mín, það er á hreinu.
Portúgal sigraði Svíþjóð í einvígi liðanna um
að komast á HM í Brasilíu.
„Ekkert. Hún á
þegar Zlatan.
Leikmaðurinn var spurð-
ur að því hvað maður
eins og hann gæfi
kærustu sem ætti
allt.
„Fyrst
tók ég
gabbhreyf-
ingu til vinstri
– og hann elti. Svo
tók ég gabbhreyf-
ingu til hægri – og
hann elti. Þá fór ég
til vinstri aftur – og
hann fór og fékk sér
eina með öllu.
Zlatan gerði stólpagrín að
varnartilburðum Liverpool-
mannsins fyrrverandi
Stephane Henchoz.
„Þegar þú
kaupir mig
ertu að kaupa
Ferrari.“
Svíinn velur þann eina bíl
sem hæfir þeim eiginleik-
um sem hann býr yfir sem
knattspyrnumaður.
„Komdu í heim-
sókn, elskan, og
taktu systur þína með.
Ég skal sýna þér hvort
okkar er samkyn-
hneigt.
Zlatan lét þessu ósmekklegu
ummæli falla í viðtali þar sem
hann var spurður um meinta
samkynhneigð.
„Einu sinni
klæddi
ég mig í svart frá
toppi til táar, eins
og Rambó, sótti risastórar vír-
klippur og rændi mótorhjóli.
Zlatan ólst upp í
Júgóslavíu og átti þar
erfiða æsku.„Ég meiddi
þig ekki
viljandi og þú
veist það. Ef þú
vænir mig um svona
lagað aftur þá fótbrýt ég þig
á báðum. Í það skiptið verður
það viljandi.
Fátt fer meira í taugarnar á framherjan-
um en falskar ásakanir. Í umrætt skipti
hafði Rafael van der Vaart vænt Zlat-
an um að hafa reynt að meiða sig í
viðureign Svíþjóðar og Hollands.
„Ef Rooney
vill enn
fara frá United
næsta sumar, þá
mun ég fá hann til að koma
og spila með mér í París.
Hann verður hins vegar að
venjast því að Zlatan skorar
fallegri mörk en hann.
Zlatan hræðist ekkert.
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is / einar@dv.is