Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Qupperneq 49
Helgarblað 20.–23. mars 2015 Sport 49
VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
Fornir fjendur mætast í Liverpool
Liverpool getur komist í 4. sætið með sigri á Manchester United
L
iverpool og Manchester United
mætast í stórleik helgarinnar í
enska boltanum. Óhætt er að
segja að mikið sé undir enda
eru bæði lið í harðri baráttu um sæti í
Meistaradeild Evrópu. Sex lið berjast
um þrjú laus sæti; Manchester City,
Arsenal, Manchester United, Liver
pool, Southampton og Tottenham.
Manchester United er í 4. sæti
deildarinnar með 56 stig en Liverpool
er í 5. sæti með 54 stig. Fari Liverpool
með sigur af hólmi munu United og
Liverpool hafa sætaskipti í deildinni.
Í undanförnum innbyrðis viður
eignum sínum hafa liðin yfir
leitt unnið leikina á heima
velli. Í síðustu sex leikjum
liðanna í deildinni á An
field hefur Liverpool
unnið fjóra leiki, United
einn og einn hefur end
að með jafntefli. Að sama
skapi hefur United unnið
fimm af síðustu sex leikjum lið
anna á Old Trafford. Bæði lið ættu að
geta stillt upp sínum sterkustu liðum.
Robin van Persie er þó á meiðsla
listanum hjá United og óvíst hvort
Marcos Rojo verði klár í slaginn. Leik
ur Liverpool og United hefst
klukkan 13.30 á sunnudag.
Manchester City, sem
hefur átt í talsverðu ba
sli að undanförnu, fær
kærkomið tækifæri til að
koma sér á beinu braut
ina þegar liðið tekur á móti
WBA í hádeginu á laugar
dag. Arsenal heimsækir Newcastle
einnig á laugardag, Southampton
tekur á móti Burnley og Tottenham
fær Leicester í heimsókn. Á sunnu
dag tekur fallbaráttulið Hull á móti
toppliði Chelsea. n einar@dv.is
A
ndreas Pereira er ungur leik
maður Manchester United
sem spilaði sinn fyrsta Úr
valsdeildarleik gegn Totten
ham um liðna helgi. Breskir fjölmiðl
ar hafa greint frá ásökunum þess
efnis að hann hafi boðið ungri stúlku
tvær milljónir króna fyrir að fara í
þríkant með honum og öðrum ung
um leikmanni United, Paddy Mc
Nair. Fram kemur að McNair var ekki
með í ráðum.
Pereira er Brasilíumaður sem er
fæddur í Belgíu. Hann er 19 ára gam
all og hefur fengið nasaþefinn af
Úrvalsdeildinni. Stúlkuna sem um
ræðir, Kelly McKinney, hitti Pereira
í jólaboði sem leikmenn Manchester
United sóttu. Eftir boðið fengu vald
ir gestir aðgang. Þeirra á meðal var
stúlkan.
The Sun hefur eftir stúlkunni að
henni hafi brugðið verulega við boð
ið. Hún sé ekki sú manngerð sem
fáist keypt fyrir peninga. „Hann er
greinilega örvæntingarfullur og á í
erfiðleikum með að finna sér hjá
svæfu sem hann þarf ekki að borga
fyrir,“ er haft eftir stúlkunni. Fram
kemur í umfjölluninni að fyrir
nokkrum dögum hafi leikmaðurinn
aftur haft samband við stúlkuna til
að falast eftir kynlífi.
Haft er eftir umboðsmanni leik
mannsins að hann sé ungur og megi
stunda kynlíf með þeim sem hann
vill. „Á hverju þarf hann að biðjast
afsökunar?“ n
Frumraun Pereira kom við sögu í leik
United og Spurs um liðna helgi. Mynd ReuteRs
Segja leikmann
United hafa boðið
stúlku í þríkant
Spilaði gegn Tottenham um síðustu helgi
S
vo gæti farið að slakur ár
angur enskra liða í Evrópu
keppnum í vetur geri það að
verkum að aðeins þrjú lið frá
Englandi fái þátttökurétt í Meistara
deild Evrópu á næstu árum.
Kerfið sem Knattspyrnusam
band Evrópu, UEFA, notast við
til að ákvarða hversu mörg lið
frá hverju landi fá þátttökurétt er
nokkuð margslungið. Þrjú lönd
fá að senda fjögur lið til keppni
í Meistara deildinni. Þetta eru
Spánn, England og Þýskaland.
Tekið er tillit til árangurs liða í
keppninni fimm ár aftur í tímann
og stendur Spánn langbest að vígi
sé litið til þess tímabils. Þar á eftir
koma England, Þýskaland og loks
Ítalía sem er í 4. sæti.
Engar líkur eru á að Ítalir verði
með fleiri stig en Englendingar að
loknu þessu tímabili en það gæti
gerst á því þar næsta ef ensk lið
hysja ekki upp um sig buxurnar.
Manchester United lék til úrslita í
Meistaradeildinni árið 2011 en á
næsta tímabili mun sá árangur ekki
telja vegna fyrrgreindrar fimm ára
reglu.
Þegar þetta er skrifað er aðeins
eitt enskt lið eftir í Evrópukeppnum
þetta tímabilið, Everton, á meðan
sex ítölsk lið eru enn í baráttunni.
Það er því ljóst að bilið milli Ítalíu
og Englands mun minnka tals
vert áður en næsta tímabil geng
ur í garð. Sky Sports greinir frá því
að litlar líkur séu á að Ítalía nái
að komast upp fyrir England fyrir
tímabilið 2016/17 en gæti gert það
fyrir tímabilið 2017/18. n
England gæti misst
sæti í Meistaradeildinni
Svona gæti Ítalía skotist upp fyrir England
Úr leik Ensku liðin
féllu snemma úr
leik í Meistaradeild
Evrópu þetta
tímabilið. Liverpool
komst ekki upp
úr sínum riðli á
meðan Chelsea,
Man chester City
og Arsenal féllu öll
úr keppni í 16-liða
úrslitum.